Sunnudagurinn 3. maí

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju sunnudaginn 3. maí kl. 10:30. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogarnir taka vel á móti börnunum. Það líður að lokum sunnudagaskólans í vetur og þann 10. maí verður vorhátíðin okkar í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn.

Guðsþjónusta á Dyngju kl. 17:00. Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr Kór Egilsstaðakirkju og börn úr Barnakór Egilsstaðakirkju syngja. Einsöngur: Ásgerður Felixdóttir.

Messa í kirkjunni kl. 20:00 – Tónlistarmessa. Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju leiðir almennan söng og söngnemendur Hlínar P. Behrens úr Tónlistarskólunum á Egilsstöðum og í Fellabæ flytja fallega tónlist. Einnig leikur Árni Pétur Árnason á bassabásúnu.

Verið velkomin!

Posted on 01/05/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd