Author Archives: egilsstadakirkja

Sunnudagurinn 7. apríl

Sunnudaginn 7. apríl verður sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 10:30 í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju. Biblíusaga, söngur, brúður, hressing og litamynd.

Vegna gulrar veðurviðvörunar er gospelmessunni sem vera átti í Bakkagerðiskirkju frestað til sunnudagsins 21. apríl kl. 20:00.

Af sömu ástæðu er héraðsfundi Austurlandsprófastsdæmis, sem vera átti í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn, frestað til 28. apríl kl. 10:00.

Páskadagur

Velkomin til messu í Egilsstaðakirkju kl. 8:00 á páskadagsmorgni! – Páskadagsmessum í Áskirkju, Seyðisfjarðarkirkju og Fossahlíð Seyðisfirði, Sleðbrjótskirkju og Þingmúlakirkju er aflýst vegna gulrar veðurviðvörunar. Páskamessunni í Eiðakirkju er frestað til 1. apríl (annars í páskum) kl. 13:00.

Hjalti Þór Bergsson – útför

Er gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag kl 24. mars kl 14.00.

Hægt er að fylgjast með streymi hér

Páskastund fjölskyldunnar

Á pálmasunnudag 24. mars kl 10.30 í Egilsstaðakirkju og boðunardegi Maríu mánudaginn 25. mars kl 17.00 í Seyðisfjarðarkirkju

Helgihald – Dymbilvika og páskar

24. mars, pálmasunnudagur:

Egilsstaðakirkja: Páskastund fjölskyldunnar kl. 10.30. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sándor Kerekes við hljóðfærið og leiðtogar sunnudagaskólans sjá um stundina. Eftir stundina er páskaeggjaleit, páskaföndur og veitingar.

Eiðakirkja: Fermingarmessa kl. 11.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju.

25. mars, mánudagur:

Seyðisfjarðarkirkja: Páskastund fjölskyldunnar kl. 17.00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Hlín Pétursdóttir Behrens við hljóðfærið og leiðtogar sunnudagaskólans sjá um stundina. Eftir stundina er páskaeggjaleit, páskaföndur og veitingar.

28. mars, skírdagur:

Egilsstaðakirkja: Fermingarmessa kl. 10.30. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, sr. Þorgeir Arason og Berglind Hönnudóttir svæðisstjóri æskulýðsmála þjóna. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Vallaneskirkja: Passíusálmasöngur kl. 17.00. Umsjón: Hlín Pétursdóttir Behrens og sönghópur.

Egilsstaðakirkja: Helgistund og máltíð kl. 19.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Atburða skírdagskvölds minnst með helgri stund og kærleiksmáltíð – kjötsúpu. Þau sem hafa tök á, greiða 2000 kr. fyrir súpuna (millifærsla eða peningur). Almennur söngur. Einsöngur: Matthías Þór Sverrisson.

29. mars, föstudagurinn langi:

Valþjófsstaðarkirkja: „Píslargangan í Fljótsdal“ kl. 11.00. Gengið frá Valþjófsstað í Skriðuklaustur og áð á leiðinni til lestra úr píslarsögunni og Passíusálmunum. Samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar og Egilsstaðaprestakalls.

Seyðisfjarðarkirkja: Passíusálmasöngur kl. 11.00. Umsjón: Hlín Pétursdóttir Behrens og sönghópur.

Egilsstaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 20.00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Karlahópur syngur.

30. mars, laugardagur fyrir páska:

Hjaltastaðarkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlistina. Dagskrá og veitingar í Hjaltalundi eftir stundina.

31. mars, páskadagur:

Egilsstaðakirkja: Árdegismessa kl. 8.00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Seyðisfjarðarkirkja: Árdegismessa kl. 9.00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Áskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.

Fossahlíð, Seyðisfirði: Páskaguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Sleðbrjótskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.

Eiðakirkja: Hátíðarmessa og ferming kl. 14.00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju.

Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.

1. apríl, annar páskadagur:

Dyngja, Egilsstöðum: Páskaguðsþjónusta kl. 17.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.

Kynningarfundur vegna biskupskjörs

Kynningarfundur fyrir Austurlandsprófastsdæmi vegna kosningar til biskups Íslands fer fram í Egilsstaðakirkju á fimmtudag, 21. mars, og hefst kl. 17:00.

Þrjú eru í kjöri til biskups Íslands: sr. Elínborg Sturludóttir, prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík, sr, Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur Lindakirkju í Kópavogi og sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur Grafarvogskirkju. Þau þrjú munu öll halda framsögur og sitja fyrir svörum á fundinum í Egilsstaðakirkju, sem er einn af átta kynningarfundum vítt og breitt um landið í aðdraganda biskupskjörsins. Til fundarins eru boðuð þau sem hafa kosningarétt í Austurlandsprófastsdæmi, sóknarnefndarfólk (aðal- og varamenn), kjörfulltrúar prestakallanna, prestar, djákni og kirkjuþingsfulltrúar í prófastsdæminu.

Fundinum verður streymt hér (á kosningavef þjóðkirkjunnar).

Æskulýðsdagur í Egilsstaðakirkju – FLÆÐIMESSA

Sunnudaginn 17. mars kl. 20 er mikil hátíð í Egilsstaðakirkju þar sem öll fermingarbörn prestakallsins leggjast á eitt ásamt prestunum Kristínu og Þorgeiri, Bellu fræðslufulltrúa, kórnum og organistanum við að skapa ógleymanlega helgihaldsupplifun með virkri þátttöku.

Frumflutt verður nýtt tónverk eftir Sándor Kerekes sem fermingarbörn hafa æft og ber nafnið LIFANDI VATN og byggir á sögunni um Samversku konuna við brunninn sem gaf Jesú að drekka.

Eftir stundina verða bornar fram brauðbollur í boði Kirkjuselskrakkanna. ÖLL ERU VELKOMIN – EKKI MISSA AF. 

50 ára Egilsstaðakirkja ljósum prýdd

Nýr útiljósabúnaður við Egilsstaðakirkju var tekinn í notkun að lokinni tónlistarmessu í kirkjunni á sunnudagskvöldið, 10. mars kl. 20:00. Þetta var um leið fyrsti liðurinn í að fagna 50 ára afmæli kirkjunnar í ár.

Fyrir rúmu ári síðan tók sóknarnefnd Egilsstaðakirkju ákvörðun um kaup og uppsetningu nýrrar útilýsingar við kirkjuna, sem er jú eitt helsta tákn Egilsstaðabæjar og sést víða að. Slíkt var löngu tímabært en mörg undanfarin ár hefur kirkjan verið lýst upp í skammdeginu með litlum kösturum sem upphaflega voru aðeins settir upp til bráðabirgða. 

Nýi ljósabúnaðurinn kemur frá fyrirtækinu Ligman og samanstendur af 24 kösturum á fjórum staurum hringinn í kringum kirkjuna, auk sérstakra kastara fyrir turninn. Birtan af kösturunum er hlý og falleg auk þess sem búnaðurinn býður upp á ýmsa litamöguleika. Starfsmenn Tréiðjunnar Einis hf í Fellabæ undir forystu Sigurðar Sigurjónssonar og Guðmundar Halldórssonar rafvirkja önnuðust uppsetningu og tengingu búnaðarins, en það reyndist krefjandi og tímafrekt verkefni á klöppinni á Gálgaási.. Formaður sóknarnefndar Egilsstaðakirkju er Eydís Bjarnadóttir og lýsir hún ánægju sinni með hvernig til hafi tekist. „Ljósaverkefnið er hluti af þeim framkvæmdum sem verið hafa við kirkjuna undanfarið ár og hafa aðeins verið mögulegar vegna þeirrar fjármögnunar sem Egilsstaðasókn hefur notið frá Jöfnunarsjóði sókna,″ segir Eydís.

Egilsstaðakirkja var vígð 16. júní árið 1974 og fagnar því 50 ára afmæli sínu á þessu ári. Ljósahátíðin á sunnudag er fyrsti liðurinn í afmælisárinu, en ýmsir viðburðir eru fyrirhugaðir á árinu af þessu tilefni. Hátíðarmessa með biskupi Íslands verður á vígsluafmælisdaginn, 16. júní nk. og sýning á handverki tengdu trú og kirkju verður sett upp í Sláturhúsinu í sumar. Afmælishátíð barnanna og afmælistónleikar eru svo á döfinni í haust.

Messan sl. sunnudag var fjölsótt, en þar fluttu söngnemendur úr tónlistarskólunum á Egilsstöðum og Fellabæ kafla úr verkinu Stabat mater eftir Pergolesi ásamt annarri tónlist. Kór Egilsstaðakirkju söng einnig undir stjórn Sándors Kerekes organista, sem einnig lék á sembal. Virág Kerekesne Meszöly lék á selló og Mairi Louisa McCabe á fiðlu.  Sóknarprestur predikaði og þjónaði fyrir altari. 

Sveinn Jónsson verkfræðingur hefur allt frá upphafi haft umsjón með verkefninu fyrir hönd sóknarnefndar og kynnti hann nýju ljósin við lok messunnar, en kirkjukórinn söng lagið “Ég horfi eftir lífsins ljósi” eftir heimamanninn Hrein Halldórsson. Söfnuðurinn fór svo út á bílaplan kirkjunnar og söng við gítarleik organistans “Amen – Innst í mínu hjarta skal ljósið lýsa bjart” meðan Sveinn tendraði ljósin ásamt Jónasi Þór Jóhannssyni, meðhjálpara og fyrrverandi sóknarnefndarformanni. Almenn ánægja var með lýsinguna og ýmsa litamöguleika hennar, sem safnaðarfólk fékk að virða fyrir sér.

Útför sr. Cecils Haraldssonar

Sr. Cecil Kristinn Haraldsson, fyrrverandi sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalls, lést þann 4. mars síðast liðinn, 81 árs að aldri. Útför hans verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 14. mars, og hefst athöfnin kl. 14:00. Streymi frá útförinni má nálgast hér.

Cecil fæddist í Stykkishólmi þann 2. maí árið 1943. Foreldrar hans voru Haraldur Ísleifsson og Kristín Cecilsdóttir. Cecil tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1962 og theol. kand frá Lundarháskóla árið 1980. Hann tók framhaldsnám í guðfræði og heimspeki við sama háskóla 1980-1983 og tók fil. kand. árið 1983. Hann tók lestrarpróf frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1986.

Cecil starfaði sem kennari við Barnaskólann á Ísafirði 1963-64 og við Miðskólann í Stykkishólmi 1964-1970. Hann var skólastjóri Barna- og unglingaskólans á Laugum í Dalasýslu 1970-1971. Hann var kennari við Víghólaskóla í Kópavogi 1971-1973 og skólastjóri Gagnfræðaskólans í Neskaupsstað 1973-1974 og varð síðan kennari við Garðaskóla í Garðabæ 1974-1976.

Cecil var vígður þann 22. janúar árið 1984 í Dómkirkjunni í Lundi í Svíþjóð og varð prestur í Burlöv í Suður Svíþjóð 1984-1986. Hann varð forstöðumaður öldrunarþjónustu á Akureyri árin 1986-1988 og prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík frá ágúst 1988 til 1997. Sr. Cecil var settur sóknarprestur í Seyðisfjarðarprestakalli frá 1. júlí 1998 og skipaður frá 1. september 1999 þar sem hann starfaði til starfsloka.

Fyrri kona sr. Cecils var Ólína Salome Torfadóttir. Börn þeirra eru Kristín Haralda og Haraldur Ísleifur.

Eftirlifandi eiginkona sr. Cecils er Kristín Guðveig Sigurðardóttir. Þau eiga eina dóttur, Þorbjörgu Ölmu.

Stjúpdóttir sr. Cecils og dóttir Kristínar er Guðlaug Vala Smáradóttir.

Tónlistarmessa – Ljósahátíð í Egilsstaðakirkju

Helgihald sunnudaginn 10. mars:

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskólinn að vanda kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu.

Tónlistarmessa – Ljósahátíð kl. 20:00 í kirkjunni. Söngnemar Hlínar Pétursdóttur Behrens koma fram. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan söng. Organisti Sándor Kerekes. Prestur Þorgeir Arason. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson.

Við messulok verður nýr útiljósabúnaður við kirkjuna tekinn í notkun.

Seyðisfjarðarkirkja:

Messa kl. 11:00. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur og leiðir almennan söng undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens organista. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.

Yfirskrift þessa sunnudags, sem er 4. sunnudagur í föstu, er BRAUÐ LÍFSINS.

Verum velkomin til kirkju á sunnudag!