Category Archives: Uncategorized
Bakkagerðiskirkja: Kvöldmessa 20. ágúst
Kvöldmessa á síðsumri verður haldin í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystri, miðvikudaginn 20. ágúst kl. 20:00.
Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar, en hann er nýkominn til starfa sem prestur í afleysingu hér í Egilsstaðaprestakalli næsta árið, og verður þetta hans fyrsta guðsþjónusta í prestakallinu. Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgel og stýrir söngnum sem Bakkasystur leiða að vanda. Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.
Verum velkomin í Bakkagerðiskirkju.
Útför Mikaels Jónssonar
Verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 12. ágúst kl. 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá athöfninni hér.

Skriðuklaustur: Guðsþjónusta beggja siða 17. ágúst
Árleg samkirkjuleg útiguðsþjónusta á Skriðuklaustri verður haldin sunnudaginn 17. ágúst kl. 14.00, við rústir gömlu klausturkirkjunnar á Skriðu. Þetta er „guðsþjónusta beggja siða“ sem verið hafa ríkjandi í kristni í landinu, þ.e. kaþólska og lúterska kirkjan á Austurlandi standa í sameiningu að guðsþjónustunni í samvinnu við Gunnarsstofnun.
Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson, Egilsstaðaprestakalli, predikar, sr. Pétur Kovácik sóknarprestur Hl. Þorlákssóknar á Austurlandi og sr. Þorgeir Arason, Egilsstaðaprestakalli, þjóna fyrir altari. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur söngur. Meðhjálparar Friðrik Ingólfsson og Halla Auðunardóttir.
Verið velkomin til helgrar stundar á Skriðuklaustri og tilvalið er að njóta kaffihlaðborðs Klausturkaffis að guðsþjónustunni lokinni. (Mynd: Gunnarsstofnun.)
Útför Vigdísar Huldu Kristjánsdóttur
Útför Vigdísar Huldu Kristjánsdóttur verður gerð frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 2. ágúst kl. 14:00.
Streymi frá útförinni má nálgast hér (hefst skömmu fyrir athöfn).
Útimessa í Hrafnafellsrétt
Sunnudaginn 27. júlí kl. 20:00 verður haldin útiguðsþjónusta í Hrafnafellsrétt í Fellum (í suðurenda Hafrafells).
Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og flytur hugvekju. Félagar úr Kór Áskirkju leiða almennan söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur sem leikur á harmoniku. Sigfús Guttormsson frá Krossi segir frá messustaðnum og því sem fyrir augu ber. Meðhjálpari: Bergsteinn Brynjólfsson. Lesari: Kristófer Hilmar Brynjólfsson.
Upplagt að taka með sér kaffi/te á brúsa og sameinast í kvöldhressingu að messu lokinni.
Til að komast á messustað er beygt frá þjóðvegi 1 skammt frá Vök inn Hafrafellsafleggjarann (vegur 929) og síðan ekið áfram Fjallselsveginn, beygt til hægri í áttina að Staffelli áleiðis upp fellið. Bílum er lagt við gönguleiðarskilti (Hrafnafell) við veginn, eða gengið/sameinast í bíla frá Skotásnum (þar sem Hafrafellsbændur geyma vélar). Frá gönguleiðarskiltinu er gengið eftir jeppaslóða frá skilti við veginn u.þ.b. 10-15 mínútur að réttinni, eða ekið (aðeins fært stærri bílum) eftir slóðanum að réttinni. Þar er áfangastaður merktur með H-stiku.
Hrafnafell er ein af perlum Fljótsdalshéraðs, þar var áður lögrétt Fellamanna, Hrafnafellsrétt, þar sem hlaðið hefur verið grjóti í báða enda á djúpri geil sem klettarnir mynda. Þetta er sérstakur og skemmtilegur staður sem gaman er að heimsækja.
Verið velkomin til helgrar stundar úti í sköpunarverki Drottins!
(Ef veður verður mjög óhagstætt til útimessu færist messan inn í Áskirkju, það verður þá auglýst hér.)
Klyppstaðarkirkja 130 ára
Sunnudaginn 20. júlí verður árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju en í ár fagnar kirkjan 130 ára afmæli.

Bakkasystur leiða almennan safnaðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Sr. Gísli Gunnarsson, vígslubiskup í Hólastifti, prédikar og lýsir blessun og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, prófastur í Austurlandsprófastsdæmi, þjónar fyrir altari.
Eftir messu er boðið upp á kaffi og meðlæti í skála ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Athugið að það þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.

Útför Guðmundar Jóhannssonar
verður gerð frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 14. júlí kl.13.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér







