Category Archives: Uncategorized
Kvöldmessa í Kirkjuselinu 28. janúar

Innilega velkomin í kvöldmessu í Kirkjuselinu Fellabæ, kl. 20, sunnudaginn 28. janúar.
Félagar úr kór Áskirkju leiða söfnuðinn í söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur og fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og prédikar.
Hittumst og yljum okkur í hlýju samfélagi við upphaf þorra!
Sunnudagurinn 21. janúar
Helgihald 21. janúar, síðasta sunnudag eftir þrettánda:
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju kl. 10:30. Mikill söngur, saga, Rebbi og Mýsla mæta á svæðið, litastund og hressing að vanda. Umsjón hafa Elísa, Guðný, Ragnheiður, Þorgeir og Hlín Behrens við hljóðfærið. Athugið að sunnudagaskólinn hittist í Safnaðarheimilinu nú á vorönninni.
Guðsþjónusta á Dyngju kl. 17:00 (Hamar 3. hæð). Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur.
Kvöldmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00.
Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir safnaðarsönginn. Meðhjálpari Íris D. Randversdóttir. Lesari María Ósk Kristmundsdóttir. Fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Kaffisopi í lokin. Verum öll velkomin!
Sunnudagaskólinn hefst 14. janúar!
Sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur 14. janúar kl. 10:30 og verður í Safnaðarheimilinu á vormisseri. Að vanda verður mikill söngur, brúður og góður boðskapur, kirkjuleikfimi, litamynd og hressing í lokin. Hlökkum til að sjá ykkur!
Bíbí- æskulýðsfélag kirkjunnar byrjar aftur 11. janúar (fimmtudaga kl. 20:00 í Safnaðarheimilinu).
Kóræfingar hjá Barnakór Egilsstaðakirkju byrja aftur 24. janúar í kirkjunni.
Stjörnustund fyrir 1.-4. bekk í Kirkjuselinu Fellabæ byrjar aftur í lok janúar.
TTT-námskeið verður auglýst sérstaklega seinna á vorönn.
Þrettándamessa í Bakkagerðiskirkju
Bakkagerðiskirkja, Borgarfirði eystra:
Þrettándamessa verður laugardaginn 6. janúar kl. 11.00 (í stað messunnar sem féll niður á nýársdag vegna ófærðar).
Syngjum út jólin og heilsum nýja árinu saman. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Bakkasystur syngja.
Sóknarnefnd býður upp á súpu í Heiðargerði eftir messu. Verum öll velkomin!
Aftansöngur á gamlársdagskvöldi

Þann 31. desember, sem er gamlársdagur, verður að venju aftansöngur með hátíðarsöngvum Bjarna Þorsteinssonar í Egilsstaðakirkju kl. 18. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándor Kerekes, sem leikur eitthvað tryllt hátíðlegt í eftirspil! Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kenn oss að telja daga vora,
að vér megum öðlast viturt hjarta. (Sálm 90.12)
Annar jóladagur í kirkjunum okkar

26. desember, annar dagur jóla:
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlistina. Einsöngur: Sigurbjörg Vera Ingvarsdóttir.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Barnakór Egilsstaðakirkju. Ljósaþáttur fermingarbarna. Jólaguðsþjónusta á Dyngju kl. 15:00.
„Sú þjóð, sem í myrkri gengur,
sér mikið ljós.
Yfir þau sem búa í landi náttmyrkranna
skín ljós.“ Jesaja 9.1
Velkomin til kirkju á helgri jólahátíð!
Jóladagur í kirkjunum okkar

Þann 25. desember, á jóladegi, eru hátíðarguðsþjónustur í fjórum kirkjum prestakallsins:
Áskirkja í Fellum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Jólaguðsþjónusta á Fossahlíð kl. 15:00.
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.
Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.
„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans,“
(Jóh 1.14)
Velkomin til kirkju á helgri jólahátíð!
Aðfangadagur og jólanótt

24. desember, á aðfangadegi, eru þessar athafnir í prestakallinu. Verum innilega velkomin í hlýjar og innihaldsríkar samverur.
Egilsstaðakirkja:
Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans.
Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.
Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur: Margrét Lára Þórarinsdóttir.
Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Eiðakirkja: Jólanæturmessa kl. 22:30. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.
Þorláksmessa í kirkjunni

Þann 23. desember, á Þorláksmessu, hafa skapast fallegar og gefandi hefðir í Egilsstaðakirkju sem styðja við hátíðlegan og skemmtilegan undirbúning fyrir blessuð jólin.
Kl. 16 er opin söngstund í kirkjunni þar sem allir eru velkomnir og svo er farið „út að kanta“. Sándor organisti lýsir því sem:
„Að kanta? …Vera og syngja saman, að fagna fæðingu Jesú. Að gleyma aðeins slæmu hlutunum og hugsa um það góða. Koma í hlý föt. Má líka komið með te. Við ætlum að fara á spennandi staði til að koma með smá hlýju. Hvar? Ég veit ekki, í dag vil að dreyma ég það. En draumdu líka og við finnum það saman.„
Um kvöldið eru síðan Jólatónar í kirkjunni milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.
Guð gefi þér friðsælan og gleðilegan jólaundirbúning.



