
Author Archives: egilsstadakirkja
Messa á mæðradaginn í Egilsstaðakirkju 14. maí kl. 10:30. Aðalsafnaðarfundur að messu lokinni.
Syngið Drottni nýjan söng (Slm 98.1).
Fjórði sunnudagur eftir páska, 14. maí:
Messa í Egilsstaðakirkju kl. 10:30.
Vigfús Ingvar Ingvarsson þjónar fyrir altari, Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar.
Kór Egilsstaðakirkju leiðir söng, organisti Torvald Gjerde.
Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar
í Safnaðarheimilinu Hörgsási 4
að lokinni messu kl. 11:30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Látið ykkur varða málefni kirkjunnar!

Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar 14. maí
Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar verður haldinn í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju Hörgsási 4 sunnudaginn 14. maí kl. 11.30.
Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf, kosning minnihluta í sóknarnefnd og önnur mál. Látið málefni kirkjunnar ykkar varða.
Sóknarnefnd.
Safnaðarfundur í Hjaltastaðarsókn
Þriðjudaginn 9. maí kl. 18 í Hjaltastaðarkirkju. Á dagskrá fundarins er að velja fulltrúa sóknarinnar í kjörnefnd prestakallsins.
Sóknarnefnd. 
Messa í Seyðisfjarðarkirkju 30. apríl kl. 11
Það eru gleðidagar í kirkjunni, frá páskum að hvítasunnu og það væri viðeigandi að tala um gri
llaðan fisk, við grillum síðar en bjóðum upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili að messu lokinni.
Verið velkomin
aðalsafnaðarfundur Eiðasóknar 9. maí kl 20
Aðalsafnaðarfundur Eiðasóknar verður haldinn þriðjudaginn 9. maí kl. 20 í aðstöðuhúsi Eiðakirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf. Heitt á könnunni.
Verið velkomin.
Sóknarnefndin.
Hofteigssókn: Aðalsafnaðarfundur 2. maí kl. 20
Aðalsafnaðarfundur Hofteigssóknar verður haldinn þriðjudaginn 2. maí kl. 20 í safnaðarheimilinu við Hofteigskirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf. Heitt á könnunni.
Verið velkomin.
Sóknarnefndin.
Egilsstaðakirkja: Lokahátíð sunnudagaskólans 9. apríl kl. 10!
Ferðalag, söngur, sögur, leikir, pylsur og páskaeggjaleit!
Lokahátíð sunnudagaskóla Egilsstaðakirkju verður haldin á pálmasunnudag, 9. apríl. Mæting kl. 10 í Egilsstaðakirkju, þaðan verður farið með rútu í Vallaneskirkju. Eftir leiki, söng og sögur í Vallanesi förum við til baka og pylsupartí og páskaeggjaleit í Safnaðarheimilinu.
Verið velkomin!
Kirkjuskóli og messa í Bakkagerðiskirkja frestað vegna veðurs og færðar!
Messa og kirkjuskóli sem vera átti í dag, 19. mars, á Borgarfirði er frestað. Nánar auglýst síðar.
