Author Archives: egilsstadakirkja

Útför Einars Ingólfssonar

verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

Sunnudagurinn 17. september

Göngumessa kl. 13:00 (ath. tímann)!
Hefst með helgistund í Kirkjuselinu í Fellabæ. Síðan verður gengið yfir til Egilsstaða og staðnæmst nokkrum sinnum. Sigurjón Bjarnason og Baldur Grétarsson frá Skipalæk flytja fróðleiksmola um það sem fyrir augu ber. Endað í kaffisopa um kl. 15 í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju. Prestur og göngustjóri: Kristín Þórunn Tómasdóttir.

Barnakór Egilsstaðakirkju

Barnakór Egilsstaðakirkju er nú að hefja vetrarstarf sitt og að þessu sinni munum við bjóða upp á tvo hópa:

4.-7. bekkur æfir miðvikudaga kl. 14:45-15:30 í kirkjunni

1.-3. bekkur æfir miðvikudaga kl. 15:30-16:15 í kirkjunni

Fyrstu æfingar verða 20. september. Þátttaka er ókeypis. Kórinn æfir bæði barnasálma og létt lög úr ýmsum áttum og fljótlega byrjum við að æfa aðventu- og jólalögin. Kórinn kemur fram við athafnir í kirkjunni nokkrum sinnum yfir veturinn.

Kórstjóri er Sándor Kerekes, organisti Egilsstaðakirkju. Nánari upplýsingar má fá hjá Sándori í síma 624-7381 eða í tölvupósti: sandrj@freemail.hu.

Skráning fer fram hér (nauðsynlegt er að skrá alla kórsöngvara en að sjálfsögðu má prófa eina æfingu áður en gengið er frá skráningu).

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að byrja aftur!

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að fara aftur af stað! Á haustönn hittumst við í kirkjunni alla sunnudaga kl. 10:30 en eftir áramót í Safnaðarheimilinu á sama tíma. Byrjum 10. september. Í sunnudagaskólanum syngjum við mikið, heyrum biblíusögur og uppbyggilegan boðskap, bregðum á leik en æfum okkur líka að kyrra hugann í bæn, og auðvitað kíkja brúðurnar í heimsókn. Samverurnar eru ca. 40 mín. langar en eftir þær endum við alltaf á að lita mynd og fá okkur hressingu. Sunnudagaskólinn hentar börnum frá 2-3 ára aldri og upp úr og þið eruð velkomin. Umsjón hafa Sándor við hljóðfærið, Elísa, Guðný, Ragnheiður og prestarnir.

Minningarstund í Egilsstaðakirkju á sunnudagskvöldið kl 20.00

Guðsþjónusta og kynningarfundur í Kirkjuselinu

Sunnudaginn 3. september verður guðsþjónusta og kynningarfundur fyrir fermingarbörn og aðstandendur þeirra í Kirkjuselinu í Fellabæ, kl. 18.

Sr. Kristín Þórunn þjónar og Drífa Sigurðardóttir leiðir kór Áskirkju og söfnuðinn í söng. Eftir stundina verður kynningarfundur um fermingarstarfið í vetur og því er mikilvægt að þau sem vilja fermast í vor í Áskirkju – eða öðrum kirkjum á Héraðinu okkar – komi og taki þátt.

Fræðslan byrjar mánudaginn 4. september, kl. 14.15 – eða strax eftir að kennslu í Fellaskóla lýkur. Það þarf að skrá fermingarbörnin rafrænt í fræðsluna og allar upplýsingar um það má finna hér.

Upphaf fermingarstarfanna 2023-2024

Upphaf fermingarstarfsins í Egilsstaðaprestakalli á komandi vetri verður með guðsþjónustu og kynningarfundi fyrir væntanleg fermingarbörn og foreldra/forráðamenn (veljið annan hvorn tímann):

  • í Egilsstaðakirkju, sunnudaginn 27. ágúst kl. 20:00
  • í Kirkjuselinu Fellabæ, sunnudaginn 3. september kl. 18:00

Umsjón með starfinu hafa prestarnir Kristín Þórunn, Sigríður Rún og Þorgeir. Hægt er að sækja fermingarfræðslu annað hvort í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju eða í Kirkjuselinu í Fellabæ.

Í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar er lögð áhersla á góða samveru, helgihald kirkjunnar og að kynna og upplifa sögur Biblíunnar, boðskap Jesú og kristna siðfræði.

Tímasetning fræðslunnar í vetur (veljið einn hóp):

a) Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): þriðjudaga kl. 15:45-16:45 (10x/önn)

b) Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju (Hörgsás 4): miðvikudaga kl. 7:55-8:40 (12x/önn)

c) Kirkjuselið Fellabæ (sambyggt íþróttahúsinu): mánudaga kl. 14:15-15:15 (10x/önn)

Fermingarfræðslutímarnir byrja svo 4. september.

17.-19. september verður fermingarnámskeið (fermingarbúðir) í Kirkjumiðstöð Austurlands að Eiðum, þar sem við gistum tvær nætur og tökum þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Nánari áætlun og upplýsingar um starfið í vetur verða kynntar á fundunum 27. ágúst / 3. september og á vefnum egilsstadakirkja.is / egilsstadaprestakall.is

Hægt verður að velja um eftirfarandi fermingardaga vorið 2024:

Áskirkja í Fellum: 19. maí (hvítasunnudagur) og 2. júní (sjómannadagurinn) 2024 kl. 11:00

Egilsstaðakirkja: 28. mars (skírdagur) og 19. maí (hvítasunnudagur) 2024 kl. 10:30

Aðrar kirkjur: Eftir samkomulagi við prest.

Fermingarfræðslugjald er kr. 23.388 (greitt í vor).

Kostnaður við fermingarbúðir á Eiðum (fæði og gisting í tvær nætur) – tilkynnt fljótlega.

Vinsamlega komið með litla möppu (t.d. teygjumöppu eða plastvasa) í fyrsta tímann, ekki þarf að kaupa nein önnur námsgögn.

Ef þið fjölskyldan viljið taka þátt í fræðslunni og ferma barnið ykkar þarf að skrá það rafrænt. Allar upplýsingar hjá prestunum.

Messur sunnudaginn 27. ágúst

Egilsstaðakirkja: Kvöldmessa kl. 20:00

Prestar: Sigríður Rún Tryggvadóttir og Þorgeir Arason.

Organisti: Sándor Kerekes.

Verðandi fermingarbörn og foreldrar/forráðamenn sérstaklega hvött til að mæta.

Kynningarfundur um fermingarstörfin eftir messu.

Nánari upplýsingar og skráning: egilsstadaprestakall.is

Hjaltastaðarkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.

Prestur: Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Tónlistina leiðir Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir.

Kirkjubæjarkirkja: Messa kl. 14:00

Prestur Þorgeir Arason. 

Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur.

Minnum á kaffisölu Kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.

Þingmúlakirkja: Kvöldmessa 20. ágúst kl. 20

Þingmúlakirkja í Skriðdal:

Kvöldmessa á síðsumri

sunnudaginn 20. ágúst kl. 20:00

Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kórfélagar leiða almennan söng. Kvöldkaffi eftir messu, úti undir berum himni ef veður leyfir. Til gamans má þess geta að byrjað er að mála kirkjuna að utanverðu og tilvalið að koma og virða fyrir sér stöðu framkvæmda.

Verum öll velkomin!

Guðsþjónusta tveggja siða á Skriðuklaustri

SUNNUDAGINN 20. ÁGÚST KL. 14 verður hin árlega guðsþjónusta tveggja siða á rústum hinnar gömlu klausturkirkju á Skriðuklaustri. Athöfnina annast sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prestur í Egilsstaðaprestakalli og sr. Pétur Kovacik prestur Kaþólsku kirkjunnar á Austurlandi. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson, meðhjálparar eru Friðrik Ingólfsson og Skúli Björn Gunnarsson. Verið öll innilega velkomin.