Author Archives: egilsstadakirkja

Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju

Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju eru nú að byrja vetrarstarf sitt!

Barnakórinn:

Yngri hópur æfir sunnudaga kl. 10.00-10.20 (á undan sunnudagaskólanum), byrjar 6. október. Þar eru engin aldurstakmörk en gott að yngstu börnin hafi foreldra sína með.

Eldri hópur barnakórsins (2.-6. bekkur) æfir fimmtudaga kl. 17:30-18:15 í kirkjunni, byrjar 3. október. Kórinn syngur fjölbreytta tónlist og byrjar fljótlega að æfa aðventu- og jólalögin.

Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju

æfir miðvikudaga kl. 15:30-16:15 í kirkjunni, byrjar 2. október. Þangað eru öll börn velkomin sem eru að læra á (eða kunna eitthvað á) hljóðfæri og vilja spila í hljómsveit.

Þátttaka í kórnum eða hljómsveitinni kostar ekkert en nauðsynlegt er að skrá börnin.

Stjórnandi Barnakórs og Barnahljómsveitar er Sándor Kerekes. Nánari upplýsingar: sandrj@freemail.hu eða bara með því að mæta á næstu æfingu.

Boðið til SálmaVals – Syngjum saman!

Boðið til SálmaVals: Syngjum saman – Óskalagakvöld á Ormsteiti!

Sunnudaginn 22. september kl. 20:00 – á lokakvöldi Ormsteitis – bjóðum við til SálmaVals – óskalagakvölds og samsöngs í Egilsstaðakirkju. Þau sem koma til kirkju fá afhentan lista með 50 sálmum og 50 þekktum lögum úr ýmsum áttum, íslenskum og erlendum. Síðan syngjum við saman í um klukkustund þau lög og sálma sem þátttakendur óska eftir.

Sándor Kerekes tónlistarstjóri kirkjunnar verður við flygilinn og töfrar fram tóna af sinni þekktu snilld. Sóknarprestur leiðir stundina og sönginn. Aldrei að vita nema leynigestur taki lagið. Við erum öll velkomin og enginn aðgangseyrir.

Meðvirkni – Námskeið á Eiðum

Hið vinsæla meðvirkninámskeið, sem um árabil var haldið í Skálholti, verður nú í boði fyrir Austfirðinga dagana 17.-21. október 2024 í Kirkjumiðstöð Austurlands við Eiðavatn.

Námskeiðið er hannað með það að markmiði að veita þátttakendum tı́ma, næði og tækifæri til að öðlast dýpri innsýn ı́ eigin tilfinningar og reynslu. Áhersla er lögð á sjálfsvinnu og innri vöxt, þar sem
þátttakendur vinna með og læra að þekkja einkenni meðvirkni, auka skilning sinn á sjálfum sér og
bæta vellı́ðan.

Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.
Umsjón með námskeiðinu hafa:

  • Sr. Anna Sigrı́ður Pálsdóttir sem hefur starfað um árabil við fjölskylduráðgjöf og handleiðslu
    ásamt preststörfum ı́ Grafarvogskirkju og Dómkirkjunni ı́ Reykjavı́k.
  • Hafdı́s Þorsteinsdóttir fjölskyldu- og félagsráðgjafi, eigandi samskipta- og ráðgjafastofunnar
    Leitum leiða.
  • Skráning: leitumleida@leitumleida.is
  • Nánari upplýsingar:
  • anna.sigridur@simnet.is S: 861 7201
  • hafdis@leitumleida.is S: 857 7575
  • Námskeiðsgjald með fæði og gistingu í 5 daga (4 nætur) er 150.000 kr.
    Staðfestingargjald 50.000 kr. (óendurkræft).
    Námskeiðið hefst kl. 10 á fimmtudegi og lýkur kl. 14 á mánudegi.
    Hámarksfjöldi þátttakenda er 16 manns.
  • Innifalið er fræðsla, hópavinna og einstaklingsviðtöl og eftirfylgnihópar einu sinni ı́ viku ı́ fjórar vikur á Netinu að námskeiði loknu. Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjöldum hjá flestum stéttarfélögum.

Egilsstaðakirkja 15. september

Helgihald sunnudaginn 15. september

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskóli kl. 10:30 í kirkjunni. Sr. Þorgeir, Sándor, Elísa, Guðný og Ragnheiður ásamt fermingarbörnum, Rebba og Mýslu taka vel á móti börnum á öllum aldri!

Kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju og Sándor Kerekes organisti leiða lofsönginn,

Hjúkrunarheimilið Dyngja:

Guðsþjónusta sama dag kl. 17:00. Sr. Þorgeir Arason. Kór Egilsstaðakirkju og Sándor Kerekes organisti.

Verið velkomin!

Kyrrðarstund 10. september kl. 20:00

10. september er Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga og er einnig hér á landi tileinkaður minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Að venju verður kyrrðarstund í Egilsstaðakirkju kl. 20.00 að kvöldi 10. september, en í ár ber daginn upp á þriðjudag.

Benedikt Þór Guðmundsson verkefnastjóri hjá Píeta-samtökunum flytur hugvekju þar sem hann deilir reynslu sinni sem aðstandandi eftir sjálfsvíg, og segir frá Píeta. Úlfar Trausti Þórðarson og Sándor Kerekes flytja okkur fallega tónlist. Prestar Egilsstaðaprestakalls leiða stundina og flytja íhugunarorð. Viðstöddum gefst kostur á að tendra kertaljós í minningu, von og bæn.

Kaffisopi eftir stundina. Verið innilega velkomin.

Útför Guðjóns H. Finnbogasonar

verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 6. september kl.14.00.

Hér er að fylgjast með streymi hér

Afmælishátíð barnanna í Egilsstaðakirkju

Í tilefni af 50 ára afmæli Egilsstaðakirkju í ár hefjum við vetrarstarfið með AFMÆLISHÁTÍÐ BARNANNA sunnudaginn 8. september kl. 10:30 í boði Lionsklúbbsins Múla.

Sérstakur gestur verður Einar Aron töframaður og eigum við í vændum skemmtilega töfrasýningu fyrir unga sem aldna!

Mikill söngur, gleði og góður boðskapur!

Hátíðin markar jafnframt upphaf sunnudagaskólans í Egilsstaðakirkju vetur sem verður að vanda alla sunnudaga kl. 10:30.

Afmæliskaka og pylsur fyrir alla í lokin!
Verið velkomin!

Þingmúlakirkja 1. september

Þingmúlakirkja í Skriðdal:

Kvöldmessa sunnudaginn 1. september kl. 20:00

Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kórfélagar leiða almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari Ásta Sigurðardóttir.

Kaffi eftir messu. Verið öll velkomin!

Sr. Kristín Þórunn kveður Egilsstaðaprestakall

Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, prestur hér í Egilsstaðaprestakalli, hefur verið valin nýr sóknarprestur í Skálholtsprestakalli. Hún predikar í síðasta skipti hér eystra við messuna í Egilsstaðakirkju á sunnudagskvöldið, 25. ágúst, kl. 20:00.

Sr. Kristín Þórunn hefur verið prestur í Egilsstaðaprestakalli frá 1. júní 2022 en leysti áður af hér veturinn 2020-2021. Hún var valin úr hópi fimm umsækjenda um Skálholtsprestakall og flytur á Suðurlandið nú í september. Sjá nánar hér. Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu verður auglýst mjög fljótlega eftir nýjum presti hér í Egilsstaðaprestakalli.

Kvöldmessa verður í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn, 25. ágúst, kl. 20:00. Þar mun sr. Kristín predika og verður það hennar síðasta guðsþjónusta í Egilsstaðaprestakalli. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna fyrir altari. Organisti verður Sándor Kerekes og félagar úr Kór Egilsstaðakirkju syngja. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir.

Fermingarbörn vorsins 2025 á Héraði – og þau sem vilja kynna sér málið – eru jafnframt boðin sérstaklega velkomin til kirkju ásamt forráðamönnum og kynningarfundur verður um fermingarstarfið í vetur eftir guðsþjónustuna. Þetta verður sameiginlegt upphaf/ kynning fyrir fermingarstarf kirkjunnar í Fellabæ og á Egilsstöðum. Skráning í fermingarstarfið í prestakallinu fer fram hér.

Opin kirkja vegna banaslyssins við Hálslón