Hvítasunnan í Egilsstaðaprestakalli
Hvítasunnan er hátíð heilags anda og stofnhátíð kristinnar kirkju. Helgihald í Egilsstaðaprestakalli um komandi hvítasunnuhelgi:
Laugardagurinn 23. maí (aðfangadagur hvítasunnu):
Vallaneskirkja: Fermingarmessa kl. 11.00. Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla syngur.
Hvítasunnudagur, 24. maí:
Egilsstaðakirkja: Hátíðarmessa kl. 10:30 – Ferming. Sr. Jarþrúður Árnadóttir, sr. Sveinbjörn Dagnýjarson og sr. Þorgeir Arason þjóna. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Einsöngur: Sesselja Ósk Jóhannsdóttir.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar. Organisti Hlín P. Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur.
Annar í hvítasunnu, 25. maí:
Möðrudalskirkja: Fermingarmessa kl. 11.00. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar. Organisti Halldór Warén.
Valþjófsstaðarkirkja: Náðarganga í Skriðuklaustur, hefst með stuttri helgistund í Valþjófsstaðarkirkju kl. 11.00. Sr. Þorgeir Arason og Oddný Eir Ævarsdóttir forstöðumaður Gunnarsstofnunar leiða gönguna. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sjá nánar hér.
Egilsstaðakirkja: Vortónleikar Kórs Egilsstaðakirkju kl. 18.00. Fjölbreytt efnisskrá. Stjórnandi: Sándor Kerekes. Ókeypis aðgangur en tekið við frjálsum framlögum í ferðasjóð kórsins.
Posted on 22/05/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0