Author Archives: egilsstadakirkja

Guðsþjónusta í Kirkjuselinu Fellabæ

Sunnudaginn 11. september hittumst við í Kirkjuselinu kl. 18 í einfaldri guðsþjónustu á degi kærleiksþjónustunnar. Drífa Sig leikur undir almennan söng og sr. Kristín Þórunn leiðir helgihald og hugvekju. Öll velkomin!

Á eftir verður stuttur fundur með væntanlegum fermingarbörnum.

P.S. Guðspjall dagsins er um miskunnsama Samverjann Lúk 10.25-37

Fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju 11. september kl 11

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga þann 10. september – minningarstund í Egilsstaðakirkju kl 20

Ár hvert er 10. september tileinkaður forvörnum vegna sjálfsvíga víða um heim. 

Hér á landi er dagurinn einnig helgaður minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. í Egilsstaðakirkju verður árleg minningarstund  kl 20.00. 

Torvald Gjerde deilir reynslu sinni. Tónlistarflutningur í höndum Sándors Kerekes.

Sr. Kristín Þórunn og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiða stundina.
Kveikt á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Kynning á starfi fyrir syrgjendur eftir stundina sem og kaffi og spjall.

Bíbí byrjar í kvöld 8. september kl 19:30

Æskulýðsfélagið Bíbí er fyrir alla unglinga sem eru í 8.-10. bekk. Þar verður margt brasað og alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Í kvöld verður kynningarfundur og vonum við að sjá sem flesta.

ATH! BREYTUR TÍMI! Hittumst klukkan 19.30 í Hörgsás 4!

Ábyrgðaraðili: Gunnfríður Katrín starfandi fræðslufulltrúi

Leiðtogar: Dagbjört, Hólmfríður og Sebastían.

Barnakór Egilsstaðakirkju

Nú fer starf barnakórs Egilsstaðakirkju að hefjast á ný. Stjórnandi í vetur er nýi organistinn, Sándor Kerekes, en honum til aðstoðar verður Hlín Pétursdóttir Behrens. Kórinn er fyrir krakka í 3.-7. bekk.

Æfingar í vetur verða á föstudögum kl. 14:00-15:00 í Egilsstaðakirkju. Nánari upplýsingar: hlin.behrens@mulathing.is

Skráning í Barnakórinn – smellið hér!

Ferming 2023 – Kvöldmessa 4. sept.

Sunnudaginn 4. september: Kvöldmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00

Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir predikar, sr. Þorgeir Arason leiðir messuna.

Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr Kór Egilsstaðakirkju leiða sönginn. Meðhjálpari Gísli Þór Pétursson. Lesarar Gunnfríður Katrín Tómasdóttir og Kristófer Hilmar Brynjólfsson. Hringjari Jóhanna Jörgensdóttir.

Kynningarfundur fyrir væntanleg fermingarbörn á Héraði og forráðamenn þeirra eftir messu.

Skráning vegna ferminga 2023 – smellið hér!

Annar kynningarfundur verður haldinn eftir messu í Kirkjuselinu Fellabæ, sunnudaginn 11. september kl. 18:00 (hægt að velja annan hvorn fundinn).

Tímasetning fræðslunnar í vetur (veljið einn hóp):

  1. Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): þriðjudaga kl. 15:30-16:30 (9x/önn) – hefst 13. sept.
  2. Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): miðvikudaga kl. 7:55-8:40 (12x/önn) – hefst 14. sept.
  3. Kirkjuselið Fellabæ (sambyggt íþróttahúsinu): mánudaga kl. 14:15-15:15 (9x/önn) – hefst 12. sept.

Í lok september verður fermingarnámskeið (fermingarbúðir) í Kirkjumiðstöð Austurlands að Eiðum, þar sem við gistum tvær nætur og tökum þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Nánari upplýsingar um starfið í vetur og fermingar næsta vors – smellið hér!

Aðalsafnaðarfundur Kirkjubæjarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Kirkjubæjarsóknar, sem frestað var 18. ágúst sl., verður haldinn í Tungubúð í kvöld, fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd.

Kirkjubæjarkirkja

Sunnudagurinn 28. ágúst: 

Messa kl. 14:00.

Prestur Þorgeir Arason.

Organisti Tryggvi Hermannsson.

Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur.

Verið velkomin.

Kaffisala Kvenfélags Hróarstungu verður í Tungubúð eftir messu.

Mattias Wager – Orgeltónleikar í Egilsstaðakirkju

Afmælishátíð Kirkjumiðstöðvar Austurlands