
Category Archives: Uncategorized
Útför Egils Beck Guðlaugssonar
Verður gerð frá Egilsstaðakirkju 7. júlí kl. 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Sumarmessur 29. júní
Sumarmessa í Eiríksstaðakirkju 29. júní kl. 14. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgel. Almennur safnaðarsöngur.
Kvöldmessa í Valþjófsstaðarkirkju 29. júní kl. 20. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og kór Valþjófsstaðarkirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar.


17. júní helgihald í prestakallinu

Egilsstaðakirkja
Hátíðarmessa fjölskyldunnar á þjóðhátíðardaginn kl. 10:30.
Skrúðganga fer frá kirkjunni strax að messu lokinni.
Sr. Jarþrúður Árnadóttir. Organisti Sándor Kerekes, kór Egilsstaðakirkju syngur.
Seyðisfjarðarkirkja
Hátíðarmessa fjölskyldunnar á þjóðhátíðardaginn kl. 15:00, við upphaf hátíðarhalda.
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Hátíðardagskrá í garði við kirkju í framhaldinu.
Tónlistarstund – Musica Oriente
Í kvöld, þriðjudaginn 10. júní kl. 20:00, fara þriðju tónleikar sumarsins í röðinni Tónlistarstundir á Héraði fram í Egilsstaðakirkju. Þar flytur hópur hljóðfæraleikara sem búa á Austurlandi, Musica Oriente, tónlist frá endrurreisnar- og barrokktímanum. Stjórnarndi er Sándor Kerekes.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Tónlistarsjóði og Héraðsprenti.
Hvítasunnan í Egilsstaðaprestakalli
Hvítasunnan er ein af þremur stórhátíðum kristinnar kirkju, hátíð heilags anda og stofnhátíð kirkjunnar. Dagskráin í kirkjum Egilsstaðaprestakalls um komandi hvítasunnu er þessi:
7. júní, laugardagur fyrir hvítasunnu:
Þingmúlakirkja – Fermingarmessa kl. 13:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.
8. júní, hvítasunnudagur:
Egilsstaðakirkja – Hátíðarmessa & Ferming kl. 10:30. Sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.
Seyðisfjarðarkirkja – Hátíðarmessa & Ferming kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Eiðakirkja – Hátíðarmessa & Ferming kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju.
Vallaneskirkja – Tónlistarstund kl. 20:00 að kvöldi hvítasunnudags. Sólveig Thoroddsen og Sergio Coto Blanco leika á lútu og hörpu. Aðgangur ókeypis. Sjá nánar hér.
9. júní, annar í hvítasunnu:
Sleðbrjótskirkja – Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Jarþrúður Árnadóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.
Sjómannadagur 1. júní
Á sjómannadaginn, 1. júní kl. 11 verður guðsþjónusta við höfnina (ef veður leyfir, annars inni í kirkju). Bakkasystur leiða okkur í söng. Jón Ólafur Sigurðsson er organisti, prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Áskirkja í Fellum
Fermingarmessa sunnudaginn 1. júní kl. 11.
Fermd verða: Baldur Þór Sigurgeirsson, Ólafur Snorri Garðarsson og Victoria Anna Sharam.
Kirkjukór Ásóknar syngur undir stjórn Drífu Sigurðardóttur.
Prestur er sr. Jarþrúður Árnadóttir og meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Bakkagerðiskirkja

Á sjómannadaginn, 1. júní kl. 11 verður guðsþjónusta við höfnina (ef veður leyfir, annars inni í kirkju). Bakkasystur leiða okkur í söng. Jón Ólafur Sigurðsson er organisti, prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Seyðisfjarðarkirkja
Á sjómannadaginn, 1. júní verður guðsþjónusta kl. 20.00. Einsöng flytur Sigurður Jónsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir okkur í söng. Hlín Pétursdóttir Behrens er organisti, prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
Uppstigningardagur – Dagur eldri borgara
Fimmtudagurinn 29. maí er uppstigningardagur, 40 dögum eftir páska. Í Þjóðkirkjunni er það einnig kirkjudagur eldri borgara.
Messa verður í Egilsstaðakirkju á uppstigningardag kl. 14:00. Hugvekju dagsins flytur Broddi Bjarnason. Sönghópur Hlymsdala syngur undir stjórn Sándors Kerekes organista. Einsöngur: Guðsteinn Fannar Jóhannsson. Sr. Þorgeir Arason þjónar fyrir altari. Meðhjálpari er Jónas Þór Jóhannsson. Kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Verum öll velkomin til kirkju!






