Author Archives: egilsstadakirkja

Sunnudagaskólinn hefst 14. janúar!

Sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur 14. janúar kl. 10:30 og verður í Safnaðarheimilinu á vormisseri. Að vanda verður mikill söngur, brúður og góður boðskapur, kirkjuleikfimi, litamynd og hressing í lokin. Hlökkum til að sjá ykkur!

Bíbí- æskulýðsfélag kirkjunnar byrjar aftur 11. janúar (fimmtudaga kl. 20:00 í Safnaðarheimilinu).

Kóræfingar hjá Barnakór Egilsstaðakirkju byrja aftur 24. janúar í kirkjunni.

Stjörnustund fyrir 1.-4. bekk í Kirkjuselinu Fellabæ byrjar aftur í lok janúar.

TTT-námskeið verður auglýst sérstaklega seinna á vorönn.

Þrettándamessa í Bakkagerðiskirkju

Bakkagerðiskirkja, Borgarfirði eystra:

Þrettándamessa verður laugardaginn 6. janúar kl. 11.00 (í stað messunnar sem féll niður á nýársdag vegna ófærðar).

Syngjum út jólin og heilsum nýja árinu saman. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Bakkasystur syngja.

Sóknarnefnd býður upp á súpu í Heiðargerði eftir messu. Verum öll velkomin!

Aftansöngur á gamlársdagskvöldi

Þann 31. desember, sem er gamlársdagur, verður að venju aftansöngur með hátíðarsöngvum Bjarna Þorsteinssonar í Egilsstaðakirkju kl. 18. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándor Kerekes, sem leikur eitthvað tryllt hátíðlegt í eftirspil! Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Kenn oss að telja daga vora,
að vér megum öðlast viturt hjarta.
(Sálm 90.12)

Annar jóladagur í kirkjunum okkar

26. desember, annar dagur jóla:

Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlistina. Einsöngur: Sigurbjörg Vera Ingvarsdóttir.

Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.

Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Barnakór Egilsstaðakirkju. Ljósaþáttur fermingarbarna. Jólaguðsþjónusta á Dyngju kl. 15:00.

„Sú þjóð, sem í myrkri gengur,
sér mikið ljós.
Yfir þau sem búa í landi náttmyrkranna
skín ljós.“
Jesaja 9.1

Velkomin til kirkju á helgri jólahátíð!

Jóladagur í kirkjunum okkar

Þann 25. desember, á jóladegi, eru hátíðarguðsþjónustur í fjórum kirkjum prestakallsins:

Áskirkja í Fellum:  Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.

Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju. Jólaguðsþjónusta á Fossahlíð kl. 15:00.

Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.

Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.

„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans,“
(Jóh 1.14)

Velkomin til kirkju á helgri jólahátíð!

Aðfangadagur og jólanótt

24. desember, á aðfangadegi, eru þessar athafnir í prestakallinu. Verum innilega velkomin í hlýjar og innihaldsríkar samverur.

Egilsstaðakirkja

Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans.

Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur: Margrét Lára Þórarinsdóttir.

Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Eiðakirkja: Jólanæturmessa kl. 22:30. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.

Þorláksmessa í kirkjunni

Þann 23. desember, á Þorláksmessu, hafa skapast fallegar og gefandi hefðir í Egilsstaðakirkju sem styðja við hátíðlegan og skemmtilegan undirbúning fyrir blessuð jólin.

Kl. 16 er opin söngstund í kirkjunni þar sem allir eru velkomnir og svo er farið „út að kanta“. Sándor organisti lýsir því sem:

Að kanta? …Vera og syngja saman, að fagna fæðingu Jesú. Að gleyma aðeins slæmu hlutunum og hugsa um það góða. Koma í hlý föt. Má líka komið með te. Við ætlum að fara á spennandi staði til að koma með smá hlýju. Hvar? Ég veit ekki, í dag vil að dreyma ég það. En draumdu líka og við finnum það saman.

Um kvöldið eru síðan Jólatónar í kirkjunni milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.

Guð gefi þér friðsælan og gleðilegan jólaundirbúning.

Líf og fjör í kirkjukórnum

Kór Egilsstaðakirkju fer mikinn í kringum jólin. Laugardaginn 16. desember söng kórinn í Hreindýragarðinum á Vínlandi en þar var opið hús og boðið upp á jólakakó. Þar var fullt af fólki og mikil stemning!

Miðvikudaginn 20. desember fer kórinn síðan í Vök og syngur fyrir baðgesti. Kórinn hefur upp raust sína kl. 18. Sándor organisti verður með hljómborðið og sr. Kristín með gítarinn sinn. Að sjálfsögðu verða baðfötin tekin með og tánum dýft í vakirnar að söng loknum.

Á Þorláksmessu 23. desember verður svo opin söngstund með kórnum í kirkjunni kl. 16 og síðan farið út á kanta. Þá höldum við út í rökkvað kvöldið og syngjum fyrir gesti og gangandi á völdum stöðum í bænum okkar.

Um kvöldið eru Jólatónar í kirkjunni milli kl. 22:00-23:00 þar sem Sándor organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.

Svo tekur sjálft jólahelgihaldið við og kórinn syngur við tvær athafnir þann 24. desember. Kl. 18 er hefðbundinn aftansöngur með hátíðartóni sr. Bjarna Þorsteinssonar og kl. 23 er jólanæturguðsþjónusta þar sem hátíðartónið er einnig flutt. Að ógleymdum öllum dásamlegu jólasálmunum!

Kór Egilsstaðakirkju óskar öllum árs og friðar um hátíðirnar og býður ykkur velkomin til að njóta fallegrar tónlistar í kirkjunni okkar.

Jólasálmakvöld í Áskirkju

Kór Áskirkju í Fellum býður til opinnar söngæfingar í Áskirkju með öllum góðu jólasálmunum, mánudaginn 18. desember kl. 20. Drífa Sigurðardóttir organisti leiðir og leikur undir. Hér er söngurinn í aðalhlutveri og talað mál í algjöru lágmarki.

Sálmarnir sem sungnir verða eru:

Kom, þú kom, vor Immanúel. 11

Ó Jesúbarn. 43

Guðs kristni í heimi,  1,3,4 og 5 erindi. 39a

Englakór frá himnahöll. 41

Nóttin var sú ágæt ein. 1,2,3 og 4 erindi. 30

Það aldin út er sprungið. 42

Bjart er yfir Betlehem. 53

Í Betlehem er barn oss fætt. 31

Ó hve dýrðleg er á sjá. 1,2,3 og 7 erindi. 61

Jesús þú ert vort jólaljós. 38

Sjá himins opnast hlið. 1, 4 og 6 erindi. 36

Í dag er glatt í döprum hjörtum. 1,2 og 5 erindi. 46

Heims um ból. 35

Verum innilega velkomin á þennan skemmtilega viðburð sem tryggir að við komumst í jólaskapið!

Helgihald og samkomur 3. sunnudag í aðventu

Þann 17. desember, þriðja sunnudag í aðventu er margt um að vera í kirkjunum okkar.

Egilsstaðakirkja: Helgistund með altarisgöngu og miklum söng kl. 10:30. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes.

Seyðisfjarðarkirkja: Jólastund sunnudagaskólans kl. 11:00.

Bakkagerðiskirkja: Aðventuhátíð kl. 20. Bakkasystur, sr. Þorgeir og Sándor. 

Innilega velkomin!