Uppstigningardagur 14. maí í Egilsstaðakirkju
Uppstigningardagur er á fimmtudaginn 14. maí næstkomandi og er einnig dagur eldri borgara.
Þennan dag verður guðsþjónusta með altarisgöngu í Egilsstaðakirkju. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar fyrir altari og nýlega stofnaður kór eldri borgara mun syngja fyrir okkur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu Hörgsásnum eftir guðsþjónustuna.
Velkomin í guðsþjónustu kl. 14:00 í Egilsstaðakirkju.

Posted on 12/05/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0