Hæfileikasýning í Stjörnustund 12. október
Hæfileikasýning barnanna í Stjörnustund verður í Egilsstaðakirkju í dag 12. október kl. 17.
Börnin mæta kl. 16.30 til að undirbúa, sýningin hefst kl. 17.
Aðgangseyrir 500 kr. Frítt inn fyrir 5 ára og yngri. Hæfileikasýningin er haldin til styrktar fósturbarni barnastarfs Egilsstaðakirkju á Indlandi og rennur allur aðgangseyrir óskiptur í það verkefni.
Verið velkomin og takið með ykkur gesti.
Stjörnustund er kristið frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk. Í hverri viku bröllum við eitthvað skemmtilegt og helgistund með söng og biblíusögu er fastur liður.
Posted on 12/10/2015, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0