Jól í skókassa
„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Gjafirnar frá Íslandi eru sendar til barna sem dvelja við erfiðar aðstæður í hinni stríðshrjáðu Úkraínu.

Móttaka skókassa á Egilsstöðum verður í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju laugardaginn 26. október milli kl. 10:00-14:00. Hafa má samband við Þorgeir (847-9289/ thorgeir.arason@kirkjan.is) ef koma þarf kössum til skila á öðrum tíma. Tengiliðir verkefnisins á Egilsstöðum eru Guðný Jónsdóttir, Guðrún Helga Elvarsdóttir, Hlín Stefánsdóttir og Linda Fransson.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
HVERNIG Á AÐ GANGA FRÁ SKÓKASSANUM?
1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann.
2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Merkiði kassann með kyni og aldri.
3. Setjið 500-1.000 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann
GJAFIR Í SKÓKASSANA
Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:
• Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
• Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
• Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
• Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
• Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.
HVAÐ MÁ EKKI FARA Í SKÓKASSANA?
• Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
• Matvara.
• Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
• Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
• Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
• Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
• Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.
Posted on 21/10/2024, in Uncategorized and tagged frettir, grein, oflokkad. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0