Author Archives: egilsstadakirkja
Bakkagerðiskirkja: Göngumessa – FRESTAÐ – NÝ DAGSETNING AUGLÝST SÍÐAR
Síðsumarmessan okkar í Bakkagerðiskirkju verður að þessu sinni göngumessa!
Við mætum í kirkjuna klukkan 20:00 á þriðjudagskvöld (20. ágúst) og byrjum samveruna með stuttri helgistund í kirkjunni. Síðan fáum við okkur hressandi göngu um þorpið og stoppum á nokkrum stöðum til að syngja og biðja fyrir byggðarlaginu. Við fáum einnig að heyra fróðleiksmola og jafnvel ljóð tengd staðháttum og eflaust munu minningar um þekkta Borgfirðinga fljóta með. Hringurinn endar í Safnaðarheimilinu með lokasálmi og kaffisopa.
Prestur er Þorgeir Arason, Sándor Kerekes og Bakkasystur leiða tónlistina og meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.
Sunnudagurinn 25. ágúst
Þrjár guðsþjónustur verða í Egilsstaðaprestakalli á sunnudaginn, 25. ágúst:
Á uppskeruhátíð Þinghánna verður fjölskyldumessa í Hjaltastaðarkirkju kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina. Um tónlistina sjá Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar.
Kirkjubæjarkirkja: Messa kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur. Einsöngur Auður Jónsdóttir. Kaffisala Kvenfélags Hróarstungu í Tungubúð að messu lokinni.
Egilsstaðakirkja: Kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna. Sándor Kerekes organisti og félagar úr Kór Egilsstaðakirkju leiða tónlistina. Fermingarbörn næsta vors á Héraði boðin sérstaklega velkomin til kirkju. Kynningarfundur um fermingarstarfið eftir messu. Upplýsingar og skráning í fermingu 2025 – smellið hér.
Guðsþjónusta tveggja siða

SUNNUDAGINN 18. ÁGÚST KL. 14 verður hin árlega guðsþjónusta tveggja siða á rústum hinnar gömlu klausturkirkju á Skriðuklaustri. Prestar eru sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Pétur Kovacik prestur Kaþólsku kirkjunnar á Austurlandi. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson, meðhjálparar eru Friðrik Ingólfsson og Skúli Björn Gunnarsson. Verið öll innilega velkomin.
Messa í Egilsstaðakirkju 4. ágúst kl. 10:30

Á sunnudagsmorgni um verslunarmannahelgina, þann 4. ágúst, verður messa í Egilsstaðakirkju kl. 10:30 árdegis. Við fylgjum einföldu messuformi, syngjum saman Guði lof, íhugum orðið og neytum máltíðar Jesú. Sr. Þorgeir Arason predikar og leiðir helgihaldið. Tryggvi Hermannsson leiðir tónlistina. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin.
Valþjófsstaðarkirkja – Messa 28. júlí
Sunnudaginn 28. júlí verður sumarmessa í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal og hefst hún kl. 20:00 um kvöldið.
Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur. Auður Jónsdóttir syngur forsöng í miskunnarbæn. Lesarar eru Halla Auðunardóttir og Kristófer Hilmar Brynjólfsson. Meðhjálpari er Friðrik Ingólfsson.
Verum öll velkomin til helgrar stundar á sumarkvöldi!
Messa í Klyppstaðarkirkju 21. júlí

Árleg messa í Klyppstaðarkirkju í Loðmundarfirði fer að þessu sinni fram sunnudaginn 21. júlí kl. 14:00. Þangað eru allir velkomnir.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Bakkasystur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar leiða safnaðarsöng. Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.
Eftir messu bjóða sjálfboðaliðar frá Borgarfirði í kirkjukaffi í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í Loðmundarfirði.
Kirkjan á Klyppstað í Loðmundarfirði er látlaus og formfögur timburkirkja, reist árið 1895. Yfirsmiður var Jón Baldvin Jóhannesson, bóndi í Stakkahlíð. Klyppstaður fór í eyði 1962 og önnur byggð í Loðmundarfirði lagðist af upp úr 1970. Kirkjan stendur enn og hafa miklar endurbætur verið gerðar á henni. Árið 1990 var hún friðuð.
Athugið að til kirkjunnar þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
Sumarmessa í Áskirkju í Fellum

Árleg sumarmessa í Áskirkju í Fellum verður sunnudaginn 14. júlí kl. 14. Sr. Kristín Tómasdóttir þjónar og Drífa Sigurðardóttir stýrir kór Áskirkju styrkri hendi. Meðhjálparar eru Bergsteinn Brynjólfsson og Kristófer Hilmar Brynjólfsson.
Innilega velkomin í þessa fallegu kirkju á þessum fallega tíma ársins!
Skógarmessa 7. júlí

Við endurtökum leikinn og höfum aðra útimessu í Selskógi, sunnudaginn 7. júlí kl. 10.30. Við íhugum skírnina og vatnið í umhverfinu okkar og syngjum ljúfa sálma. Sr. Kristín þjónar og söfnuðurinn syngur í grænum skóginum.
Messan er í gamla útileikhúsinu en um 5 mínútna léttur gangur er þangað frá bílastæðinu.
Mjög létt kirkjukaffi eftir messu – innilega velkomin öll!
Ferming í Hofteigskirkju og kvöldmessa í Eiðakirkju


Hofteigskirkja
Ferming og messa laugardaginn 29. júní kl 13 .
Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgel og leiðir safnaðarsöng,
sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar.
Eiðakirkja
Sumarmessa Eiðakirkju verðu sunnudagskvöldið 30. júní kl 20.00.
Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og
kór Eiðakirkju leiðir söng.
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar.
Útför Bjarna Árnasonar
verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag kl 14.00. Hægt er að fylgjast með streymi frá útförinni hér



