Flæðimessa, kaffihús og sunnudagaskóli 22. mars
Egilsstaðakirkja – Helgihald sunnudaginn 22. mars:
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 10:30. Söngvarnir, brúðurnar, litamyndin og hressingin á sínum stað!
Flæðimessa í kirkjunni kl. 20:00. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson og sr. Þorgeir Arason þjóna. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándors Kerekes organista. Fermingarhópur vetrarins tekur virkan þátt í stundinni. Frumflutt verður nýtt lag eftir Sándor við texta Bergljótar Höllu Kristjánsdóttur. Flæðistund verður í messunni þar sem hægt verður að fara á milli nokkurra stöðva í kirkjunni og upplifa helgihald með óhefðbundnum hætti.
Eftir flæðimessuna mun Bíbí – Æskulýðsfélag vera með kaffihús í Safnaðarheimilinu til styrktar ferð sinni á Landsmót í apríl. Um að gera að kaupa sér kökusneið eða pizzasnúð eftir messu og styrkja krakkana.
Posted on 20/03/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0