Category Archives: Uncategorized
Útför Skarphéðins G. Þórissonar
Útför Skarphéðins G. Þórissonar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 19. júlí kl 14.00.
Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju Loðmundarfirði

Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju Loðmundarfirði verður sunnudaginn 16. júlí kl.14.
Prestar eru sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Bakkasystur leiða söng.
Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.
Messukaffi í skála ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Verið öll velkomin til kirkju á þessum einstaka stað.
Ath! Það þarf að áætla um 1.5 klst akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum. Fjölmennum í bílunum – bjóddu vini með!
Minningarstund í Egilsstaðakirkju í dag kl. 18

Minningarstund
vegna flugslyssins við Sauðahnjúka sunnudaginn 9. júlí verður í Egilsstaðakirkju í dag, þriðjudaginn 11. Júlí kl 18.00.
Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem létust. Prestar kirkjunnar ásamt fulltrúum úr viðbragðshópi RKÍ á Austurlandi verða á staðnum vegna sálræns stuðnings.
FRÁ SAMRÁÐSHÓPI ALMANNAVARNA UM ÁFALLAHJÁLP
LISTI YFIR BJARGRÁÐ:
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA)
Hægt er að senda póst á afallahjalp@hsa.is eða hringja á heilsugæslu HSA og fá samtal við hjúkrunarfræðing í síma 470-3000 á dagvinnutíma. Sjá upplýsingar um opnunartíma á http://www.hsa.is og á facebooksíðunni Heilbrigðisstofnun Austurlands https://www.facebook.com/www.hsa.is
Kirkjan
Prestar eru til viðtals í síma fyrir hjálp eða sálgæslu eins og óskað er eftir:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Fáskrúðsfirði 8971170, jona.kristin.thorvaldsdottir@kirkjan.is
Sigríður Rún Tryggvadóttir, 6984958 sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is
Kristín Þórunn Tómasdóttir, Egilsstöðum 8624164, kristin.tomasdottir@kirkjan.is
Arnaldur Arnold Bárðarson, Breiðdalsvík 7668344, arnaldur.bardarson@kirkjan.is
Ingibjörg Jóhannsdóttir, djákni, 7601033, ingibjorg.johannsdottir@kirkjan.is
Félagsþjónustan í Múlaþingi 4700700
Félagsþjónustan í Fjarðarbyggð 4709015 fyrir ráðgjöf og upplýsingar
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er alltaf opinn og þar er einnig hægt að ná sambandi við ráðgjafa í gegnum netspjall.
Ferming í Seyðisfjarðarkirkju og kvöldmessa í Eiðakirkju 9. júlí


Seyðisfjarðarkirkja:
Messa – ferming: sunnudaginn kl 11.
Fermd verður Ágústa Sigurrós Eyjólfsdóttir. Organisti er Rusa Petriashvili og kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Eiðakirkja;
Sumarmessa kl 20.
Hugvekju flytur Helga Guðmundsdóttir. Auður Jónsdóttir syngur einsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og kór Eiðakirkju syngur. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Guðrún Benediktsdóttir.
Tónlistarstund 10. júlí – Olga söngkvintett
Síðasta tónlistarstund sumarsins verður í Egilsstaðakirkju mánudagskvöldið 10. júlí nk. kl. 20:00.
Þar mun Olga söngkvintett (Olga Vocal Ensemble) flytja fjölbreytta efnisskrá. Aðgangur ókeypis.
Tónlistarstundir eru styrktar af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju. Listrænn stjórnandi Tónlistarstunda er Torvald Gjerde fv. organisti í kirkjunum.
Messa í Egilsstaðakirkju og fermingar um helgina
Helgihald í Egilsstaðaprestakalli um komandi helgi:
Egilsstaðakirkja
Uppfært:
Sunnudaginn 2. júlí kl. 10:30 verður guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju (ekki í Selskógi vegna rigningar).
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir. Lesari Kristófer Hilmar Brynjólfsson.
Léttar veitingar eftir guðsþjónustuna.
Hofteigskirkja
Fermingarmessa laugardaginn 1. júlí kl. 14:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Forsöngvarar leiða almennan söng.
Kirkjubæjarkirkja
Fermingarmessa sunnudaginn 2. júlí kl. 14:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna leiðir söng.
Sumarmessa í Eiríksstaðakirkju 25. júní
Frá sóknarnefnd Eiríksstaðakirkju:
Sumarmessan í Eiríksstaðakirkju verður að þessu sinni sunnudaginn 25. júní kl. 14:00. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson, forsöngvari Auður Jónsdóttir. Nýtt kirkjuorgel verður vígt og eru kirkjugestir beðnir að taka vel undir í sálmasöngnum.
Eiríksstaðakirkja er á Efra-Jökuldal, í rúmlega klukkustundar aksturs fjarlægð frá Egilsstöðum en fremur skammt frá hinum vinsæla ferðamannastað, Stuðlagili. Lesa má nánar um kirkjuna hér.
Tónlistarstundir í Egilsstaðakirkju
Næst á dagskrá í sumartónleikaröðinni Tónlistarstundir:
Sunnudagurinn 25. júní: Tónlistarstund kl. 20:00 í Egilsstaðakirkju. Flytjendur: Lena Lind B. Brynjarsdóttir, flauta, Guðsteinn Fannar Jóhannsson, tenór, og Torvald Gjerde, orgel og píanó. Aðgangur ókeypis.
Fimmtudagurinn 29. júní: Tónlistarstund kl. 20:00 í Egilsstaðakirkju. Flytjendur: Magnea Tómasdóttir, sópran, og Sólveig Anna Jónsdóttir, píanó. Aðgangur ókeypis.
Tónlistarstund 14. júní
Miðvikudagskvöldið 14. júní kl. 20:00 verða tónleikar í Egilsstaðakirkju. Þar koma fram hjónin Sándor Kerekes organisti kirkjunnar og Vírag Kerekesne Meszöly, óbóleikari, ásamt dætrum sínum Kamillu og Boróku Kerekes sem leika á horn og selló.
Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröðinni Tónlistarstundir sem Torvald Gjerde, fyrrverandi organisti kirkjunnar, hefur sem fyrr veg og vanda af. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónlistarstundir njóta stuðnings frá Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Helgihald 17.-18. júní
Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní:
Áskirkja í Fellum
Messa kl. 11:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Tónlistina leiða fermingarbörn og fjölskyldur þeirra.
Egilsstaðakirkja
Hátíðarmessa fyrir alla fjölskylduna kl. 10:30. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
Kirkjubæjarkirkja
Messa kl. 14:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur.
Seyðisfjarðarkirkja
Hátíðarmessa fyrir alla fjölskylduna kl. 13:00. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusudan Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Messa kl. 14:30 – Ferming. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusudan Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Sunnudagurinn 18. júní:
Bakkagerðiskirkja
Messa kl. 11:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja.





