Egilsstaðakirkja – sunnud. 6. september

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju byrjar aftur sunnudaginn 6. september og verður alla sunnudaga kl. 10:30. Fram að jólum verðum við í kirkjunni Mikill og líflegur söngur, biblíusögur, Rebbi og Mýsla mæta hress og kát, hressingin og litastundin á sínum stað í lokin. Öll börn og vinir þeirra eru velkomin.

Messa kl. 20:00. Í vetur verða messur í Egilsstaðakirkju öll sunnudagskvöld kl. 20:00. Í fyrstu guðsþjónustu haustsins, 6. september, þjónar sr. Þorgeir Arason. Organisti er Sándor Kerekes og Héctor Nicolás Gómez, kennari við Tónlistarskólann á Egilsstöðum, leikur á píanó. Almennur söngur undir stjórn forsöngvara. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson. Fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Kvöldsopi eftir messu.

Posted on 02/09/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd