Áskirkja – Innsetningarmessa 9. feb.

Messa í Áskirkju í Fellum sunnudaginn 9. febrúar kl. 14:00, þar sem prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, mun setja sr. Jarþrúði Árnadóttur inn í embætti prests í Egilsstaðaprestakalli.

Sr. Jarþrúður predikar og þjónar fyrir altari ásamt prófasti og sr. Þorgeiri Arasyni sóknarpresti.

Kór Áskirkju syngur, organisti og söngstjóri er Drífa Sigurðardóttir. Áslaug Sigurgestsdóttir leikur á þverflautu.

Fulltrúar sóknarnefndar Ássóknar lesa ritningarlestra. Meðhjálpari er Bergsteinn Brynjólfsson. Kristófer Hilmar Brynjólfsson mun einnig lesa og aðstoða við helgihaldið.

Að athöfn lokinni býður sóknarnefnd Ássóknar til kaffisamsætis í Kirkjuselinu í Fellabæ. Verið öll innilega velkomin!

Kristniboðskynning – Súpusamvera

Miðvikudaginn 5. febrúar kl. 17-19 verður samvera í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju þar sem gestur okkar verður Sigríður Schram, nýr framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins. Hún mun segja okkur frá kristniboðsstarfi og starfsemi sambandsins bæði erlendis og hér heima. Við munum einnig biðja saman og syngja saman við undirleik Sándors við hljómborðið. Boðið verður upp á ljúffenga súpu og við ætlum að eiga gott samfélag. Verið innilega velkomin.

Í framhaldinu mun biblíuleshópur svo hittast á sama stað alla miðvikudaga kl. 17 fram að páskum og erum við öll velkomin að vera þar með eftir því sem það hentar okkur.

Helgihald sunnudaginn 26. janúar

Egilsstaðakirkja

Sunnudagurinn 26. janúar:

Sunnudagaskólinn í Safnaðarheimilinu kl. 10:30

Kvöldmessa kl. 20:00

Sr. Jarþrúður Árnadóttir, nýr prestur í Egilsstaðaprestakalli, predikar og þjónar fyrir altari og verður þetta fyrsta messa hennar í Egilsstaðakirkju

Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Sándor Kerekes.

Kaffisopi eftir messu – Verið velkomin!

Einnig verður guðsþjónusta á Dyngju (salnum Hamri 3. hæð) sama dag kl. 17.00. Sr. Jarþrúður Árnadóttir, Kór Egilsstaðakirkju og Sándor Kerekes organisti.

Egilsstaðakirkja – Safnaðarstarf vorönn 2025

Jón Grétar Broddason

Útför Jóns Grétars Broddasonar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, laugardaginn 18. janúar kl. 11.00.

Streymi frá athöfninni má nálgast hér.

Svanbjörg Sigurðardóttir

Útför Svanbjargar Sigurðardóttur (fullt nafn; María Svanbjörg Ragnhildur Sigurðardóttir) verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 8. janúar kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Sunnudagaskólinn á Egilsstöðum hefst 12. janúar

Gleðilegt nýtt ár!

Sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur sunnudaginn 12. janúar kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu. (Ath. Ekkert helgihald 5. jan.)

Á vorönninni hittumst við alla sunnudagsmorgna í Safnaðarheimilinu við Hörgsás (gula húsið).

Rebbi og Mýsla mæta þangað, söngvarnir og sögurnar, litamyndirnar og hressingin í lokin – allt verður á sínum stað.

Messur um áramótin

29. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:

Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Einar Sveinn Friðriksson. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.

31. desember, gamlársdagur:

Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes.

1. janúar 2025, nýársdagur:

Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Bakkasystur syngja. Organisti: Sándor Kerekes.

Guð gefi okkur gleðilega hátíð og farsæld á nýju ári!

Útför Kristrúnar Jónsdóttur

Kristrún Jónsdóttir (Dúrra) verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju 27. desember kl. 13:00.

Streymi frá útförinni má nálgast hér.

Helgihald um jól og áramót

20. desember (föstudagur):

Egilsstaðakirkja: Týndu jólasveinarnir – Fjölskyldusöngleikur í flutningi Barnakórs og Barnahljómsveitar Egilsstaðakirkju kl. 17:00. Ókeypis aðgangur.

23. desember, Þorláksmessa:

Egilsstaðakirkja: Jólatónar milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.

24. desember, aðfangadagur:

Egilsstaðakirkja:  Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes.  – Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur: Bergljót Halla Kristjánsdóttir. Organisti: Sándor Kerekes.

Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.

Eiðakirkja: Jólanæturguðsþjónusta kl. 22:30. Sr. Þorgeir Arason. Kór Eiðakirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.

25. desember, jóladagur:

Áskirkja í Fellum:  Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Kór Áskirkju. Þverflauta: Áslaug Sigurgestsdóttir. Organisti: Drífa Sigurðardóttir.

Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.

Fossahlíð, Seyðisfirði: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.

Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Þingmúla- og Vallanessóknir). Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Vallaness og Þingmúla. Organisti: Sándor Kerekes.

26. desember, annar dagur jóla:

Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Tónlistina annast Söngfuglar undir stjórn Sigríðar Laufeyjar Sigurjónsdóttur. Einsöngur: Sigríður Þorvaldsdóttir. (Myndin er af Hjaltastaðarkirkju, tekin af Þórhalli Pálssyni.)

Sleðbrjótskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir). Sr. Þorgeir Arason. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna. Einsöngur: Auður Jónsdóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.

Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósahelgileik. Organisti: Sándor Kerekes.

Dyngja, Egilsstöðum: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósahelgileik. Organisti: Sándor Kerekes.

Hofteigskirkja:  Jólaguðsþjónusta kl. 16:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur safnaðarsöngur undir stjórn forsöngvara.

29. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:

Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Einar Sveinn Friðriksson. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.

31. desember, gamlársdagur:

Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes.

1. janúar 2025, nýársdagur:

Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Bakkasystur syngja. Organisti: Sándor Kerekes.