Sunnudagaskóli og Kvöldmessa í Kirkjuselinu 15. febrúar
Sunnudagskólinn verður á sínum stað kl. 10:30 í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju
Verið velkomin í kvöldmessu með Taizé sálmum í Kirkjuselinu í Fellabæ kl. 18.00 næsta sunnudagskvöld
Við ætlum að staldra við í asa hversdagsins og taka andartakið frá til að eiga stund með Guði og sjálfum okkur.
Sálmarnir eru all flestir svokallaðir Taize sálmar, einfaldir bæna- og lofgjörðarsálmar. Kór Áskirkju leiðir sönginn undir stjórn Drífu Sigurðardóttur. sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar.
En hvað er Taize ? Taizé-söngur á uppruna sinn í samnefndu sveitaþorpi í Frakklandi. Allt frá síðari heimsstyrjöld hefur evangelískt bræðrafélag haft þar aðsetur sitt og mótað einfalt helgihald, sem hefur samfélag og frið milli manna og þjóða að markmiði sínu. Margt fólk heimsækir Taizé ár hvert og flytur með sér hugsjónina og söngvana heim. Enda gætir áhrifa Taizé um allan heim, ekki síst í samkirkjulegu starfi, þar sem lögð er áhersla á systkinasamfélag allra kristinna manna.
Hér á Íslandi hafa Taizé-messur verið haldnar víða og með mismunandi sniði. Tvennt er þó ávallt haft í heiðri, söngvarnir, sem kenndir eru við Taizé, og markmiðið, að miðla sátt og einingu. Látið sættast við Guð, segir í helgri bók (II. Kor. 5.20).
Taizé-kvöldsöngurinn hjálpar okkur að ná sáttum, að sættast við okkur sjálf, annað fólk, lífið og Guð. Verið velkomin
Posted on 11/02/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0