„Sæl eru þau sem búa í húsi þínu…“

„Sæl eru þau sem búa í húsi þínu“ er yfirskrift sýningar sem verður opnuð í Sláturhúsinu laugardaginn 8. júní kl 13.  Sýndir verða munir og myndir úr einkaeigu eða hafa verið gefnir Egilsstaðakirkju, og tengjast stóru stundunum í lífi fólks í gleði og sorg. 

Sýningin er í tilefni 50 ára afmælis Egilsstaðakirkju, stendur frá 8.-21. júní og er opin á opnunartímum Sláturhússins.

Eydís Bjarnadóttir, formaður sóknarnefndar Egilsstaðasóknar, hefur leitt undirbúning og skipulag sýningarinnar en að því verkefni hefur einnig komið fjöldi sjálfboðaliða sem tengjast starfi Egilsstaðakirkju frá vígslu hennar 16. júní 1974. Sýningin leggur áherslu á persónulega tengingu við kirkjulegar athafnir á stóru lífsstundunum og t.d. má nefna heimagerða skírnarkjóla, fermingarföt, brúðkaupsföt og umbúnað um líkkistur. 

Sýningin „Sæl eru þau sem búa í húsi þínu…“ er ekki síst hugsuð til að lyfta upp mikilvægi sóknarkirkjunnar á stóru stundum lífsins og framlaginu til þeirra sem er kannski ekki lyft upp öllu jafna. Af þessu tilefni fögnum við sérstaklega ótal handtökum kvenna sem í hógværð og lítillæti hafa saumað, bakað, prjónað, straujað, skreytt með ást og umhyggju, og þannig skapað umgjörð sem rammar inn upplifanir og minningar. 

Á opnunardegi sýningarinnar koma fram hljómsveitin Austurhljóð og Kór Egilsstaðakirkju. Þau stíga á stokk kl. 14, svo ekki missa af því!

Egilsstaðakirkja þakkar Sláturhúsinu, Höllu Ormarsdóttur, Heiðdísi Höllu Bjarnadóttur og ÖLLUM þeim fjölda sem gera sýninguna að veruleika, af þessu gleðilega tilefni.

Posted on 07/06/2024, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd