Kristniboðskynning – Súpusamvera
Miðvikudaginn 5. febrúar kl. 17-19 verður samvera í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju þar sem gestur okkar verður Sigríður Schram, nýr framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins. Hún mun segja okkur frá kristniboðsstarfi og starfsemi sambandsins bæði erlendis og hér heima. Við munum einnig biðja saman og syngja saman við undirleik Sándors við hljómborðið. Boðið verður upp á ljúffenga súpu og við ætlum að eiga gott samfélag. Verið innilega velkomin.
Í framhaldinu mun biblíuleshópur svo hittast á sama stað alla miðvikudaga kl. 17 fram að páskum og erum við öll velkomin að vera þar með eftir því sem það hentar okkur.
Posted on 03/02/2025, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0