Útimessa í Hrafnafellsrétt
Sunnudaginn 27. júlí kl. 20:00 verður haldin útiguðsþjónusta í Hrafnafellsrétt í Fellum (í suðurenda Hafrafells).
Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og flytur hugvekju. Félagar úr Kór Áskirkju leiða almennan söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur sem leikur á harmoniku. Sigfús Guttormsson frá Krossi segir frá messustaðnum og því sem fyrir augu ber. Meðhjálpari: Bergsteinn Brynjólfsson. Lesari: Kristófer Hilmar Brynjólfsson.
Upplagt að taka með sér kaffi/te á brúsa og sameinast í kvöldhressingu að messu lokinni.
Til að komast á messustað er beygt frá þjóðvegi 1 skammt frá Vök inn Hafrafellsafleggjarann (vegur 929) og síðan ekið áfram Fjallselsveginn, beygt til hægri í áttina að Staffelli áleiðis upp fellið. Bílum er lagt við gönguleiðarskilti (Hrafnafell) við veginn, eða gengið/sameinast í bíla frá Skotásnum (þar sem Hafrafellsbændur geyma vélar). Frá gönguleiðarskiltinu er gengið eftir jeppaslóða frá skilti við veginn u.þ.b. 10-15 mínútur að réttinni, eða ekið (aðeins fært stærri bílum) eftir slóðanum að réttinni. Þar er áfangastaður merktur með H-stiku.
Hrafnafell er ein af perlum Fljótsdalshéraðs, þar var áður lögrétt Fellamanna, Hrafnafellsrétt, þar sem hlaðið hefur verið grjóti í báða enda á djúpri geil sem klettarnir mynda. Þetta er sérstakur og skemmtilegur staður sem gaman er að heimsækja.
Verið velkomin til helgrar stundar úti í sköpunarverki Drottins!
(Ef veður verður mjög óhagstætt til útimessu færist messan inn í Áskirkju, það verður þá auglýst hér.)
Posted on 21/07/2025, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0