Author Archives: egilsstadakirkja
Helgihald sunnudaginn 14. ágúst
Messa í Egilsstaðakirkju kl. 11:00
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.
Molasopi eftir messu.
Guðsþjónusta á Skriðuklaustri kl. 11:00
Að vanda verður messað á Fljótsdalsdegi Ormsteitis við klausturrústirnar á Skriðu, sjá hér.
Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir. Jón Ólafur Sigurðsson leiðir tónlistina.
Kvöldmessa í Þingmúlakirkju, Skriðdal, kl. 20:00
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Ásta Sigurðardóttir.
Eftir messu verður myndarlegt kirkjukaffi í boði sóknarinnar í félagsheimilinu á Arnhólsstöðum.
Verum velkomin til þátttöku í helgihaldinu!
Kvöldmessa í Bakkagerðiskirkju
Kvöldmessa verður í Bakkagerðiskirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 20:00 (ath. daginn)
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Jón Ólafur Sigurðsson og meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir. Félagar úr kór kirkjunnar (Bakkasystrum) leiða sönginn. Altarisganga.
Kaffisopi í Heiðargerði eftir messu.
Verum velkomin til að eiga ljúfa stund í kirkjunni á sumarkvöldi!
Útiguðsþjónusta á Jökuldal 7. ágúst kl. 14
Jesús segir: hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða (Lúk 18.14).
Sunnudaginn 7. ágúst kl. 14 verður útiguðsþjónusta við fossinn Rjúkanda á Jökuldal. Stutt er að ganga upp að fossinum frá bílastæðinu, fallegur hvammur er neðan við fossinn og þar ætlum við að vera. Munið hlýju fötin og jafnvel teppi að sitja á. Ekki sakar að hafa með heitt kakó eða kaffi og hver veit nema eitthvað verði í boði með kaffinu. Ef illa viðrar færum við okkur í Hofteigskirkju en til þess ætti ekki að koma því allt útlit er fyrir að það verði þurrt, en gæti orðið svalt, komið því vel klædd.
Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar en Torfastaðasystkinin leiða sönginn.
Allir velkomnir.
Helgihald á næstunni
Hér má nálgast upplýsingar um helgihald næstu vikna í Egilsstaðaprestakalli
Sunnudaginn 7. ágúst kl. 14 er útguðsþjónusta við fossinn Rjúkanda á Jökuldal
Miðvikudaginn 10. ágúst kl. 20 er kvöldmessa í Bakkagerðiskirkju á Borgarfirði eystra
Sunnudagurinn 14. ágúst:
-Messa í Egilsstaðakirkju kl. 11
-Guðsþjónusta við rústir klausturkirkjunnar á Skriðuklaustri kl. 11 en þá er Fljótsdalsdagurinn haldinn hátíðlegur
–Kl. 20 er kvöldmessa í Þingmúlakirkju
Laugardaginn 20. ágúst er Möðrudalsgleðin og þá er guðsþjónusta í Möðrudalskirkju kl. 14
Sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 verður hátíðarmessa í Valþjófsstaðarkirkju í tilefni 50 ára vígsluafmæli kirkjunnar, þá verður einnig nýtt orgel kirkjunnar tekið í notkun
Sunnudaginn 28. ágúst kl. 14 verður hátíðarmessa í Eiðakirkju í tilefni 130 ára vígsluafmæli kirkjunnar
Laugardaginn 3. september verður kyrrðardagur í Kirkjuselinu Fellabæ kl. 10-15
Sunnudagurinn 4. september
-Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11, fermingarbörn 2017 og foreldrar sérstaklega boðin velkomin
-Messa í Kirkjubæjarkirkju kl. 14. Kirkjukaffi Kvenfélagsins í Tungubúð á eftir
Lesmessa í Egilsstaðakirkju 24. júlí kl. 20
Lesmessa verður í Egilsstaðakirkju sunnudagskvöldið 24. júlí kl. 20.
Lesnir verða valdir ritningartextar ásamt hugleiðingum. Altarisganga og bænastund.
Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.
Verið velkomin.
Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði
Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju verður sunnudaginn 17. júlí kl 14. Félagar úr Kór Seyðisfjarðarkirkju leiða almennan safnaðarsöng. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna.
Eftir messu er boðið upp á kaffi og meðlæti í skála ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Ath! Það þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
Messan á Klyppstað hefur að jafnaði verið vel sótt af ferðafólki og úr nágrannabyggðum. Klyppstaðarkirkja var reist árið 1895, en prestur sat þar til ársins 1888. Eftir það var staðnum þjónað frá Dvergasteini og síðar Seyðisfirði. Kirkjan er friðað hús og hefur ekki verið afhelguð. Fyrri hluta 20. aldar var blómleg byggð í Loðmundarfirði. Um aldamótin 1900 voru þar 87 íbúar

Klyppstaðarkirkja
kvöldmessa í Hjaltastaðarkirkju
Sunnudaginn 10. júlí er kvöldmessa kl 20.00.
Um tónlistina sér Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir ásamt sínu söngfólki.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir.
Verið velkomin



