
Helgihald sunnudaginn 26. janúar
Egilsstaðakirkja
Sunnudagurinn 26. janúar:
Sunnudagaskólinn í Safnaðarheimilinu kl. 10:30
Kvöldmessa kl. 20:00
Sr. Jarþrúður Árnadóttir, nýr prestur í Egilsstaðaprestakalli, predikar og þjónar fyrir altari og verður þetta fyrsta messa hennar í Egilsstaðakirkju
Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Sándor Kerekes.
Kaffisopi eftir messu – Verið velkomin!
Einnig verður guðsþjónusta á Dyngju (salnum Hamri 3. hæð) sama dag kl. 17.00. Sr. Jarþrúður Árnadóttir, Kór Egilsstaðakirkju og Sándor Kerekes organisti.
Jón Grétar Broddason
Útför Jóns Grétars Broddasonar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, laugardaginn 18. janúar kl. 11.00.
Svanbjörg Sigurðardóttir
Útför Svanbjargar Sigurðardóttur (fullt nafn; María Svanbjörg Ragnhildur Sigurðardóttir) verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 8. janúar kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér
Sunnudagaskólinn á Egilsstöðum hefst 12. janúar
Gleðilegt nýtt ár!
Sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur sunnudaginn 12. janúar kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu. (Ath. Ekkert helgihald 5. jan.)

Á vorönninni hittumst við alla sunnudagsmorgna í Safnaðarheimilinu við Hörgsás (gula húsið).
Rebbi og Mýsla mæta þangað, söngvarnir og sögurnar, litamyndirnar og hressingin í lokin – allt verður á sínum stað.
Messur um áramótin
29. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Einar Sveinn Friðriksson. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
31. desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes.
1. janúar 2025, nýársdagur:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Bakkasystur syngja. Organisti: Sándor Kerekes.
Guð gefi okkur gleðilega hátíð og farsæld á nýju ári!
Útför Kristrúnar Jónsdóttur
Kristrún Jónsdóttir (Dúrra) verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju 27. desember kl. 13:00.
Helgihald um jól og áramót
20. desember (föstudagur):
Egilsstaðakirkja: Týndu jólasveinarnir – Fjölskyldusöngleikur í flutningi Barnakórs og Barnahljómsveitar Egilsstaðakirkju kl. 17:00. Ókeypis aðgangur.
23. desember, Þorláksmessa:
Egilsstaðakirkja: Jólatónar milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.
24. desember, aðfangadagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes. – Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur: Bergljót Halla Kristjánsdóttir. Organisti: Sándor Kerekes.
Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.
Eiðakirkja: Jólanæturguðsþjónusta kl. 22:30. Sr. Þorgeir Arason. Kór Eiðakirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
25. desember, jóladagur:
Áskirkja í Fellum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Kór Áskirkju. Þverflauta: Áslaug Sigurgestsdóttir. Organisti: Drífa Sigurðardóttir.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.
Fossahlíð, Seyðisfirði: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Organisti: Adrian Peacock. Einsöngur: Hlín Pétursdóttir Behrens. Flautuleikur: Elfa Hlín Pétursdóttir.
Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Þingmúla- og Vallanessóknir). Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Vallaness og Þingmúla. Organisti: Sándor Kerekes.
26. desember, annar dagur jóla:
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Tónlistina annast Söngfuglar undir stjórn Sigríðar Laufeyjar Sigurjónsdóttur. Einsöngur: Sigríður Þorvaldsdóttir. (Myndin er af Hjaltastaðarkirkju, tekin af Þórhalli Pálssyni.)
Sleðbrjótskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir). Sr. Þorgeir Arason. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna. Einsöngur: Auður Jónsdóttir. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósahelgileik. Organisti: Sándor Kerekes.
Dyngja, Egilsstöðum: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósahelgileik. Organisti: Sándor Kerekes.
Hofteigskirkja: Jólaguðsþjónusta kl. 16:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur safnaðarsöngur undir stjórn forsöngvara.
29. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Einar Sveinn Friðriksson. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
31. desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Kór Egilsstaðakirkju. Organisti: Sándor Kerekes.
1. janúar 2025, nýársdagur:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Bakkasystur syngja. Organisti: Sándor Kerekes.
Týndu jólasveinarnir – Söngleikur
Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju sýna jólasöngleikinn „Týndu jólasveinarnir“ í kirkjunni á föstudaginn, 20. desember kl. 17:00. Þetta er nýr söngleikur eftir Sándor Kerekes tónlistarstjóra kirkjunnar, sem er jafnframt leikstjóri. Um er að ræða stutta en skemmtilega sýningu fyrir alla fjölskylduna þar sem íslensku jólasveinarnir komast í hann krappan en kynnast líka boðskapnum um fæðingu Jesú. Við erum öll velkomin á sýninguna og aðgangur er ókeypis.

Aðventukvöld í Kirkjubæjarkirkju
Aðventukvöld Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna verður að þessu sinni haldið í Kirkjubæjarkirkju mánudaginn 16. desember kl. 19.30. Að vanda verður þetta hátíðleg stund í aðdraganda jóla með fjölbreyttri dagskrá. Þorsteinn Gústafsson flytur jólahugvekju. Fermingarbörn taka virkan þátt. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna flytur okkur fagra tóna undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Auður Jónsdóttir syngur einsöng og við syngjum saman þekktu aðventu- og jólasálmana. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og meðhjálpari er Margrét Árnadóttir. Eftir athöfn í kirkjunni býður Kvenfélag Hróarstungu öllum í aðventukaffi í Tungubúð. Verið hjartanlega velkomin.









