
Category Archives: Uncategorized
Útför: Ásta Þórleif Jónsdóttir
Útför Ástu Þórleifar Jónsdóttur verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, mánudaginn 29. september, og hefst athöfnin kl. 14:00.
Stuðningshópur vegna missis

Sorgarhópur fyrir þá sem hafa misst náinn ástvin mun hefja göngu sínu þriðjudaginn 7. október kl. 17:30- 19:00. Samverurnar verða samfellt sex þriðjudaga í röð í Kirkjuselinu í Fellabæ.
Sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Sveinbjörn Dagnýjarson leiða hópinn.
Skráning og upplýsingar hjá sr. Jarþrúði.
Öll velkomin.
jarthrudur@kirkjan.is / s: 823-4630
Sunnudagurinn 21. september
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskólinn kl. 10:30.
Guðsþjónusta á Dyngju kl. 17:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur.
Messa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir. Kvöldsopi eftir messu.
Verið velkomin!
Seyðisfjarðarkirkja:
Fjölskyldumessa sunnudaginn 21. september kl. 11
Tónlist:
Kór Seyðisfjarðarkirkju
Lin Ni spilar á víólu
Organisti: Hlín Pétursdóttir Behrens
Prestur: Sveinbjörn Dagnýjarson
Upphaf vetrarstarfs hjá kirkjunni á Seyðisfirði og fermingarstarfs. Messan er tileinkuð börnum og miðast sálmar við að börn geti sungið með. Með vinsemd og kveðju, Seyðisfjarðarkirkja.
Boðið til SálmaVals í Egilsstaðakirkju!
Boðið til SálmaVals í Egilsstaðakirkju – Syngjum saman!
Óskalagakvöld á Ormsteiti
Sunnudaginn 14. september kl. 20:00 – á lokakvöldi Ormsteitis – bjóðum við til SálmaVals – óskalagakvölds og samsöngs í Egilsstaðakirkju. Þau sem koma til kirkju fá afhentan lista með 50 sálmum og 50 þekktum lögum úr ýmsum áttum, íslenskum og erlendum. Síðan syngjum við saman í um klukkustund þau lög og sálma sem þátttakendur óska eftir.
Sándor Kerekes tónlistarstjóri kirkjunnar verður við flygilinn og töfrar fram tóna af sinni þekktu snilld.
Prestarnir leiða stundina og sönginn.
Við erum öll velkomin og enginn aðgangseyrir.
Minningar- og kyrrðarstund 10. september
Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga er 10. september. Hér á landi er hann einnig helgaður minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi og hluti af geðræktarátakinu Gulur september. Að vanda verður minningar- og kyrrðarstund í Egilsstaðakirkju kl. 20.00 að kvöldi 10. september sem í ár ber upp á miðvikudag.
Að þessu sinni mun Kolbjörg Lilja Benediktsdóttir sálfræðingur flytja okkur hugvekju um efnið Sorgin eftir sjálfsvíg. Hljómsveitin Pondrók mun einnig töfra fram fallega tónlist, sr. Jarþrúður Árnadóttir flytur stutta hugleiðingu og sr. Þorgeir Arason leiðir stundina. Við tendrum kertaljós í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Að stundinni lokinni verður boðið upp á kvöldsopa og hægt verður að skrá sig í stuðningshóp vegna ástvinamissis. Verið öll velkomin í Egilsstaðakirkju.
Egilsstaðakirkja 31. ágúst – Messa og upphaf fermingarstarfanna
Sunnudaginn 31. ágúst kl. 20:00 verður guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson predikar, sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Þorgeir Arason leiða helgihaldið. Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr Kór Egilsstaðakirkju leiða sönginn. Meðhjálpari: Guðrún María Þórðardóttir.
Í þessari guðsþjónustu eru ungmenni á Héraði fædd 2012 boðin sérstaklega velkomin ásamt forráðamönnum. Eftir hana verður kynningarfundur um fermingarstarfið í vetur og fermingar næsta vors. Nánari upplýsingar og skráning: https://egilsstadaprestakall.com/athafnir/ferming/
Messur 24. ágúst

Messa í Kirkjubæjarkirkju sunnudaginn 24. ágúst kl. 14:00. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur. Meðhjálpari Margrét Árnadóttir. Minnt er á kaffisölu Kvenfélags Hróarstungu í Tungubúð að messu lokinni.

Kvöldmessa í Þingmúlakirkju í Skriðdal 24. ágúst kl. 20.00. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr Kór Vallaness og Þingmúla leiða almennan söng og Bergljót Halla Kristjánsdóttir leikur á flautu. Meðhjálpari Ásta Sigurðardóttir.
Verið velkomin til kirkju!







