
Category Archives: Uncategorized
Helgihald 14.október
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskólinn kl. 10:30
Guðsþjónusta á Hjh. Dyngju kl. 17:00
Messa kl. 18:00 í kirkjunni
Sr. Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde og Kór Egilsstaðakirkju.
Seyðisfjarðarkirkja:
Sunnudagaskólinn kl. 11:00
Bláa kirkjan verður bleik í október og kl. 18:00 verður Bleik messa, Létt kvöldmessa með alvarlegum undirtóni. Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur deilir reynslu sinni. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur, organista.
Kjötsúpa eftir messu
Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Verið velkomin!
Fjölskyldumessa í Egilsstaðakirkju
Sunnudagurinn 7. október:
Egilsstaðakirkja: Barna- og fjölskyldumessa kl. 10:30
Barnakór kirkjunnar syngur.
Kórstjóri og organisti Torvald Gjerde.
Rebbi refur og sunnudagaskólalögin verða á sínum stað.
Ávaxtakaffi og litamynd eftir stundina.
Þorgeir Arason sóknarprestur og leiðtogar barnastarfsins stýra stundinni.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir!
Tólf sporin – andlegt ferðalag: Opinn kynningarfundur mánudagskvöldin 1. október kl. 20 og 8. október kl. 20.
Egilsstaðakirkja býður í vetur upp á sjálfstyrkingarnámskeiðið
Tólf sporin – andlegt ferðalag.
Tólf spora vinna hentar öllum þeim
sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar
í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.
Opnir kynningarfundir verða í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4, mánudagana 1. og 8. október kl. 20.
Þar gefst færi á að kynna sér í hverju tólf spora vinnan felst.
Á þriðja fundinum þann 15. október verður hópunum lokað og sporavinnan hefst en hún fer fram í litlum hópum sem hittast vikulega.
Unnið er með bókina Tólf sporin – andlegt ferðalag.
Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Vinir í bata er hópur fólks sem hefur tileinkað sér tólf sporin sem lífstíl. Á heimasíðu þeirra má finna frekari upplýsingar um tólf sporin sem og lesa reynslusögu margra sem eru á hinu andlega ferðalagi sem tólf sporin eru.
Verið velkomin til að kynna ykkur hvernig nýta má 12 sporin til að
bæta líf sitt og líðan.
Fjölskylduguðsþjónusta í Kirkjuselinu Fellabæ sunnudaginn 30. september kl. 14!
Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessum meira. (Mrk 12.30-31).
Guðsþjónusta með léttu sniði í Kirkjuselinu Fellabæ, 30. september kl. 14.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina, félagar úr kór Áskirkju syngja og leiða söng, organisti Drífa Sigurðardóttir.
Verið velkomin!
Æðruleysismessa í Egilsstaðakirkju
Sunnudagurinn 30. september í Egilsstaðakirkju:

Sunnudagaskólinn kl. 10:30.
Söngur, sögur og brúður. Litir og hressing eftir stundina.
Æðruleysismessa kl. 20:00
Stund fyllt kyrrð og léttleika í anda bataleiðar 12 sporanna.
Dagmar Ósk Atladóttir flytur vitnisburð úr lífinu.
Sr. Þorgeir Arason predikar um þakklæti.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.
Bænakerti og altarisganga.
Kirkjukórinn og Torvald Gjerde leiða okkur í ljúfum tónum.
Kaffisopi í kirkjuvængnum eftir messu.
Allir velkomnir í kirkju!
Fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 16. september er fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11.
Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Sigurbjörg Kristínardóttir
Biblíusaga, kirkjubrúður, söngur og Nebbi. Umsjón með stundinni hefur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir ásamt aðstoðarleiðtogum.
Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir stundina.
Sunnudagurinn 16. september
Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju kl. 10:30 og að þessu sinni eru börnin hvött til að taka með sér bangsa eða dúkku í kirkjuna! Sr. Þorgeir, Guðný, Elísa, Torvald o.fl. sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 17:00 á Hjúkrunarheimilinu Dyngju, 3. hæð. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Kór Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde organisti.
Messa kl. 18:00 í Egilsstaðakirkju – Dagur íslenskrar náttúru. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Kór Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde organisti. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson.
Verið velkomin!
10. september – Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga


