Author Archives: egilsstadakirkja

Útför Ernu Nielsen

Erna Nielsen verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju í dag, 17. ágúst kl. 14:00.

Streymi frá útförinni má finna hér

Egilsstaðakirkja: Laust starf / Job Opening

(see English text below)

Sóknarnefnd Egilsstaðakirkju

óskar eftir að ráða starfsmann / kirkjuvörð í 50% starfshlutfall frá 1. september nk. (eða eftir samkomulagi)

Verksvið:

– Ræstingar og önnur umsjón með Egilsstaðakirkju og Safnaðarheimilinu Hörgsási 4.

– Vikuleg innkaup vegna kirkjustarfsins.

– Önnur tilfallandi verkefni við kirkjuna.

Vinnutími:

– Vinnutími er sveigjanlegur og eftir samkomulagi, að mestu á virkum dögum.

– Ekki er gert ráð fyrir að starfsmaður þurfi að aðstoða við athafnir í kirkjunni en gæti í einhverjum tilfellum verið beðinn að mæta til vinnu um helgar/ á hátíðisdögum til að undirbúa kirkjuna fyrir athafnir.

Hæfniskröfur:

– Við leitum að duglegum, jákvæðum og samviskusömum starfsmanni sem sýnir frumkvæði og áhuga í vinnunni.

– Íslenskukunnátta er kostur en ekki skilyrði.

– Umsækjandi þarf að skrifa undir samþykki um að aflað sé upplýsinga úr sakaskrá.

Laun og önnur starfskjör:

Skv. kjarasamningum og lögum.

Nánari upplýsingar / sækja um starfið:

Vinsamlega hafið samband við Þorgeir Arason sóknarprest, í síma 847-9289 eða í tölvupósti: thorgeir.arason@kirkjan.is.

The Parish Council of Egilsstaðakirkja (Lutheran Church of Egilsstaðir)

is looking to hire a part-time employee (50%) beginning September 1st (or by agreement)

Tasks:

– Regular cleaning and other caretaking of the church and parish hall (Hörgsás 4 building)

– Weekly purchases for congregational activities

– Other tasks for the church

Work hours:

– Flexible work hours by agreement, mostly on weekdays

– This employee is not required to attend / assist at church services but might on occasion be requested to work on weekdays or holidays in preparation for church services.

Qualifications:

– We are seeking a positive and hard-working employee who is willing to fulfil their tasks diligently, manifesting initiative and interest in their work.

– Basic knowledge of the Icelandic language would be an advantage, but is not required.

– In accordance with church regulations, the employee is required to provide consent for the church to look up information from their Icelandic criminal records.

Salary and other benefits:

– In accordance with contracts and Icelandic regulation.

About us:

Egilsstaðakirkja is a parish of the Evangelical Lutheran Church of Iceland, fulfilling its Christian mission by gathering for worship, offering different kinds of congregational activities, providing pastoral care and counseling, and more. Please note that religious affiliation is not required for this position.

Further information/ Applying for the position:

Please contact the parish pastor, Þorgeir Arason, tel. 847-9289 or by email: Thorgeir.arason@kirkjan.is

Bakkagerðiskirkja 16. ágúst

Kvöldmessa á síðsumarkvöldi í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystri, miðvikudaginn 16. ágúst kl. 20:00.

Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Bakkasystur syngja. Þetta verður seinasta guðsþjónusta Jóns sem organisti kirkjunnar og verður hann kvaddur af því tilefni.

Kaffisopi eftir messu.

Verum öll velkomin!

Fermingarguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju

Sunnudaginn 6. ágúst er fermingarguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11. Fermd verður Ljósbjörg María Eiríksdóttir og mun fjölskylda hennar leiða söng og undirleik. Prestur er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og Íris Randversdóttir er meðhjálpari. Innilega velkomin í kirkjuna okkar af þessu tilefni.

Útför Sigurborgar Sigurbjörnsdóttur

Sigurborg Sigurbjörnsdóttir verður kvödd frá Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 3. ágúst kl. 13. Hægt er að fylgjast með útförinni á streymi kirkjunnar: https://egilsstadaprestakall.com/youtube/

Kvöldmessa á sumri

Velkomin í kvöldmessu sunnudaginn 30. júlí kl. 20 í Valþjófsstaðarkirkju. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari og prédikar, Friðrik Ingólfsson er meðhjálpari og Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgel og leiðir kórfélaga sem söfnuð í söng.

Hásumar og yndislegt tækifæri til að koma saman!

Helgihald í Egilsstaðaprestakalli helgina 22.-23. júlí

Möðrudalskirkja

Laugardaginn 22. júlí verður skírnarguðsþjónusta í Möðrudalskirkju kl. 11. Prestur er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, organisti Halldór Warén og meðhjálpari Sefán Frímann Jökulsson. Innilega velkomin.

Egilsstaðakirkja

Sunnudaginn 23. júlí er kyrrðar- og íhugunarguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 20. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir leiðir íhugun í kringum orð Jesú í Jóhannesarguðspjalli „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra er til mín kemur og þann aldrei þyrsta er á mig trúir“. Innilega velkomin.

Útför Skarphéðins G. Þórissonar

Útför Skarphéðins G. Þórissonar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 19. júlí kl 14.00.

Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju Loðmundarfirði

Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju Loðmundarfirði verður sunnudaginn 16. júlí kl.14. 

Prestar eru sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Bakkasystur leiða söng. 

Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.

Messukaffi í skála ferðafélags Fljótsdalshéraðs. 

Verið öll velkomin til kirkju á þessum einstaka stað. 

Ath! Það þarf að áætla um 1.5 klst akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum. Fjölmennum í bílunum – bjóddu vini með! 

Minningarstund í Egilsstaðakirkju í dag kl. 18

Minningarstund 

vegna flugslyssins við Sauðahnjúka sunnudaginn 9. júlí verður í Egilsstaðakirkju í dag, þriðjudaginn 11. Júlí kl 18.00.

Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem létust. Prestar kirkjunnar ásamt  fulltrúum úr viðbragðshópi RKÍ á Austurlandi verða á staðnum vegna sálræns stuðnings. 

FRÁ SAMRÁÐSHÓPI ALMANNAVARNA UM ÁFALLAHJÁLP 

LISTI YFIR BJARGRÁÐ: 

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) 

Hægt er að senda póst á afallahjalp@hsa.is eða hringja á heilsugæslu HSA og fá samtal við hjúkrunarfræðing í síma 470-3000 á dagvinnutíma. Sjá upplýsingar um opnunartíma á http://www.hsa.is og á facebooksíðunni Heilbrigðisstofnun Austurlands https://www.facebook.com/www.hsa.is 

Kirkjan

Prestar eru til viðtals í síma fyrir hjálp eða sálgæslu eins og óskað er eftir: 

Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Fáskrúðsfirði 8971170, jona.kristin.thorvaldsdottir@kirkjan.is

Sigríður Rún Tryggvadóttir, 6984958 sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is

Kristín Þórunn Tómasdóttir, Egilsstöðum 8624164, kristin.tomasdottir@kirkjan.is

Arnaldur Arnold Bárðarson, Breiðdalsvík 7668344, arnaldur.bardarson@kirkjan.is 

Ingibjörg Jóhannsdóttir, djákni, 7601033, ingibjorg.johannsdottir@kirkjan.is

Félagsþjónustan í Múlaþingi 4700700

Félagsþjónustan í Fjarðarbyggð 4709015 fyrir ráðgjöf og upplýsingar 

Hjálparsími Rauða krossins 1717 er alltaf opinn og þar er einnig hægt að ná sambandi við ráðgjafa í gegnum netspjall. 

https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/hjalparsiminn-1717-og-netspjallid/