Category Archives: Uncategorized

Æskulýðsfélagið BÍBÍ mætir til leiks

Æskulýðsfélagið BÍBÍ hittist í safnaðarheimilinu okkar (Hörgsási 4) á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20.

Félagið er fyrir 13-16 ára krakka (8.-10. bekkur) og heldur uppi fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá við allra hæfi. Umsjónarfólkið er Bella, Unnar og Hólmfríður og þau eru ÆÐISLEG (við höfum vottorð upp á það).

Fyrsta stóra verkefnið okkar í ár er að taka á móti LANDSMÓTI ÆSKULÝÐSFÉLAGA KIRKJUNNAR – en dagana 13.-15. október koma krakkar frá ÖLLU LANDINU til Egilsstaða og eiga frábæra dagskrá. Hér eru allar upplýsingar um Landsmótið.

Við viljum að sjálfsögðu fá góða þátttöku frá HEIMAFÓLKI og krökkunum okkar í BÍBÍ á Landsmótið. Til þess að fá að vera þátttakandi á Landsmóti þarf að vera félagi í BÍBÍ og hafa mætt á fundina þeirra. Nú er lag, að mæta á næsta fund (sem er fimmtudagurinn 21. september) og byrja að hlakka til Landsmóts!

Æðruleysismessa í Egilsstaðakirkju

Útför Ingibjargar Rafnsdóttur

Verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, laugardaginn 16. september kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Útför Einars Ingólfssonar

verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Sunnudagurinn 17. september

Göngumessa kl. 13:00 (ath. tímann)!
Hefst með helgistund í Kirkjuselinu í Fellabæ. Síðan verður gengið yfir til Egilsstaða og staðnæmst nokkrum sinnum. Sigurjón Bjarnason og Baldur Grétarsson frá Skipalæk flytja fróðleiksmola um það sem fyrir augu ber. Endað í kaffisopa um kl. 15 í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju. Prestur og göngustjóri: Kristín Þórunn Tómasdóttir.

Barnakór Egilsstaðakirkju

Barnakór Egilsstaðakirkju er nú að hefja vetrarstarf sitt og að þessu sinni munum við bjóða upp á tvo hópa:

4.-7. bekkur æfir miðvikudaga kl. 14:45-15:30 í kirkjunni

1.-3. bekkur æfir miðvikudaga kl. 15:30-16:15 í kirkjunni

Fyrstu æfingar verða 20. september. Þátttaka er ókeypis. Kórinn æfir bæði barnasálma og létt lög úr ýmsum áttum og fljótlega byrjum við að æfa aðventu- og jólalögin. Kórinn kemur fram við athafnir í kirkjunni nokkrum sinnum yfir veturinn.

Kórstjóri er Sándor Kerekes, organisti Egilsstaðakirkju. Nánari upplýsingar má fá hjá Sándori í síma 624-7381 eða í tölvupósti: sandrj@freemail.hu.

Skráning fer fram hér (nauðsynlegt er að skrá alla kórsöngvara en að sjálfsögðu má prófa eina æfingu áður en gengið er frá skráningu).

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að byrja aftur!

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að fara aftur af stað! Á haustönn hittumst við í kirkjunni alla sunnudaga kl. 10:30 en eftir áramót í Safnaðarheimilinu á sama tíma. Byrjum 10. september. Í sunnudagaskólanum syngjum við mikið, heyrum biblíusögur og uppbyggilegan boðskap, bregðum á leik en æfum okkur líka að kyrra hugann í bæn, og auðvitað kíkja brúðurnar í heimsókn. Samverurnar eru ca. 40 mín. langar en eftir þær endum við alltaf á að lita mynd og fá okkur hressingu. Sunnudagaskólinn hentar börnum frá 2-3 ára aldri og upp úr og þið eruð velkomin. Umsjón hafa Sándor við hljóðfærið, Elísa, Guðný, Ragnheiður og prestarnir.

Minningarstund í Egilsstaðakirkju á sunnudagskvöldið kl 20.00

Guðsþjónusta og kynningarfundur í Kirkjuselinu

Sunnudaginn 3. september verður guðsþjónusta og kynningarfundur fyrir fermingarbörn og aðstandendur þeirra í Kirkjuselinu í Fellabæ, kl. 18.

Sr. Kristín Þórunn þjónar og Drífa Sigurðardóttir leiðir kór Áskirkju og söfnuðinn í söng. Eftir stundina verður kynningarfundur um fermingarstarfið í vetur og því er mikilvægt að þau sem vilja fermast í vor í Áskirkju – eða öðrum kirkjum á Héraðinu okkar – komi og taki þátt.

Fræðslan byrjar mánudaginn 4. september, kl. 14.15 – eða strax eftir að kennslu í Fellaskóla lýkur. Það þarf að skrá fermingarbörnin rafrænt í fræðsluna og allar upplýsingar um það má finna hér.

Upphaf fermingarstarfanna 2023-2024

Upphaf fermingarstarfsins í Egilsstaðaprestakalli á komandi vetri verður með guðsþjónustu og kynningarfundi fyrir væntanleg fermingarbörn og foreldra/forráðamenn (veljið annan hvorn tímann):

  • í Egilsstaðakirkju, sunnudaginn 27. ágúst kl. 20:00
  • í Kirkjuselinu Fellabæ, sunnudaginn 3. september kl. 18:00

Umsjón með starfinu hafa prestarnir Kristín Þórunn, Sigríður Rún og Þorgeir. Hægt er að sækja fermingarfræðslu annað hvort í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju eða í Kirkjuselinu í Fellabæ.

Í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar er lögð áhersla á góða samveru, helgihald kirkjunnar og að kynna og upplifa sögur Biblíunnar, boðskap Jesú og kristna siðfræði.

Tímasetning fræðslunnar í vetur (veljið einn hóp):

a) Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): þriðjudaga kl. 15:45-16:45 (10x/önn)

b) Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): miðvikudaga kl. 7:55-8:40 (12x/önn)

c) Kirkjuselið Fellabæ (sambyggt íþróttahúsinu): mánudaga kl. 14:15-15:15 (10x/önn)

Fermingarfræðslutímarnir byrja svo 4. september.

17.-19. september verður fermingarnámskeið (fermingarbúðir) í Kirkjumiðstöð Austurlands að Eiðum, þar sem við gistum tvær nætur og tökum þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Nánari áætlun og upplýsingar um starfið í vetur verða kynntar á fundunum 27. ágúst / 3. september og á vefnum egilsstadakirkja.is / egilsstadaprestakall.is

Hægt verður að velja um eftirfarandi fermingardaga vorið 2024:

Áskirkja í Fellum: 19. maí (hvítasunnudagur) og 2. júní (sjómannadagurinn) 2024 kl. 11:00

Egilsstaðakirkja: 28. mars (skírdagur) og 19. maí (hvítasunnudagur) 2024 kl. 10:30

Aðrar kirkjur: Eftir samkomulagi við prest.

Fermingarfræðslugjald er kr. 23.388 (greitt í vor).

Kostnaður við fermingarbúðir á Eiðum (fæði og gisting í tvær nætur) – tilkynnt fljótlega.

Vinsamlega komið með litla möppu (t.d. teygjumöppu eða plastvasa) í fyrsta tímann, ekki þarf að kaupa nein önnur námsgögn.

Ef þið fjölskyldan viljið taka þátt í fræðslunni og ferma barnið ykkar þarf að skrá það rafrænt. Allar upplýsingar hjá prestunum.