Author Archives: egilsstadakirkja

Þakkir frá afmælisnefnd Egilsstaðakirkju

Örninn á Austurlandi

Sorgin og jólin – Samvera 21. nóv. kl. 17:00 í Kirkjuselinu Fellabæ

Aðventan og jólin nálgast. Sá tími reynist mörgum erfiður og sár sem misst hafa ástvini sína. Tími sem oft markast af samveru fjölskyldu og vina, en einnig af söknuði og minningum.

Að venju bjóða söfnuðirnir á Héraði upp á samveru tileinkaða missi og sorg í nánd jólahátíðarinnar. Að þessu sinni verður samveran fimmtudaginn 21. nóvember kl. 17.00 í Kirkjuselinu í Fellabæ (sama hús og íþróttahúsið, aðkoma að norðan).

Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, mun flytja erindi um efnið, en hún á að baki áratuga reynslu í sálgæslu og hefur m.a. verið hópstjóri hjá Sorgarmiðstöð og kennt námskeið um áföll og sálgæslu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Tækifæri gefst til spurninga og samtals. Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar flytur tónlist og við tendrum kertaljós í minningu og von. Kaffisopi í lokin.

Prestar Egilsstaðaprestakalls halda utan um stundina og bjóða ykkur innilega velkomin.

Þórstína Harpa Kristjánsdóttir

útför Þórstínu Hörpu Kristjánsdóttir verður gerð frá Egilsstaðakrikju í dag, 16. nóvember kl 14. Hægt er að fylgjast með útförinni í streymi hér

Tónlistarmessa 17. nóvember

Egilsstaðakirkja – Sunnudagurinn 17. nóvember:

Sunnudagaskóli kl. 10:30

Tónlistarmessa kl. 20:00.

Söngnemar í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum og Tónlistarskólanum í Fellabæ koma fram, en kennarar þeirra eru Hlín Pétursdóttir Behrens og Margrét Lára Þórarinsdóttir. Einsöngvarar verða að þessu sinni: Auður Jónsdóttir, Ásdís Sigríður Björnsdóttir og Guðrún Sóley Guðmundsdóttir og sönghópur nemenda kemur einnig fram. Kór Egilsstaðakirkju syngur einnig og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Sándors Kerekess organista. Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson. Lesari Eydís Bjarnadóttir. Fermingarbörn aðstoða við stundina. Kaffisopi eftir messu.

Verið velkomin!

Lilju-messa og sunnudagaskóli

Seyðisfjarðarkirkja sunnudaginn 10. nóvember 

 sunnudagaskóli kl. 11. Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur. Djús og dund í safnaðarheimili eftir stundina. Umsjón hafa Ísold Gná og aðstoðarleiðtogar. 

Egilsstaðakirkja sunnudaginn 10. nóvember 

Sunnudagaskóli kl 10.30. Umsjón hafa Sigríður, Sándor, Elísa, Guðný, Ragnheiður og fermingarbörn.

Lilju-messa í Egilsstaðakirkju 10. nóvember nk. kl. 14:00. 

Kórastarf er hjartað í hverri kirkju. Liljan – tónlistarverðlaun þjóðkirkjunnar voru afhent á Kirkjudögum í Lindakirkju til þeirra kórsöngvara sem sungið hafa í 30 ár eða lengur í kirkjukórum. Ekki gátu allir kórfélagar okkar verið viðstaddir þá hátíðlegu athöfn. Það verður því sérstök Lilju-messa í Egilsstaðakirkju 10. nóvember nk. kl. 14:00 og kórafólki af Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði er boðið að taka þátt í samkór og kirkjan mun óma af söng. Þá verður Lilja – afhent, þ.e. nöfn allra Lilju- þegar verða lesin upp og þau sem eiga eftir að fá sitt viðurkenningarskjal afhent fá það.

Boðið verður upp á messukaffi í kirkunni eftir stundina.

Verið öll velkomin 

Sunnudagurinn 3. nóvember

Helgihald í Egilsstaðaprestakalli á allra heilagra messu, sunnudaginn 3. nóvember:

Áskirkja í Fellum:

Messa kl 11.00. Kveikt á kertum í minningu látinna ástvina. Kór Áskirkju leiðir söng. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Prestur Sigríður Rún, fermingarbörn aðstoða í stundinni. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson. 

Seyðisfjarðarkirkja:

Hræðilega skemmtilegur sunnudagaskóli kl.11. Biblíusaga um ljósið, kirkjubrúður og söngur. Umsjón hafa Ísold Gná og leiðtogaefni. Myrkar veitingar eftir stundina.  

Minningarstund kl. 18.00 í kirkjugarðinum á Seyðisfirði (færum stundina inn í kirkju ef viðrar illa). Kórinn leiðir okkur í söng undir stjórn Hlínar P. Behrens. Sr. Sigríður Rún leiðir stundina. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson. Kveikjum á kertum og leggjum á leiði látinna ástvina (við verðum með sérstakan stað fyrir þau sem ekki eru jarðsett í garðinum á Seyðisfirði). 

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskóli kl. 10.30. Umsjón hafa Þorgeir, Sándor, Guðný, Ragnheiður og fermingarbörn.Vallaneskirkja:

Ljósamessa kl. 20:00. Allra heilagra messa – Látinna minnst og kertaljós tendruð í minningu og von. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson þjónar. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla syngur.

Verum velkomin til kirkju!

Sunnudagurinn 27. október

Bakkagerðiskirkja

Messa kl. 14:00 eins og venja er til þessa fyrstu helgi vetrar.

Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, fv. sóknarprestur á Egilsstöðum, mun að þessu sinni predika og þjóna fyrir altari. Organisti Sándor Kerekes. Bakkasystur syngja. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

Egilsstaðakirkja

Sunnudagaskóli kl. 10:30. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans taka vel á móti öllum börnum.

Kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, fv. sóknarprestur á Egilsstöðum, predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Kaffisopi eftir messu.

Minnum á biblíuleshóp alla miðvikudaga kl. 17:00 í Safnaðarheimili og hádegisbæn á sama stað alla þriðjudaga kl. 12:00.

Verið velkomin!

Jól í skókassa

„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Gjafirnar frá Íslandi eru sendar til barna sem dvelja við erfiðar aðstæður í hinni stríðshrjáðu Úkraínu.

Móttaka skókassa á Egilsstöðum verður í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju laugardaginn 26. október milli kl. 10:00-14:00. Hafa má samband við Þorgeir (847-9289/ thorgeir.arason@kirkjan.is) ef koma þarf kössum til skila á öðrum tíma. Tengiliðir verkefnisins á Egilsstöðum eru Guðný Jónsdóttir, Guðrún Helga Elvarsdóttir, Hlín Stefánsdóttir og Linda Fransson.

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
HVERNIG Á AÐ GANGA FRÁ SKÓKASSANUM?
1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann.
2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Merkiði kassann með kyni og aldri.
3. Setjið 500-1.000 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann
GJAFIR Í SKÓKASSANA
Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:
• Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
• Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
• Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
• Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
• Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.
HVAÐ MÁ EKKI FARA Í SKÓKASSANA?
• Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
• Matvara.
• Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
• Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
• Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
• Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
• Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana. 

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér.

Bleik messa í Egilsstaðakirkju