Aðventukvöld í Kirkjubæjarkirkju
Aðventukvöld Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna verður að þessu sinni haldið í Kirkjubæjarkirkju mánudaginn 16. desember kl. 19.30. Að vanda verður þetta hátíðleg stund í aðdraganda jóla með fjölbreyttri dagskrá. Þorsteinn Gústafsson flytur jólahugvekju. Fermingarbörn taka virkan þátt. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna flytur okkur fagra tóna undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Auður Jónsdóttir syngur einsöng og við syngjum saman þekktu aðventu- og jólasálmana. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og meðhjálpari er Margrét Árnadóttir. Eftir athöfn í kirkjunni býður Kvenfélag Hróarstungu öllum í aðventukaffi í Tungubúð. Verið hjartanlega velkomin.

Posted on 16/12/2024, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0