Author Archives: egilsstadakirkja

Kvöldmessa í Kirkjuselinu 3. mars kl. 18

Velkomin í kvöldmessu kl. 18 þann 3. mars í Kirkjuselinu Fellabæ. Við höldum áfram að fylgja Jesú á leið hans til Jerúsalem og atburða dymbilvikunnar og íhugum það í tali og tónum.

Félagar úr kór Áskirkju leiða söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur. Sr. Kristín Þórunn, fermingarbörnin og Bergsteinn meðhjálpari þjóna.

Innilega velkomin!

(Myndin er frá Gerardo Oberman í Argentínu og speglar guðspjall dagsins um Jesú í musterinu, Jóh 2.13-22)

Bænastund í hádeginu 1. mars

Fyrsta föstudag í mars hefur skapast sú hefð að ólíkar kirkjudeildir um allan heim sameinast á bænastund. Í ár er yfirskrift Bænadagsins „…..umberið og elskið hvert annað“ (Efesusbréfið 4.2) og hefur efni stundarinnar verið útbúið af kristnum konum í Landinu helga og Palestínu. Því verður miðjarðarhafsblær yfir Kirkjuselinu þann 1. mars.

Aðstæður í Landinu helga eru um þessar mundir ósegjanlega erfiðar í þeim stríðsátökum sem þar ríkja og bitna á þeim sem síst skildi. Hugur okkar og hjarta er með þeim sem líða og það viljum við undirstrika í þessari helgistund. Við fáum t.d. að heyra sögur kvenna sem lýsa aðstæðunum sem þær lifa við daglega.

Að lokinni helgistund verður boðið upp á léttar veitingar eins og þær finnast í eldhúsum við botn Miðjarðarhafs. Öllum er velkomið að leggja eitthvað á borðið.

Innilega velkomin öll í Kirkjuselið 1. mars kl. 12!

Konudagsmessa í Egilsstaðakirkju

Sunnudaginn 25. febrúar er konudagsmessa í Egilsstaðakirkju og hefst hún kl. 20. Þar gleðja Héraðsdætur undir stjórn Drífu Sigurðardóttur okkur með söng, við undirleik Sándors Kerekes. Jóney Jónsdóttir kennslustjóri í Menntaskólanum Egilsstöðum flytur hugvekju og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar. Íris Randversdóttir er meðhjálpari.

Innilega velkomin!

Biblíuleshópur

Biblíuleshópur hefst á Egilsstöðum miðvikudaginn 14. febrúar (öskudag) og mun hittast vikulega fram yfir páska. Við ætlum að hittast í þessari lotu á föstunni og í páskavikunni, á miðvikudögum kl. 17:00-18:15 í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju. Sjá nánar dagskrá lestranna hér að neðan. Þemað verður að þessu sinni „Símon Pétur og Jesús“ þar sem við mætum Jesú með augum Péturs, með áherslu á að horfa til píslargöngu Krists og upprisunnar. Við speglum Pétur í okkar eigin lífi, mistökum, efasemdum, sigrum og gleði. Þannig getum við notað föstuna sem andlegan undirbúningstíma fyrir íhugun dymbilviku og fögnuð páskanna. Við lesum saman og ræðum um textann út frá tiltekinni aðferð og efni en stefnum á að brjóta stundina upp með því að horfa á brot úr þáttunum „The Chosen“. Þátttaka er að kostnaðarlausu og hægt að koma eitt skipti, nokkur eða öll eftir því sem hentar. Ekki þarf að skrá þátttöku – nóg að mæta.

Biblíuleshópur Egilsstöðum, lestrar á föstunni og í páskavikunni 2024

Samverur miðvikudaga kl. 17:00-18:15 í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju

Þema: Símon Pétur og Jesús

Dags.EfniTexti
14. feb.Fiskidrátturinn mikliLúkas 5.1-11
21. feb.Pétur gengur á vatniMatteus 14.22-34
28. feb.Símon verður kletturinnMatteus 16.13-23
6. marsMeistarinn sem þrællJóhannes 13.1-17
13. marsJesús tekinn höndumJóhannes 18.1-14
20. marsHiminn og jörð munu líða undir lokLúkas 22.31-33 & 54-62
27. marsDymbilvika, enginn biblíulestur – sækjum gjarnan helgihald dymbilviku og páska í kirkjunum 
3. aprílElskar þú mig?Jóhannes 21.15-19
Ath.Heimsókn frá færeyska hópnum er áætluð í byrjun apríl 

Kröftug lofgjörð og söngur í gospelmessu á sunnudaginn

Sunnudagskvöldið 11. febrúar kl. 20:00 verður gospelmessa í Egilsstaðakirkju. Kór Egilsstaðakirkju mun leiða okkur í lofgjörð og léttri gospelsveiflu undir stjórn Sándors Kerekes sem að þessu sinni verður við flygilinn. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Meðhjálpari er Guðrún María Þórðardóttir.

Og við minnum einnig á sunnudagaskólann alla sunnudaga í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju kl. 10:30

Verið velkomin!

Fimmtíu fermingarbörn á fræðslukvöldi

Í kvöld, þriðjudaginn 6. febrúar, verður risa viðburður í Egilsstaðakirkju, þegar öll fermingarbörn á Héraði koma saman ásamt foreldrum á fræðslukvöldi.

Á dagskrá er að hrista okkur saman í því fermingarverkefninu sem núna stendur sem hæst og stefnir á sjálfa ferminguna í vor og sumar.

Við förum í leiki, syngjum bestu sálmana, rifjum upp það helsta sem hefur verið á dagskrá í vetur og fræðumst um ferminguna og hvernig hún tengist skírninni og messunni!

Á þessari kvöldstund skapast einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að kynnast því sem fermingarkrakkarnir þeirra eru að fást við og til að njóta samveru í gefandi umhverfi.

Allir prestarnir plús Bella og Sándor verða með – og þau hlakka öll til!

Fögnuður og friður

Stjörnustundin byrjar!

Stjörnustund er fjölbreytt og skemmtilegt kirkjustarf fyrir krakka í 1.-4. bekk á Héraði. Stjörnustund er á hverjum þriðjudegi í Kirkjuselinu Fellabæ, kl. 16-17. Umsjón hafa sr. Kristín og aðstoðarleiðtogar. Allir krakkar velkomnir!

Kvöldmessa í Kirkjuselinu 28. janúar

Innilega velkomin í kvöldmessu í Kirkjuselinu Fellabæ, kl. 20, sunnudaginn 28. janúar.

Félagar úr kór Áskirkju leiða söfnuðinn í söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur og fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og prédikar.

Hittumst og yljum okkur í hlýju samfélagi við upphaf þorra!

Sunnudagurinn 21. janúar

Helgihald 21. janúar, síðasta sunnudag eftir þrettánda:

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju kl. 10:30. Mikill söngur, saga, Rebbi og Mýsla mæta á svæðið, litastund og hressing að vanda. Umsjón hafa Elísa, Guðný, Ragnheiður, Þorgeir og Hlín Behrens við hljóðfærið. Athugið að sunnudagaskólinn hittist í Safnaðarheimilinu nú á vorönninni.

Guðsþjónusta á Dyngju kl. 17:00 (Hamar 3. hæð). Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur.

Kvöldmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00.

Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir safnaðarsönginn. Meðhjálpari Íris D. Randversdóttir. Lesari María Ósk Kristmundsdóttir. Fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Kaffisopi í lokin. Verum öll velkomin!