
Author Archives: egilsstadakirkja
Helgihald sunnudaginn 12. nóvember



Egilsstaðakirkja
Sunnudagaskólinn kl. 10:30 Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur.
Tónlistarmessa kl. 20:00.
Við höldum áfram góðu samstarfi við Hlín Pétursdóttur Behrens, söngkonu og söngkennara undir yfirskriftinni Tónlistarmessa, þar sem söngnemar hennar koma fram og syngja einsöng. Einsöngvarar að þessu sinni verða: Angelika Liebermeister, Eygló Daníelsdóttir, Guðsteinn Fannar Jóhannsson og Sigríður Þorvaldsdóttir .
Kór Egilsstaðakirkju leiðir almennan sálmasöng. Organisti Sándor Kerekes. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson.
Verið velkomin- kaffihressing í lok stundar.
Hjúkrunarheimilið Dyngja, Egilsstöðum:
Guðsþjónusta 12. nóvember kl. 17:00 á Hamri 3. hæð. Söngnemar koma fram og leiða sálmasöng. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA
Minningarguðsþjónusta kl 11. Kveikt á kertum í minningu látinna ástvina.
Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Hlín Pétursdóttir Behrens.
Prestur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Umsjón hafa Ísold Gná Sigríðar Ingvadóttir og leiðtogaefni. Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur.
Veitingar í safnaðarheimili að stundinni lokinni.
Fermingarbörn safna fyrir vatnsverkefnum – Hjálparstarf kirkjunnar

Eins og hefð er fyrir ætla unglingar sem sækja fermingarfræðslu í Egilsstaðaprestakalli að ganga í hús og safna fyrir vatnsverkefnum Hjálparstarf kirkjunnar í Eþíópíu og Úganda.
Meðal þess sem börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar fá að kynnast í vetur er þróunarsamvinna og hjálparstarf á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingarbörnin fá að kynnast aðstæðum sem fólkið á verkefnasvæðum býr við og rætt er um sameiginlega ábyrgð á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi. Það er líka mikilvægur liður í fermingarfræðslunni að læra um gildi náungakærleika og fá að taka þátt í verkefni sem raunverulega breytir lífsgæðum fjölda fólks. Að hafa aðgang að hreinu vatni hefur svo margþættar breytingar í för með sér og stuðlar að jafnrétti, því það er aðallega hlutverk stúlkna að sækja vatn og ef þær þurfa að fara um langan veg þá komast þær ekki í skóla.
Í kjölfar fræðslunnar ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Fyrir söfnunina fá börnin leiðbeiningar um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Börnunum er uppálagt að fara alltaf tvö og tvö saman, í einhverjum tilfellum fylgja foreldrar þeim.
Börn í fermingarfræðslu hafa í meira en tuttugu ár lagt sitt af mörkum til Hjálparstarfs með því að ganga í hús með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Framlag fermingarbarna er afar mikilvægt en árið 2022 söfnuðu þau um 8 milljónum króna með þessum hætti.
Styðja má fjáröflun fermingarbarna til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar Afríku með því að hringja í söfnunarsíma 907 2003 og gefa 2.500 krónur, leggja upphæð að eigin vali inn á reikning 0334-26-56200, kennitala 450670-0499 eða greiða með greiðslukorti hér.„
Unglingarnir ganga í hús með innsiglaða söfnunarbauka, en á baukunum er líka QR -kóði svo þau sem ekki eru með reiðufé á sér geta líka lagt söfnuninni lið með stafrænum greiðslulausnum.
Gengið er í hús í Fellabæ mánudaginn 6. nóvember
á Egilsstöðum þriðjudaginn 7. nóvember
og á Seyðsifirði miðvikudaginn 8. nóvember
Tökum vel á móti fermingarbörnunum sem láta gott af sér leiða!
Stuðningshópur fyrir þau sem misst hafa ástvini í sjálfsvígi

Stuðningshópur fyrir þau sem misst hafa ástvini í sjálfsvígi hefst þriðjudaginn 31. október. Hist verður í Kirkjuselinu Fellabæ og hefjast samverurnar kl. 17.30.
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir hefur umsjón með hópnum og hún segir: Við slíkan missi hjálpar að njóta stuðnings annarra í svipaðri stöðu undir leiðsögn fagaðila.
Sr. Sigríður Rún veitir frekari upplýsingar í síma 698 4958 og netfangi sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is og þar er fólk beðið að tilkynna þátttöku.
Jól í skókassa
„Jól í skókassa“ er verkefni á vegum KFUM og KFUK á Íslandi. Markmiðið er að senda jólaglaðning til barns í Úkraínu sem býr við fátækt, sjúkdóma, hefur misst foreldri o.s.frv. Móttaka skókassa á Egilsstöðum verður að þessu sinni í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju laugardaginn 28. okt. kl. 10:00-14:00. Einnig má koma með skókassa í sunnudagaskólann í kirkjunni 29. okt. Leiðbeiningar um frágang á kössum:
•Veljið aldursflokk og kyn barnsins sem fær kassann.
•Pakkið inn í jólapappír/ skreytið skókassann fallega. Gætið þess að pakka loki kassans sérstaklega og loka honum svo með teygju. Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:
•Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa, jó-jó…
•Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur…
•Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
•Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
•Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.
TTT-starf Egilsstaðakirkju
Nú byrjar TTT-starfið í Egilsstaðakirkju aftur og að þessu sinni bjóðum við upp á sjö vikna lotu fyrir 10-12 ára krakka. Við ætlum að hittast í Safnaðarheimilinu á miðvikudögum kl. 16:30-18:00 frá 25. október til og með 6. desember, elda eða baka saman, fara í leiki og gera ýmislegt jólalegt saman! Hver fundur byrjar með stuttri helgistund og söng.
Leiðtogar í TTT verða að þessu sinni Þorgeir, Stefanía Þórdís og fleiri. Öll börn í 5. 6. og 7. bekk eru velkomin og ekkert þátttökugjald. Dagskrána má sjá hér fyrir neðan:

Sunnudagurinn 22. október
Helgihald í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn, 22. október:
Sunnudagaskólinn kl. 10:30. Elísa, Guðný, Ragnheiður, Sándor og sr. Þorgeir sjá um stundina og brúðurnar láta sig ekki vanta!
Messa kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Kaffisopi eftir messu.
Verum öll velkomin í Egilsstaðakirkju! (Þessa haustlegu mynd af kirkjunni tók Unnar Erlingsson.)
Aðalsafnaðarfundur Hofteigssóknar 18. október

Aðalsafnaðarfundur Hofteigssóknar hefur verið boðaður og verður haldinn miðvikudaginn 18. október kl. 20 í þjónustuhúsi safnaðarins. Aðalsafnaðarfundur er mikilvægur í lífi sóknarinnar og er sá vettvangur sem tekur ákvarðanir um hver verði í forsvari eigna og umsýslu. Formaður sóknarnefndar Hofteigssóknar á Jökuldal er Sólrún Hauksdóttir í Merki og hér má finna upplýsingar um þessa merku kirkju.
Fundurinn er opinn og öll sóknarbörn hafa málfrelsi og tillögurétt.
Sunnudagaskólinn er boðinn í heimsókn….

…í KIRKJUSELIÐ, FELLABÆ! *
Núna á sunnudaginn, 15. október, er sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju boðinn í heimsókn í Kirkjuselið í Fellabæ. Við byrjum kl. 10.30 eins og venjulega og eigum góða stund með söng, sögum og gleði.
Allir krakkar og vinir þeirra innilega velkomnir!
* Þetta er vegna Landsmóts Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar sem fær að nota Egilsstaðakirkju á þessum tíma.


