Author Archives: egilsstadakirkja

Útimessa í Selskógi

Photo by Matthias Cooper on Pexels.com

Útimessan í Selskógi við gamla útileikhúsið verður sunnudaginn 23. júní kl. 10.30. Við njótum góðra takta frá harmónikku Torvalds Gjerde og sr. Kristín Þórunn messar. Við syngjum létta sumarsálma og hlýðum m.a. á þessi orð úr lexíu dagsins:

Fellið réttláta dóma 
og sýnið hver öðrum miskunnsemi og samúð. 
Níðist hvorki á ekkjum, munaðarleysingjum, 
aðkomumönnum né fátæklingum 
og hyggið ekki á ill ráð 
hver gegn öðrum í hjarta yðar. 

Viðráðanleg ganga er frá bílastæðunum upp að leikhúsinu. Fisléttar veitingar eftir stundina.

Innilega velkomin!

Eiríksstaðakirkja – Sumarmessa og ferming

Í Eiríksstaðakirkju á Efra-Jökuldal er að jafnaði messa einu sinni á ári, að sumarlagi. Messað verður nú á laugardaginn, 22. júní kl. 11.00. Að þessu sinni verða tveir drengir fermdir í messunni. Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Almennur safnaðarsöngur. Meðhjálpari Halla Eiríksdóttir. Hringjari Gréta Þórðardóttir. Velkomin.

Glefsur úr sögu Egilsstaðakirkju

Ef hægt væri að ferðast með tímavél til ársins 1974 er ekki víst að þau, sem flutt hafa til Egilsstaða á seinni árum, myndu kannast við sig í bænum árið sem kirkjan var vígð. Íbúar voru vitaskuld miklu færri, malbikaðar götur örfáar, Kaupfélagið mikilvægasti hlekkurinn í atvinnulífinu og þannig mætti áfram telja. En það var hugur í Egilsstaðabúum að fá sína eigin kirkju og mörgum þótti það mikilvægur liður í að þetta vaxandi samfélag stæði á eigin fótum.

Vígsla Egilsstaðakirkju 16.06 1974
Fyrir altari tveir af fyrrverandi prestum Vallanessóknar þeir séra Gunnar Kristjánsson (f.1945) og séra Marinó Kristinsson (f.1910 – d.1994). Til hliðar við altarið situr þáverandi sóknarnefnd þau Aðalsteinn Halldórsson (f.1923 – d.1994), Sigríður Fanney Jónsdóttir (f.1894 – d.1998) og Þórður Benediktsson (f.1919 – d.1977).

Strax við fyrsta skipulag þorpsins voru ráðamenn Egilsstaðahrepps meðvitaðir þess að fullburða sveitarfélag hlyti að hafa kirkju á lykilstað í byggðinni. Árið 1948 var gert ráð fyrir að kirkja risi við enda Lagarássins – þ.e. vestarlega innst á núverandi bílastæði kirkjunnar. Einnig var í upphafi lagt til að grafreitur bæjarins yrði nærri kirkjunni, eða á uppfyllingu á Gálgási. Sem kunnugt er átti hvort tveggja eftir að breytast. Samþykkt var tillaga fjölskipaðrar nefndar um kirkjugarðsmálin að grafreiturinn yrði á núverandi stað í Hringtjarnarmó, milli Kolls og Kletta. Þar var jarðsett í fyrsta skipti 1950. Þegar Hilmar Ólafsson (1936-1986) kom svo til sögunnar sem arkitekt Egilsstaðakirkju þá færði hann kirkjuna úr samhengi þorpsins og fremur í samhengi héraðsins með því að staðsetja hana uppi á Gálgaásnum þar sem framlengdar veglínur að byggðinni skerast.

Egilsstaðasöfnuður var formlega stofnaður síðla hausts 1960 og fyrstu árin fóru guðsþjónustur fram í barnaskólanum. Fyrstu sóknarnefndina skipuðu Sigríður Fanney Jónsdóttir, Margrét Gísladóttir og Þórður Benediktsson. Kirkjubyggingin sjálf var svo mikið átak, og lauk ekki fyrr en með aðkomu sveitarfélagsins í tilefni af þjóðhátíðarátaki vegna 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar. Byggingarfélagið Brúnás var aðalverktakinn og Þórhallur Eyjólfsson byggingameistari. Hr. Sigurbjörn Einarsson biskup tók fyrstu skóflustunguna að kirkjunni árið 1968 og vígði hana þann 16. júní 1974. Daginn eftir vígsluna var svo fyrsta fermingin í kirkjunni.

Safnaðarstarf og helgihald hefur alla tíð verið fjölbreytt og tónlistarlíf skipt miklu máli. Kór Egilsstaðakirkju er reyndar eldri en kirkjan þar sem hann var stofnaður undir nafninu Kirkjukór Egilsstaðahrepps árið 1957. Orgelið kom í kirkjuna 1978 og var það enn eitt þrekvirki safnaðarfólks þrátt fyrir erfiðan fjárhagsgrundvöll á þessum árum.

Byggt á grein sr. Vigfúsar Ingvars Ingvarssonar, sóknarprests Egilsstaðakirkju 1976-2010, sem birtist í tímaritinu Glettingi nú í sumar, en þar má fræðast miklu meira um sögu kirkjunnar.

Hátíðarmessa – Egilsstaðakirkja 50 ára

Egilsstaðakirkja var vígð þann 16. júní árið 1974. Nú á sunnudaginn, 16. júní kl. 14:00, fögnum við 50 ára afmæli kirkjunnar með hátíðarmessu í kirkjunni okkar.

Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, mun predika og lýsa blessun. Prestsþjónustuna annast, auk biskups, núverandi og fyrrverandi prestar Egilsstaðakirkju: Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson og sr. Þorgeir Arason, og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fv. vígslubiskup Hólum.

Við messuna verður Hermann Eiríksson heiðraður fyrir ómetanlegt framlag sitt til kirkjustarfsins í yfir 50 ár.

Kór Egilsstaðakirkju syngur ásamt gestum. Organisti og kórstjóri: Sándor Kerekes. Einsöngur: Adrian Peacock, bassi, og Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran. Mairi L. McCabe leikur á fiðlu og víólu og Virág Kerekesné Mészöly á óbó.

Meðhjálparar: Guðrún María Þórðardóttir og Íris Randversdóttir.

Lesarar: András Kerekes, Björn Ingimarsson, Elísa Petra Benjamínsdóttir Bohn, Gísli Þór Pétursson, Kristófer Hilmar Brynjólfsson og María Ósk Kristmundsdóttir.

Að messu lokinni býður Kvenfélagið Bláklukka í afmæliskaffi kirkjunnar í Hlymsdölum, þar verður glatt á hjalla og við munum m.a. taka lagið.

(Myndina af kirkjunni tók Unnar Erlingsson.)

Annað helgihald um komandi helgi:

Möðrudalskirkja:

Fermingarmessa laugardaginn 15. júní kl. 13:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Halldór Warén.

Kirkjubæjarkirkja:

Fermingarmessa sunnudaginn 16. júní kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní: 

Egilsstaðakirkja: Fjölskyldustund kl. 10:30 – skrúðgangan fer frá kirkjunni kl. 11:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Börn syngja og Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs tekur lagið.

Sleðbrjótskirkja: Fermingarmessa kl. 14:00. Prestur er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, Jón Ólafur Sigurðsson organisti leiðir kór kirkjunnar og söfnuðinn í söng. 

Seyðisfjarðarkirkja: Fermingarmessa kl. 11:00. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Við báðar athafnir þjónar sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Hlín Pétursdóttir Behrens organisti leiðir kór kirkjunnar og söfnuðinn í söng.

„Sæl eru þau sem búa í húsi þínu…“

„Sæl eru þau sem búa í húsi þínu“ er yfirskrift sýningar sem verður opnuð í Sláturhúsinu laugardaginn 8. júní kl 13.  Sýndir verða munir og myndir úr einkaeigu eða hafa verið gefnir Egilsstaðakirkju, og tengjast stóru stundunum í lífi fólks í gleði og sorg. 

Sýningin er í tilefni 50 ára afmælis Egilsstaðakirkju, stendur frá 8.-21. júní og er opin á opnunartímum Sláturhússins.

Eydís Bjarnadóttir, formaður sóknarnefndar Egilsstaðasóknar, hefur leitt undirbúning og skipulag sýningarinnar en að því verkefni hefur einnig komið fjöldi sjálfboðaliða sem tengjast starfi Egilsstaðakirkju frá vígslu hennar 16. júní 1974. Sýningin leggur áherslu á persónulega tengingu við kirkjulegar athafnir á stóru lífsstundunum og t.d. má nefna heimagerða skírnarkjóla, fermingarföt, brúðkaupsföt og umbúnað um líkkistur. 

Sýningin „Sæl eru þau sem búa í húsi þínu…“ er ekki síst hugsuð til að lyfta upp mikilvægi sóknarkirkjunnar á stóru stundum lífsins og framlaginu til þeirra sem er kannski ekki lyft upp öllu jafna. Af þessu tilefni fögnum við sérstaklega ótal handtökum kvenna sem í hógværð og lítillæti hafa saumað, bakað, prjónað, straujað, skreytt með ást og umhyggju, og þannig skapað umgjörð sem rammar inn upplifanir og minningar. 

Á opnunardegi sýningarinnar koma fram hljómsveitin Austurhljóð og Kór Egilsstaðakirkju. Þau stíga á stokk kl. 14, svo ekki missa af því!

Egilsstaðakirkja þakkar Sláturhúsinu, Höllu Ormarsdóttur, Heiðdísi Höllu Bjarnadóttur og ÖLLUM þeim fjölda sem gera sýninguna að veruleika, af þessu gleðilega tilefni.

EGILSSTAÐAKIRKJA – 50 ÁRA AFMÆLI

Tónlistarstundir 2024

Sjómannadagurinn, 2. júní

Áskirkja, Fellum:

Fermingarmessa kl. 11:00. Prestur Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju syngur. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.

Bakkagerðissókn:

Guðsþjónusta við höfnina á Borgarfirði eystra á sjómannadaginn kl. 11.00. Prestur Þorgeir Arason. Bakkasystur syngja sjómannadagssálma og létt gospellög undir stjórn Sándors Kerekes við hljóðfærið. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir. (Ef veður reynist óhagstætt messum við í Bakkagerðiskirkju.)

Seyðisfjarðarkirkja:

Kvöldmessa kl. 20:00 á sjómannadaginn. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Sveinbjörn Orri Jóhannsson flytur hátíðarræðu. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.

Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar

Hvítasunna 2024

Hvítasunnan er ein af þremur stórhátíðum kirkjunnar. Hún er hátíð heilags anda og stofnhátíð kristinnar kirkju. Þá er þess minnst að Drottinn sendi postulunum heilagan anda, þeir hófu að tala tungum og fengu djörfung til að boða trúna á Jesú Krist. Dagskráin í Egilsstaðaprestakalli um komandi hvítasunnu er þessi:

Hvítasunnudagur, 19. maí:

Egilsstaðakirkja: Hátíðarmessa kl. 10:30 – Ferming. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Áskirkja: Hátíðarmessa kl. 11:00 – Ferming. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.

Seyðisfjarðarkirkja: Göngumessa kl. 11:00 í samstarfi við Gönguklúbb Seyðisfjarðar. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Dyngja, Egilsstöðum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 17:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Félagar úr Kór Egilsstaðakirkju syngja.

Annar í hvítasunnu, 20. maí:

Vallaneskirkja: Fermingarmessa kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.

Egilsstaðakirkja: Vortónleikar Kórs Egilsstaðakirkju kl. 17:00. Stjórnandi Sándor Kerekes. Mairi M. McCabe leikur á víólu og barnahljómsveit kirkjunnar spilar. Aðgangur ókeypis.