Barnastarfið hefst aftur á nýju ári

jesus 12 áraSunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur á nýju ári sunnudaginn 10. janúar kl. 10:30-11:30. Nýárs-vöfflukaffi í boði í lok stundar. – Rebbi og Mýsla mæta, kemur þú ekki líka?
Stjörnustund (6-9 ára starfið) hefst aftur mánudaginn 11. janúar kl. 17:00-18:30. Öll börn í 1.-4. bekk velkomin og nýir geta alltaf  bæst í hópinn.
Athugið: Þessar fyrstu samverur ársins í barnastarfi Egilsstaðakirkju verða í SAFNAÐARHEIMILINU. (Kirkjan er lokuð vegna málningarvinnu fram í miðjan janúar.)
Kirkjuskólinn í Bakkagerðiskirkju hefst aftur á nýju ári mánudaginn 11. janúar kl. 15:00 (athugið tímann að þessu sinni).

Sunnudagurinn 3. janúar

engillGleðilegt nýtt ár!

Hátíðarguðsþjónusta verður í Bakkagerðiskirkju 3. janúar kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason þjónar, Bakkasystur syngja og Kristján Gissurarson organisti leikur nú við sína síðustu athöfn í kirkjunni. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.

Jólatónleikar Egilsstaðakirkju verða sama dag, 3. janúar kl. 17:00.  Kirkjukór, barnakór og kammerkór kirkjunnar koma fram ásamt Kór Vallaness og Þingmúla. Einnig verður orgelspil, einsöngur og almennur söngur. Ókeypis inn og allir velkomnir. Stjórnandi Torvald Gjerde.

Sjáumst sem flest og látum fallegu jólalögin hljóma í síðasta skipti þessi jól!

Gamlársdagur: Aftansöngur í Egilsstaðakirkju kl. 16

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir
(Sb 98 – Valdimar Briem).

Verið velkomin í aftansöng í Egilsstaðakirkju á síðasta degi ársins kl. 16.

Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn organistans, Torvald Gjerde.
Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Messum á Borgarfirði og Sleðbrjót frestað að nýju

Hátíðarguðsþjónustu í Bakkagerðiskirkju sem vera átti kl. 14 í dag, 27. desember, hefur verið frestað til sunnudagsins í nýári, 3. janúar kl. 14, vegna veðurs. Sömuleiðis hefur hátíðarguðsþjónustunni í Sleðbrjótskirkju verið frestað um óákveðinn tíma vegna slæmrar færðar.

Frestað á Borgarfirði til 27.12. og Sleðbrjót til 28.12.

Hátíðarguðsþjónustu sem vera átti í Sleðbrjótskirkju á jóladag hefur verið frestað til 28. desember kl. 14:00 vegna veðurútlits og færðar.

Hátíðarguðsþjónusta verður í Bakkagerðiskirkju sunnudaginn 27. desember kl. 14:00 en ekki á aðfangadag, sömuleiðis vegna færðar og veðurspár.

Jólastund barnanna í Egilsstaðakirkju aðfangadag kl. 14

Dagskrá fyrir yngstu kynslóðina meðan beðið er eftir jólum.

Syngjum jólalög, heyrum sögu úr Biblíunni, Rebbi og Mýsla mæta í jólaskapi.

Verið velkomin!

Jolastund barnanna

Helgihald jólin 2015

Verið velkomin til kirkju á helgri hátíð!

christmas-bells-icon

23. desember, Þorláksmessa:

Egilsstaðakirkja: Jólatónar – Organisti kirkjunnar og gestir leika milli kl. 22-23.

24. desember, aðfangadagur jóla:

 

Egilsstaðakirkja:

Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét og leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina, organisti Torvald Gjerde. Hátíðleg stund fyrir yngstu kynslóðina og Mýsla og Rebbi verða í jólaskapi.

Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.

Náttsöngur kl. 23:00. Einsöngur: Þorbjörn Rúnarsson. Sr. Þorgeir Arason, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.

Eiðakirkja:

Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Vigfús I. Ingvarsson, Kristján Gissurarson organisti og Kór Eiðakirkju.

Kirkjuselið í Fellabæ:

Helgistund kl. 23:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og Drífa Sigurðardóttir organisti.

Seyðisfjarðarkirkja:

Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sigurbjörg Kristínardóttir organisti og Kór Seyðisfjarðarkirkju.

25. desember, jóladagur:

Áskirkja í Fellum:

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Drífa Sigurðardóttir organisti og Kór Ássóknar.

Sleðbrjótskirkja:

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. (Sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir.) Sr. Þorgeir Arason, Jón Ólafur Sigurðsson organisti og Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna.

Seyðisfjarðarkirkja:

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 í kirkjunni. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sigurbjörg Kristínardóttir organisti og Kór Seyðisfjarðarkirkju. Guðsþjónusta kl. 15:00 á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar.

Þingmúlakirkja:

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Davíð Þór Jónsson, Torvald Gjerde organisti og Kór Vallanes- og Þingmúlasókna.

26. desember, annar í jólum:

Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Ljósaþáttur fermingarbarna. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Torvald Gjerde organisti og Barnakór Egilsstaðakirkju. Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 15:00.

Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason, Suncana Slamning organisti, Charles Ross fiðla, Áslaug Sigurgestsdóttir flauta, sönghópur kirkjunnar syngur.

Hofteigskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og Jón Ólafur Sigurðsson organisti.

27. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:

Bakkagerðiskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason þjónar ásamt söngdívum kirkjunnar, Kristjönu Björnsdóttur meðhjálpara og Kristjáni Gissurarsyni organista, en Kristján leikur nú við sína síðustu athöfn í kirkjunni. (Ath. Engin guðsþjónusta á aðfangadag vegna færðar og veðurspár.)

Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Jón Ólafur Sigurðsson organisti og kór kirkjunnar. – Sunnudagsganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs verður kirkjuganga í Fljótsdal þennan dag: Gengin gömul kirkjuleið frá Geitagerði í Valþjófsstað í fylgd séra Vigfúsar I. Ingvarssonar. Mæting kl. 11 við Landstólpa á Egilsstöðum.

31. desember, gamlársdagur:

Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 16:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.

3. janúar, sunnudagur milli nýárs og þrettánda

Egilsstaðakirkja: Jólatónleikar kirkjunnar kl. 17:00. Kórar kirkjunnar, einsöngvari o.fl. koma fram. Aðgangur ókeypis.

Kyrrðarstund í lok aðventu

jolakerti20. desember, fjórða sunnudag í aðventu, verður kyrrðarstund í Egilsstaðakirkju kl. 20 um kvöldið.

Um er að ræða einfalda stund, um hálftíma langa, fyrir þau sem við lok aðventu vilja eiga kyrrlátt samfélag um orð Guðs, bæn og altarissakramentið. Prestur er Þorgeir Arason og organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur.

Allir velkomnir.

Aðventukvöld Seyðisfjarðarkirkju 13. desember kl 18

FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í TALI OG TÓNUM

Kór Seyðisfjarðarkrikju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri Sigurbjörg Kristínardóttir, organisti Sigurður Jónsson og flautuleikari Berglind Halldórsdóttir.

Ljósaþáttur í flutningi fermingarbarnajólatré og kirkjan lítil

Börn úr TTT-starfi flytja helgileik.

Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.

 

Stúlknakórinn Liljurnar – Jólatónleikar

11987154_1909003502657434_2774874399314359559_nStúlknakórinn Liljurnar halda jólatónleika í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 13. desember kl. 17:00.

Kórstjóri er Margrét Lára Þórarinsdóttir og meðleikari Tryggvi Hermannsson.

Hátíðlegir, fjörugir og fallegir jólatónleikar!
Aðgangseyrir: 1.500 kr. Frítt fyrir 12 og yngri.

Allur ágóði rennur í sjóð Liljanna til að komast á norræna kóramótið Norbusang 2016.