Lilju-messa og sunnudagaskóli

Seyðisfjarðarkirkja sunnudaginn 10. nóvember
sunnudagaskóli kl. 11. Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur. Djús og dund í safnaðarheimili eftir stundina. Umsjón hafa Ísold Gná og aðstoðarleiðtogar.
Egilsstaðakirkja sunnudaginn 10. nóvember
Sunnudagaskóli kl 10.30. Umsjón hafa Sigríður, Sándor, Elísa, Guðný, Ragnheiður og fermingarbörn.
Lilju-messa í Egilsstaðakirkju 10. nóvember nk. kl. 14:00.
Kórastarf er hjartað í hverri kirkju. Liljan – tónlistarverðlaun þjóðkirkjunnar voru afhent á Kirkjudögum í Lindakirkju til þeirra kórsöngvara sem sungið hafa í 30 ár eða lengur í kirkjukórum. Ekki gátu allir kórfélagar okkar verið viðstaddir þá hátíðlegu athöfn. Það verður því sérstök Lilju-messa í Egilsstaðakirkju 10. nóvember nk. kl. 14:00 og kórafólki af Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði er boðið að taka þátt í samkór og kirkjan mun óma af söng. Þá verður Lilja – afhent, þ.e. nöfn allra Lilju- þegar verða lesin upp og þau sem eiga eftir að fá sitt viðurkenningarskjal afhent fá það.
Boðið verður upp á messukaffi í kirkunni eftir stundina.
Verið öll velkomin
Posted on 06/11/2024, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0