
Author Archives: egilsstadakirkja
Sunnudagurinn 15. október
Helgina 13.-15. október fer Landsmót Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar fram á Egilsstöðum! Við eigum von á hátt í 200 unglingum og leiðtogum sem munu eiga góða samveru, gista í Egilsstaðaskóla og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá í bænum yfir helgina, t.d. helgistundum, sundlaugarpartýi, smiðjum, „Messy Church,“ hæfileikakeppni, balli og fleiru. Helgihald næsta sunnudags 15. okt. í Egilsstaðaprestakalli verður með óvenjulegu sniði vegna Landsmótsins:
Æskulýðsmessa í Egilsstaðakirkju kl. 10:30. Þetta er lokamessa Landsmóts en við erum öll velkomin að taka þátt meðan húsrúm leyfir. Prestar: Sigríður Rún Tryggvadóttir og Þorgeir Arason. Tónlistina leiða Sándor Kerekes og Ásmundur Máni Þorsteinsson. Lesarar verða úr hópi leiðtoga og sjálfboðaliða landsmóts.
Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu í Fellabæ kl. 10:30 – já, sunnudagaskólinn ætlar að fara í heimsókn í Fellabæinn þennan sunnudag og þar verður góð stund fyrir börn á öllum aldri sem sr. Kristín Þórunn leiðir ásamt samstarfskonunum í sunnudagaskólanum. Svo er bara að sjá hvort Rebbi og Mýsla rata í Fellabæ!
Ingibjörg Kristjánsdóttir – útför 9. október kl. 14.00
Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér

MARKÚS – Námskeið í Safnaðarheimili

„MARKÚS‟ – Námskeið í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju
Mánudagskvöld kl. 18:30-20:30, 9. okt. – 27. nóv.
Hver er Jesús? Hvaða máli skiptir líf hans og verk? Hver er tilgangurinn með þessu öllu? Um hvað snýst kristin trú? Kynningarkvöld 9. október – ókeypis og öllum opið.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja velta fyrir sér stóru spurningum lífsins frá sjónarhóli kristinnar trúar. Við kynnumst lífi, boðskap og verki Jesú Krists út frá frásögn Markúsarguðspjalls í Biblíunni. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa aldrei opnað Biblíuna og þeim sem þekkja efni hennar vel en vilja dýpka skilning sinn. Í umræðuhópunum spjöllum við frjálslega um okkar skilning á efninu, um trúna, efann og um lífið sjálft. Umsjón með námskeiðinu hafa: Ástríður, Guðmundur, Íris, Kolbrún, sr. Vigfús Ingvar og sr. Þorgeir.
Verð: 14.000 kr. Innifalið: Kvöldmatur frá matsölustað öll kvöldin. Athugið að mörg stéttarfélög styrkja sitt fólk til að sækja ýmis námskeið. Ef fjárhagur hindrar þátttöku í námskeiðinu, hikið ekki við að hafa samband við Þorgeir (thorgeir.arason@kirkjan.is) og við leysum málið.
Hvert kvöld er þannig skipulagt:
– Kvöldverður
– Stutt kynning á efni kvöldsins – Hvert kvöld tökum við fyrir tvo kafla úr Markúsarguðspjalli
– Myndband
– Innlegg um efni myndbandsins/ viðbrögð
– Umræður í hópum
– Bænastund/Söngur í lokin
Dagskrá:
| 9. okt. | Markús 1&2: Upphafið – Fylg þú mér |
| 16. okt. | Markús 3&4: Sonur Guðs – Dæmisögur |
| 23. okt. | Markús 5&6: Jesús læknar og mettar |
| 30. okt. | Markús 7&8: Hvern segja menn mig vera? |
| 6. nóv. | Markús 9&10: Á fjallinu – Leyfið börnunum að koma |
| 13. nóv. | Markús 11&12: Til Jerúsalem – Æðsta boðorðið |
| 20. nóv. | Markús 13&14: Kvöldmáltíðin – Jesús handtekinn |
| 27. nóv. | Markús 15&16: Krossfestur – Upprisinn |
Bleik messa í Egilsstaðakirkju

Velkomin í Bleika messu sunnudaginn 8. október kl. 20. Bleiki liturinn er notaður í október til að tákna árvekni gegn krabbameini og baráttunni gegn því. Egilsstaðakirkja vill sýna samstöðu og styrk með öllum þeim sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra og tekur þátt í bleikum október.
Kristjana Sigurðardóttir (Ditta), formaður Krabbameinsfélags Austurlands, deilir reynslu og von.
Prestur sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.
Tilvalið að mæta í bleiku til kirkju! Kaffisopi eftir messu – Frjáls framlög til Krabbameinsfélagsins.
Sunnudagurinn 1. október
Á sunnudaginn er sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 10:30 í Egilsstaðakirkju og kl. 11:00 í Seyðisfjarðarkirkju.
Guðsþjónusta verður á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 17:00 sama dag, 1. október. Sr. Þorgeir Arason þjónar, organisti Sándor Kerekes, félagar úr Kór Egilsstaðakirkju. Vandamenn velkomnir með heimilisfólkinu.
Orgelkrakkahátíð á Austurlandi

Óviðjafnanlegt tækifæri gefst ungum tónlistarunnendum þegar ORGELKRAKKAHÁTÍÐ verður haldin í Egilsstaðakirkju laugardaginn 7. október og í Seyðisfjarðarkirkju 8. október. Þá heimsækja okkur þær Guðný Einarsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organistar með skemmtilega dagskrá!
SVONA VERÐUR DAGSKRÁIN Á LAUGARDEGINUM 7. OKTÓBER:
Fjölskyldutónleikar í Egilsstaðakirkju kl. 13. Orgeltónleikar fyrir alla fjölskylduna. Leikin verða frægustu orgelverk sögunnar ásamt þekktum lögum úr kvikmyndum og Eurovision slagarar.
Orgelkrakkavinnusmiðja í safnaðarheimili kl. 14 og kl. 15. Í orgelkrakkavinnusmiðju setja börn saman lítið pípuorgel frá grunni og leika á það í lok stundar. Einnig gefst tækifæri til að fá að prófa að spila á stóra orgelið í kirkjunni. Engrar hljóðfærakunnáttu er krafist til að taka þátt í stundinni. Skráning fer fram eftir tónleikana í kirkjunni.
SVONA VERÐUR DAGSKRÁIN Á SUNNUDEGINUM 8. OKTÓBER :
Lítil saga úr orgelhúsi í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11:00.
Lítil saga úr orgelhúsi er fallegt tónlistarævintýri sem fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Tónlistin er eftir Michael Jón Clarke og er hún spiluð á orgelið á meðan sögumaður segir söguna sem er eftir Guðnýju Einarsdóttur og sýnir myndir á skjá sem teiknaðar eru af Fanney Sizemore.
Orgelkrakkavinnusmiðja í safnaðarheimili kl. 12 og kl. 13. Í orgelkrakkavinnusmiðju setja börn saman lítið pípuorgel frá grunni og leika á það í lok stundar. Einnig gefst tækifæri til að fá að prófa að spila á stóra orgelið í kirkjunni. Engrar hljóðfærakunnáttu er krafist til að taka þátt í stundinni. Skráning fer fram eftir orgeltónleikana.
Ókeypis er á orgelhátíðina og allir eru velkomnir, stórir sem smáir!
Nánari upplýsingar á facebook.com/orgelkrakkar
Stjörnustundin byrjar

Stjörnustund er opið kristilegt klúbbastarf fyrir 1.-4. bekk. Í þetta sinn verður sameiginleg Stjörnustund fyrir Egilsstaði og Fellabæ á þriðjudögum kl. 16-17 í KIRKJUSELINU FELLABÆ.
Sr. Kristín Þórunn og ungleiðtogar sjá um prógramið sem er fjölbreytt og við allra hæfi.
Fyrsta Stjörnustund vetrarins er núna á þriðjudaginn (26. september) og við hlökkum til að sjá ykkur öll.
Æskulýðsfélagið BÍBÍ mætir til leiks

Æskulýðsfélagið BÍBÍ hittist í safnaðarheimilinu okkar (Hörgsási 4) á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20.
Félagið er fyrir 13-16 ára krakka (8.-10. bekkur) og heldur uppi fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá við allra hæfi. Umsjónarfólkið er Bella, Unnar og Hólmfríður og þau eru ÆÐISLEG (við höfum vottorð upp á það).
Fyrsta stóra verkefnið okkar í ár er að taka á móti LANDSMÓTI ÆSKULÝÐSFÉLAGA KIRKJUNNAR – en dagana 13.-15. október koma krakkar frá ÖLLU LANDINU til Egilsstaða og eiga frábæra dagskrá. Hér eru allar upplýsingar um Landsmótið.
Við viljum að sjálfsögðu fá góða þátttöku frá HEIMAFÓLKI og krökkunum okkar í BÍBÍ á Landsmótið. Til þess að fá að vera þátttakandi á Landsmóti þarf að vera félagi í BÍBÍ og hafa mætt á fundina þeirra. Nú er lag, að mæta á næsta fund (sem er fimmtudagurinn 21. september) og byrja að hlakka til Landsmóts!
Útför Ingibjargar Rafnsdóttur
Verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, laugardaginn 16. september kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér


