Stjörnustund að hefjast að nýju!

Stjörnustund – kirkjustarf fyrir 6-9 ára krakka – er að hefjast í Kirkjuselinu í Fellabæ á þriðjudögum kl. 15:15-16:15.

Umsjón hefur sr. Jarþrúður Árnadóttir (jarthrudur@kirkjan.is) ásamt aðstoðarleiðtogum þeim Sigríði Margréti og Bryndísi Hólm.

Hér er dagskráin næstu vikur með fyrirvara um breytingar. Allir krakkar í 1.-4. bekk velkomnir, þetta er ókeypis starf og ekki þörf á að skrá börnin fyrirfram.

Svona er dagskráin fram að páskum:

3. febrúar: fyrsta samvera

10. febrúar: föndrum bænabönd

17. febrúar: öskudagsþema

24. febrúar: spilagleði

3. mars: smákökugerð

10. mars: leikjagleði

17. mars: útilistasmiðja

24. mars: páskaföndur

31. mars: páskabingó

Posted on 29/01/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd