Category Archives: Uncategorized
Helgin 30. júní – 1. júlí

Eiðakirkja
Eiðakirkja:
Laugardaginn 30. júní: Messa á Eiðum kl. 14:00. Allir velkomnir! Fermdur verður Máni Benediktsson, Egilsstöðum. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Sr. Þorgeir Arason,
Kirkjubæjarkirkja:
Sunnudaginn 1. júlí: Messa á Kirkjubæ kl. 14:00. Allir velkomnir! Fermdur verður Stefán Jón Hafsteinn Þórarinsson, Egilsstöðum. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Hjaltastaðarkirkja:
Sunnudaginn 1. júlí: Kvöldmessa á Hjaltastað kl. 20:00. Allir velkomnir! Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir leiðir tónlistina með söngfólki. Meðhjálpari Hildigunnur Sigþórsdóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Hjaltastaðarkirkja – Kvöldmessa
Á björtum sumarkvöldum er fátt betra en að sækja nærandi samfélag í kvöldmessu. Sunnudaginn 1. júlí er messa í Hjaltastaðarkirkju kl. 20. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir sér um tónlistina ásamt söngfuglum. 
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir.
Eiríksstaðakirkja 24. júní
Eiríksstaðakirkja á Efra-Jökuldal:
Sumarmessa sunnudaginn 24. júní kl. 14:00.
Prestur sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur söngur. Hringjari Gréta Þórðardóttir.
Allir velkomnir!

Altaristafla Eiríksstaðakirkju: Emmausfararnir eftir Jóhann Briem
Helgihald 16.-17. júní
Laugardagurinn 16. júní:
Áskirkja í Fellum: Messa kl. 11:00. Fermd verða Silja Hrönn Sverrisdóttir og Unnar Aðalsteinsson. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Hofteigskirkja á Jökuldal: Messa kl. 15:00. Fermdur verður Óli Jóhannes Gunnþórsson. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní:
Egilsstaðakirkja: Hátíðarguðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna kl. 10:30. Skrúðganga frá kirkjunni eftir stundina. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Sr. Þorgeir Arason.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 í skrúðgarði við kirkju, við upphaf hátíðarhalda. Organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Tónlistarstundir sumarsins
Tónleikaröðin Tónlistarstundir á Héraði hefst á þriðjudagskvöld í Egilsstaðakirkju með orgeltónleikum. Haldnir verða sex tónleikar, fernir í Egilsstaðakirkju og tvennir í Vallaneskirkju. Allir eru velkomnir á tónleikana og það er enginn aðgangseyrir.
Dagskrá tónleikaraðarinnar er eftirfarandi.
Tónlistarstundir – Lenka Mateova og Kittý Kovács -Þriðjudaginn 12. júní kl. 20 í Egilsstaðaskirkju
Lenka Mateova organisti í Kópavogskirkju, sem áður var á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og í Heydölum og Kittý Kovács organisti á Vestmannaeyjum, nýútskrifaður einleikari frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Tónlistarstundir – Kammerkór Egilsstaðakirkju – Fimmtudaginn 14. júní klukkan 20 í Vallaneskirkju
Kammerkór Egilsstaðakirkju, undir stjórn Torvalds Gjerde, syngur tónleika á Tónlistarstund í Vallaneskirkju, fimmtudaginn 14. júní klukkan 20. Á efnisskránni eru til dæmis falleg íslensk sem og erlend vor- og sumarlög auk tveggja kafla úr Missa Papae Marcelli eftir Palestrina.
Tónlistarstundir – Tinna Þorvalds Önnudóttir og Alda Rut Garðarsdóttir – Fimmtudaginn 21. júní klukkan 20 í Egilsstaðakirkju
Tinna Þorvalds Önnudóttir, mezzósópran, ættuð úr Berufirði og Alda Rut Garðarsdóttir, píanó, frá Stöðvarfirði.
Tónlistarstundir – Framhaldsnemar á fiðlu og píanó frá Egilsstöðum – Fimmtudaginn 28. júní klukkan 20 í Egilsstaðakirkju
Framhaldsnemar á fiðlu og píanó frá Egilsstöðum, Charles Ross, selló, tónlistarkennari á Héraði og Torvald Gjerde, píanó og orgel, organisti og tónlistarkennari á Héraði.
Tónlistarstundir – Sóley Þrastardóttir, flauta, og Öystein M. Gjerde, gítar – Sunnudaginn 1. júlí klukkan 20 í Vallaneskirkju
Sóley Þrastardóttir, flauta, skólastjóri Tónlistarskólans á Egilsstöðum og Öystein M. Gjerde, gítar, tónlistarkennari á Héraði.
Tónlistarstundir – Olga vocal, 5-manna sönghópur, frá Hollandi -Sunnudaginn 8. júlí klukkan 17 í Egilsstaðakirkju
Olga vocal, 5-manna sönghópur, frá Hollandi, þar á meðal tveir Íslendingar. Hópurinn hefur komið fram í ýmsum löndum, einnig í íslensku sjónvarpi.
Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Fljótsdalshéraði, Alcoa, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Sleðbrjótskirkja 10. júní
Árleg kvöldmessa á sumri í Sleðbrjótskirkju í Jökulsárhlíð verður sunnudaginn 10. júní kl. 20:00.
Prestur Þorgeir Arason,
organisti Jón Ólafur Sigurðsson,
Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur,
meðhjálpari Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Allir velkomnir!
Sjómannadagurinn í Egilsstaðaprestakalli

Áskirkja í Fellum: Messa kl. 11 – Ferming, sjá fermingarbörn hér. Prestur er sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti er Drífa Sigurðardóttir og kór Áskirkju leiðir safnaðarsöng.
Bakkagerðiskirkja: Sjómannadagsmessa við Hafnarhólmann kl. 11 (í kirkju ef viðrar illa). Prestur er sr. Þorgeir Arason. Bakkasystur syngja og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson.
Seyðisfjarðarkirkja: Sjómannadagsmessa kl. 20. Ræðumaður er Þórbergur Torfason. Sigurbjörg Kristínardóttir er organisti. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng. Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir messu.
Aðalsafnaðarfundur Hjaltastaðarsóknar
Aðalfundur Hjaltastaðarsóknar verður haldinn í Hjaltastaðarkirkju fimmtudaginn 7. júní kl. 15.00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarbörn látið ykkur málefni kirkjunnar ykkar varða.
Gönguguðsþjónusta í Vallaneskirkju sunnudaginn 27. maí.
Gengið af stað kl. 10 – guðsþjónsta kl. 11
Sunnudaginn 27. maí sameinum við hreyfingu og helgihald í Vallaneskirkju í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ á Fljótsdalshéraði. Gengin verður gömul kirkjuleið í Vallanes (3,5-4,0 km) sem hefst rétt utan við Strönd. Létt ganga á jafnsléttu sem lýkur með stuttri guðsþjónustu í Vallaneskirkju.

Safnast saman við Vallaneskirkju kl. 10:00 að morgni sunnudagsins 27. maí og ekið að upphafsstað göngu. Guðsþjónusta hefst í Vallaneskirkju kl. 11:00 og vitaskuld er einnig hægt að koma beint þangað. Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir og organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur.
Allir velkomnir!
Hvítasunnudagur, 20. maí
Egilsstaðakirkja:
Hátíðarmessur kl. 10:30 og kl. 13:00 – Fermingar. Sjá nöfn fermingarbarna.
Kór Egilsstaðakirkju, organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Allir velkomnir.
Seyðisfjarðarkirkja:
Hátíðarmessa kl. 11:00.
Kór Seyðisfjarðarkirkju, organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kaffi í safnaðarheimili eftir messu. Verið velkomin.
Þingmúlakirkja:
Hátíðarmessa kl. 16 – Fermd verða Emilía Anna Óttarsdóttir og Markús Máni Viðarsson.
Kór Vallaness-og Þingmúlakirkna leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Torvald Gjerde. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Verið öll velkomin.
Gleðilega hátíð heilags anda!