Týndu jólasveinarnir – Söngleikur

Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju sýna jólasöngleikinn „Týndu jólasveinarnir“ í kirkjunni á föstudaginn, 20. desember kl. 17:00. Þetta er nýr söngleikur eftir Sándor Kerekes tónlistarstjóra kirkjunnar, sem er jafnframt leikstjóri. Um er að ræða stutta en skemmtilega sýningu fyrir alla fjölskylduna þar sem íslensku jólasveinarnir komast í hann krappan en kynnast líka boðskapnum um fæðingu Jesú. Við erum öll velkomin á sýninguna og aðgangur er ókeypis.

Aðventukvöld í Kirkjubæjarkirkju

Aðventukvöld Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna verður að þessu sinni haldið í Kirkjubæjarkirkju mánudaginn 16. desember kl. 19.30. Að vanda verður þetta hátíðleg stund í aðdraganda jóla með fjölbreyttri dagskrá. Þorsteinn Gústafsson flytur jólahugvekju. Fermingarbörn taka virkan þátt. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna flytur okkur fagra tóna undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Auður Jónsdóttir syngur einsöng og við syngjum saman þekktu aðventu- og jólasálmana. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og meðhjálpari er Margrét Árnadóttir. Eftir athöfn í kirkjunni býður Kvenfélag Hróarstungu öllum í aðventukaffi í Tungubúð. Verið hjartanlega velkomin.

Þriðji sunnudagur í aðventu

Egilsstaðakirkja:

Þriðji sunnudagur í aðventu, 15. desember.

Helgistund með altarisgöngu kl. 10.30. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Almennur söngur.

Sunnudagaskólinn á sama tíma, börnin verða með í kirkjunni í upphafi og eiga svo sér stund með Þorgeiri í safnaðarherbergi. Síðasti sunnudagaskóli ársins.

Hressing í lokin og litamynd fyrir börnin.

Verum velkomin!

Hjörtur Harðarson

Útför Hjartar Harðarsonar verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 14. desember kl. 13:00. Fylgjast má með streymi frá útförinni hér

Aðventukvöld framundan

Þessa dagana fara fram aðventustundir eða aðventukvöld í mörgum af kirkjum prestakallsins. Þar fer fram fjölbreytt dagskrá í tali og tónum sem minnir á tilefni aðventunnar og nánd jólanna. Oft eru tendruð kertaljós og/eða boðið upp á hressingu í lokin. Fjórar slíkar samkomur eru enn eftir:

Hjaltastaðarkirkja – mánudaginn 9. desember kl. 18:00.

Bakkagerðiskirkja – miðvikudaginn 11. desember kl. 20:00.

Seyðisfjarðarkirkja – fimmtudaginn 12. desember kl. 18:00

Kirkjubæjarkirkja – mánudaginn 16. desember kl. 19:30

Myndina hér að ofan tók Anna Heiða Óskarsdóttir frá sjónarhóli kórsins á aðventuhátíð Egilsstaðakirkju þann 8. desember.

Verið hjartanlega velkomin!

Útför Jónínu Þórarinsdóttur

Útför Jónínu Þórarinsdóttur (Jónu frá Unalæk) verður gerð frá Egilsstaðakirkju kl. 14:00 í dag, 30. nóvember.

Streymi frá athöfninni verður hægt að nálgast hér.

Fyrsti sunnudagur í aðventu

  1. desember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Þá verður mikið um að vera í kirkjustarfinu:

Egilsstaðakirkja:

Aðventustund fjölskyldunnar kl. 10:30. Barnakór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándors Kerekes organista. Við syngjum líka mikið saman, kveikjum á fyrsta aðventukertinu og Mýsla og Rebbi láta sig ekki vanta. Skemmtilegt jólaföndur í boði. Heitt súkkulaði og smákökur eftir stundina. Sr. Þorgeir Arason þjónar ásamt leiðtogum sunnudagaskólans og fermingarbörnum. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir.

Litið ljós, lítið hljóð. Tónleikar Kammerkórs Egilsstaðakirkju kl. 20:00. Flutt verða falleg aðventu- og jólalög í útsetningum Gunnars Gunnarssonar. Gestur okkar er Valbjörn Snær Lilliendahl – gítarleikari. Stjórnandi Sándor Kerekes. Aðgangseyrir 2.500 kr. en 1.500 kr. fyrir nema, öryrkja og eldri borgara.

Seyðisfjarðarkirkja:

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens organista. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson. Ísold Gná Ingvadóttir leiðir sunnudagaskólann ásamt aðstoðarleiðtogum.

Hjaltastaðarkirkja:

Aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðarsókna kl. 16:00. Söngfuglar og Barna- og unglingakór Hjaltastaðarkirkju syngja með hljóðfæraleikurum. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina ásamt fermingarbörnum. Sólveig Björnsdóttir rifjar upp aðstæður um jól á bernskuárum sínum. Heitt súkkulaði og smákökur í kirkjunni í lok stundarinnar.

Þakkir frá afmælisnefnd Egilsstaðakirkju

Örninn á Austurlandi

Sorgin og jólin – Samvera 21. nóv. kl. 17:00 í Kirkjuselinu Fellabæ

Aðventan og jólin nálgast. Sá tími reynist mörgum erfiður og sár sem misst hafa ástvini sína. Tími sem oft markast af samveru fjölskyldu og vina, en einnig af söknuði og minningum.

Að venju bjóða söfnuðirnir á Héraði upp á samveru tileinkaða missi og sorg í nánd jólahátíðarinnar. Að þessu sinni verður samveran fimmtudaginn 21. nóvember kl. 17.00 í Kirkjuselinu í Fellabæ (sama hús og íþróttahúsið, aðkoma að norðan).

Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, mun flytja erindi um efnið, en hún á að baki áratuga reynslu í sálgæslu og hefur m.a. verið hópstjóri hjá Sorgarmiðstöð og kennt námskeið um áföll og sálgæslu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Tækifæri gefst til spurninga og samtals. Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar flytur tónlist og við tendrum kertaljós í minningu og von. Kaffisopi í lokin.

Prestar Egilsstaðaprestakalls halda utan um stundina og bjóða ykkur innilega velkomin.