Author Archives: egilsstadakirkja
Ferming í Seyðisfjarðarkirkju og kvöldmessa í Eiðakirkju 9. júlí


Seyðisfjarðarkirkja:
Messa – ferming: sunnudaginn kl 11.
Fermd verður Ágústa Sigurrós Eyjólfsdóttir. Organisti er Rusa Petriashvili og kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Eiðakirkja;
Sumarmessa kl 20.
Hugvekju flytur Helga Guðmundsdóttir. Auður Jónsdóttir syngur einsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og kór Eiðakirkju syngur. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Guðrún Benediktsdóttir.
Tónlistarstund 10. júlí – Olga söngkvintett
Síðasta tónlistarstund sumarsins verður í Egilsstaðakirkju mánudagskvöldið 10. júlí nk. kl. 20:00.
Þar mun Olga söngkvintett (Olga Vocal Ensemble) flytja fjölbreytta efnisskrá. Aðgangur ókeypis.
Tónlistarstundir eru styrktar af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju. Listrænn stjórnandi Tónlistarstunda er Torvald Gjerde fv. organisti í kirkjunum.
Messa í Egilsstaðakirkju og fermingar um helgina
Helgihald í Egilsstaðaprestakalli um komandi helgi:
Egilsstaðakirkja
Uppfært:
Sunnudaginn 2. júlí kl. 10:30 verður guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju (ekki í Selskógi vegna rigningar).
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir. Lesari Kristófer Hilmar Brynjólfsson.
Léttar veitingar eftir guðsþjónustuna.
Hofteigskirkja
Fermingarmessa laugardaginn 1. júlí kl. 14:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Forsöngvarar leiða almennan söng.
Kirkjubæjarkirkja
Fermingarmessa sunnudaginn 2. júlí kl. 14:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna leiðir söng.
Sumarmessa í Eiríksstaðakirkju 25. júní
Frá sóknarnefnd Eiríksstaðakirkju:
Sumarmessan í Eiríksstaðakirkju verður að þessu sinni sunnudaginn 25. júní kl. 14:00. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson, forsöngvari Auður Jónsdóttir. Nýtt kirkjuorgel verður vígt og eru kirkjugestir beðnir að taka vel undir í sálmasöngnum.
Eiríksstaðakirkja er á Efra-Jökuldal, í rúmlega klukkustundar aksturs fjarlægð frá Egilsstöðum en fremur skammt frá hinum vinsæla ferðamannastað, Stuðlagili. Lesa má nánar um kirkjuna hér.
Tónlistarstundir í Egilsstaðakirkju
Næst á dagskrá í sumartónleikaröðinni Tónlistarstundir:
Sunnudagurinn 25. júní: Tónlistarstund kl. 20:00 í Egilsstaðakirkju. Flytjendur: Lena Lind B. Brynjarsdóttir, flauta, Guðsteinn Fannar Jóhannsson, tenór, og Torvald Gjerde, orgel og píanó. Aðgangur ókeypis.
Fimmtudagurinn 29. júní: Tónlistarstund kl. 20:00 í Egilsstaðakirkju. Flytjendur: Magnea Tómasdóttir, sópran, og Sólveig Anna Jónsdóttir, píanó. Aðgangur ókeypis.
Tónlistarstund 14. júní
Miðvikudagskvöldið 14. júní kl. 20:00 verða tónleikar í Egilsstaðakirkju. Þar koma fram hjónin Sándor Kerekes organisti kirkjunnar og Vírag Kerekesne Meszöly, óbóleikari, ásamt dætrum sínum Kamillu og Boróku Kerekes sem leika á horn og selló.
Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröðinni Tónlistarstundir sem Torvald Gjerde, fyrrverandi organisti kirkjunnar, hefur sem fyrr veg og vanda af. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónlistarstundir njóta stuðnings frá Uppbyggingarsjóði Austurlands, Múlaþingi, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Helgihald 17.-18. júní
Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní:
Áskirkja í Fellum
Messa kl. 11:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Tónlistina leiða fermingarbörn og fjölskyldur þeirra.
Egilsstaðakirkja
Hátíðarmessa fyrir alla fjölskylduna kl. 10:30. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
Kirkjubæjarkirkja
Messa kl. 14:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur.
Seyðisfjarðarkirkja
Hátíðarmessa fyrir alla fjölskylduna kl. 13:00. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusudan Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Messa kl. 14:30 – Ferming. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusudan Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Sunnudagurinn 18. júní:
Bakkagerðiskirkja
Messa kl. 11:00 – Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja.
Helgin 10.-11. júní
Laugardagurinn 10. júní:
Tónlistarstund í Vallaneskirkju kl. 16:00. Flautukvartett leikur. Aðgangur ókeypis.
Tónleikar í Seyðisfjarðarkirkju kl. 18:00. Kammerkór Egilsstaðakirkju kemur fram ásamt hljóðfæraleikurum. Aðgangseyrir 3.000 kr.
Sunnudagurinn 11. júní:
Áskirkja í Fellum: Messa kl. 11:00 – Ferming. Prestur Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Hjaltastaðarkirkja: Messa kl. 14:00. Ferming. Prestur Þorgeir Arason. Tónlistina leiðir Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir. Meðhjálpari Hildigunnur Sigþórsdóttir.
Sleðbrjótskirkja: Sumarmessa kl. 20:00. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur. Meðhjálpari Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Helgihald og tónlistarviðburðir í Egilsstaðaprestakalli sumarið 2023

Sumarið er tíminn sem við njótum samveru í kirkjunum okkar í birtu náðarinnar og gleði lífsins. Hér er yfirlit yfir helgihald og tónlistarviðburði í Egilsstaðaprestakalli í júní, júlí og ágúst.
3. júní Eiðakirkja. Fermingarmessa kl. 14
4. júní Bakkagerði. Sjómannadagsguðsþjónusta kl. 11 á höfninni
4. júní Vallaneskirkja. Sumarmessa kl. 11
4. júní Seyðisfjarðarkirkja. Sjómannadagsguðsþjónusta kl. 20
8. júní Egilsstaðakirkja. Tónlistarstund kl. 20
10. júní Vallaneskirkja. Tónlistarstund kl. 16
11. júní Áskirkja. Fermingarmessa kl. 11
11. júní Hjaltastaðarkirkja. Fermingarmessa kl. 14
11. júní Sleðbrjótskirkja. Kvöldmessa kl. 20
14. júní Egilsstaðakirkja. Tónlistarstund kl. 20
17. júní Áskirkja. Fermingarmessa kl. 11
17. júní Egilsstaðakirkja. Hátíðar- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 10.30
17. júní Seyðisfjarðarkirkja. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Fermingarguðsþjónusta kl. 16
17. júní Kirkjubæjarkirkja. Fermingarmessa kl. 14
18. júní Bakkagerðiskirkja. Fermingarmessa kl. 11
25. júní Eiríksstaðakirkja. Sumarmessa kl. 14
25. júní Egilsstaðakirkja. Tónlistarstund kl. 20
29. júní Egilsstaðakirkja. Tónlistarstund kl. 20
1. júlí Hofteigskirkja. Fermingarmessa kl. 14
2. júlí Egilsstaðir – Selskógur. Útiguðsþjónusta kl. 10.30
2. júlí Kirkjubæjarkirkja. Fermingarmessa kl. 14
9. júlí Seyðisfjarðarkirkja. Fermingarmessa kl. 11
9. júlí Eiðakirkja. Kvöldmessa kl. 20
16. júlí Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði. Messa kl. 14
22. júlí Möðrudalskirkja. Skírnarguðsþjónusta kl. 11
23. júlí Egilsstaðakirkja. Helgistund kl. 20
30. júlí Valþjófsstaðarkirkja. Kvöldmessa kl. 20
6. ágúst Egilsstaðakirkja. Fermingarmessa kl. 11
16. ágúst Bakkagerðiskirkja. Kvöldmessa kl. 20
20. ágúst Klausturrústir við Skriðuklaustur. Guðsþjónusta tveggja siða kl. 14
20. ágúst Þingmúlakirkja. Kvöldmessa kl. 20
27. ágúst Kirkjubæjarkirkja. Messa kl. 14
27. ágúst Egilsstaðakirkja. Kvöldmessa kl. 20 og upphaf fermingarstarfsins
Vinsamlegast hafið í huga að athuga daga og tímasetningar!
Helgihald 3.-4. júní
Laugardagurinn 3. júní:
Eiðakirkja: Fermingarmessa kl. 14:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju syngur. Meðhjálpari Guðrún Benediktsdóttir.
Sunnudagurinn 4. júní, sjómannadagurinn:
Bakkagerðiskirkja: Sjómannadagsmessa við Borgarfjarðarhöfn kl. 11:00.
Prestur Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Vallaneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11:00.
Prestur Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr kórum Vallanes- og Þingmúlakirkju syngja. Eftir stund verður sumargleði í góða veðrinu við allra hæfi.






