Category Archives: Uncategorized
19. júní: Ferming í Valþjófsstaðarkirkju kl. 14
Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur (Lúk 6.36)
Sunnudaginn 19. júní kl. 14 verður fermingarmessu í Valþjófsstaðarkirkju.
Fermd verður Fríða Valdís Bárðardóttir, Dalseli 12 700 Egilsstöðum.
Prestur er sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófstaðarkirkju ásamt félögum leiðir söng.
Verið velkomin.
Ferming á Möðrudal
Sunnudaginn 19. júní verður fermingarmessa í Möðrudalskirkju kl. 11. Fermd verður Rannveig Björgvinsdóttir, Selási 14. 700 Egilsstöðum.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Sigurbjörg Kristínardóttir og meðhjálpari Vernharður Vilhjálmsson. 
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní: Guðsþjónustur á Egilsstöðum og Seyðisfirði og fermingar á Héraði
„Ég mun ganga um mitt á meðal ykkar, vera Guð ykkar og þið verðið þjóð mín.“ (3Mós 26.12)
Egilsstaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 10
Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur, leiðir stundina.
Áskirkja í Fellum: Fermingarmessa kl. 11
Fermd verða:
Aron Ísak Guðmundsson, Hléskógum 2-6, 700 Egilsstöðum
Ásberg Logi Einarsson, Refsmýri, 701 Egilsstöðum
Einar Þorgeir Garðarsson, Brekkubrún 2, 700 Egilsstöðum
Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir, Brekkuseli 4, 700 Egilsstöðum
Óliver Enok Guðmundsson, Hléskógum 2-6, 700 Egilsstöðum
Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson, kór Áskirkju syngur. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Verið velkomin
Vallaneskirkja: Fermingarmessa kl. 11
Fermdur verður:
Ásgeir Svanur Sigurðsson, Sauðhaga, 701 Egilsstöðum
Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Kór Vallanes- og Þingmúlakirkna syngur. Meðhjálpari Ásdís Ámundadóttir
Verið velkomin.
Hátíðarguðsþjónusta á Seyðisfirði kl 14.
Í beinu framhaldi af upphafi hátíðarhalda og skrúðgöngu verður hátíðarguðsþjónusta í skrúðgarðinum við Seyðisfjarðarkirkju. Prestur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti og kórstjóri er Sigurbjörg Kristínardóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Áskirkja sunnudag 12. júní kl. 11: Fermingarmessa
Fermingarmessa í Áskirkju 12. júní kl. 11. 
Fermd verða:
Almar Aðalsteinsson, Bjarkaseli 18, 700 Egilsstöðum
Guðrún Lára Einarsdóttir, Dalbrún 14, 700 Egilsstöðum
Líney Petra Hugadóttir, Helgafelli 4, 700 Egilsstöðum
Sylvía Karen Ragnarsdóttir, Háafelli 6, 700 Egilsstöðum
Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir, kór Áskirkju syngur. Meðhjálpari er Bergsteinn Brynjólfsson.
Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag,
megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi
þig Guð í hendi sér.
(Sb 893)
Messa og ferming í Egilsstaðakirkju 5. júní
Sunnudaginn 5. júní verður messa í Egilsstaðakirkju kl. 11 og fjórar stúlkur fermdar í athöfninni.
Prestur er Þorgeir Arason, Kór Egilsstaðakirkju syngur, organisti er Torvald Gjerde og meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.
Fermdar verða:
Hafdís Guðlaugsdóttir
Helga Sóley Þorsteinsdóttir
Rakel Birta Hafliðadóttir
Ríkey Dröfn Ágústsdóttir
Allir velkomnir!
Sjómannadagsguðsþjónusta á Seyðisfirði
sunnudaginn 5. júní kl 20 í Seyðisfjarðarkirkju. Ræðumaður er Páll Vilhjálmsson, fv. skipstjóri. Sjómenn lesa ritningalestra. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur, organista.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
Verið velkomin.
Sjómannadagurinn: Guðsþjónusta á Borgarfirði eystra

Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn (Matt 8.26b)
Guðsþjónusta við höfnina á Borgarfirði eystra kl. 11 á sjómannadaginn, 5. júní. Kór Bakkagerðiskirkju syngur og leiðir almennan söng við undirleik Jóns Ólafs Sigurðssonar. Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Verið velkomin.
Það er fallegt á Borgarfirði, mynd Mats Wibe Lund

Gönguguðsþjónusta í Vallanesi
Sunnudaginn 29. maí sameinum við hreyfingu og helgihald í Vallaneskirkju í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ á Fljótsdalshéraði. Gengin verður gömul kirkjuleið í Vallanes (3,5-4,0 km) sem hefst rétt utan við Strönd. Létt ganga á jafnsléttu. Áð til lestra og söngs á leiðinni og göngunni lýkur með stuttri guðsþjónustu í Vallanes
kirkju og hressingu.
Safnast saman við Vallaneskirkju kl. 10:00 að morgni sunnudagsins 29. maí og ekið að upphafsstað göngu. Guðsþjónusta hefst í Vallaneskirkju kl. 11:00 og vitaskuld er einnig hægt að koma beint þangað. Prestur er Þorgeir Arason og organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur.
Allir velkomnir!

