
Author Archives: egilsstadakirkja
Pálína Haraldsdóttir
Útför Pálínu Haraldsdóttur verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag 13. mars kl. 14.00.
Hægt er að fylgjast með streymi frá athöfninni hér
Helgihald 9. mars
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 10:30
Messa kl. 20:00
Prestur er sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju leiðir sönginn. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir. Lesarar Jóhanna Harðardóttir, Kristófer H. Brynjólfsson og Olga Sigþórsdóttir. Kvöldsopi í lokin.
Seyðisfjarðarkirkja:
Messa kl 11:00.
Kristjana Stefáns og söngnemendur sjá um tónlistina. Prestur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Verið velkomin til kirkju!
Stjörnustund að hefjast í Kirkjuselinu
Stjörnustund – kirkjustarf fyrir 6-9 ára krakka – er að hefjast í Kirkjuselinu í Fellabæ. Umsjón hefur sr. Jarþrúður Árnadóttir (jarthrudur@kirkjan.is) ásamt aðstoðarleiðtogum. Hér er dagskráin fram á vor með fyrirvara um breytingar
27. febrúar: Fyrsti fundur
6. mars: Leikjafundur
13 mars: Smákökugerð
20 mars: Þrautakóngur- margar þrautir fyrir frábæra krakka
27. mars: Kósý fundur- kósýföt og kósýstemning
3. apríl: Páskaföndur- gaman að skreyta heima
10. apríl: Páskabingó
17. apríl: skírdagur, enginn fundur
24. apríl: spilafundur
1. maí: Verkalýðsdagur, enginn fundur
8. maí: Kökuskreytingarkeppni
15. maí: Smakk fundur- Hvað ertu að borða?
22. maí: Lokafundur-leikir
Jón Snæbjörnsson- útför

Útför Jóns Sigurðar Snæbjörnssonar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 19. febrúar kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá athöfninni hér
Konudagsmessa í Egilsstaðakirkju
Konudagurinn er á sunnudaginn, 23. febrúar. Þá um kvöldið verður konudagsmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00. Héraðsdætur syngja undir stjórn Drífu Sigurðardóttur við hljóðfærið. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar ásamt Guðrúnu Maríu Þórðardóttur meðhjálpara og fleiri konum.
Sama dag er að vanda sunnudagaskólinn kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu.
Verið velkomin!
Brynjar Ragnar Ingvason – útför

Útför Brynjars Ragnars Ingvasonar verður gerðu frá Egilsstaðakirkju í dag 15. febrúar. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér
Sunnudagurinn 16. febrúar
Helgihald í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 16. febrúar:
Sunnudagaskóli kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu.

Messa kl. 20:00.
Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Sándor Kerekes. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson. Kvöldsopi í lokin.
Verið velkomin!
Minnum einnig á að biblíuleshópur er að fara af stað og hittist á miðvikudögum kl. 17:00 í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.






