50 ára Egilsstaðakirkja ljósum prýdd

Nýr útiljósabúnaður við Egilsstaðakirkju var tekinn í notkun að lokinni tónlistarmessu í kirkjunni á sunnudagskvöldið, 10. mars kl. 20:00. Þetta var um leið fyrsti liðurinn í að fagna 50 ára afmæli kirkjunnar í ár.
Fyrir rúmu ári síðan tók sóknarnefnd Egilsstaðakirkju ákvörðun um kaup og uppsetningu nýrrar útilýsingar við kirkjuna, sem er jú eitt helsta tákn Egilsstaðabæjar og sést víða að. Slíkt var löngu tímabært en mörg undanfarin ár hefur kirkjan verið lýst upp í skammdeginu með litlum kösturum sem upphaflega voru aðeins settir upp til bráðabirgða.
Nýi ljósabúnaðurinn kemur frá fyrirtækinu Ligman og samanstendur af 24 kösturum á fjórum staurum hringinn í kringum kirkjuna, auk sérstakra kastara fyrir turninn. Birtan af kösturunum er hlý og falleg auk þess sem búnaðurinn býður upp á ýmsa litamöguleika. Starfsmenn Tréiðjunnar Einis hf í Fellabæ undir forystu Sigurðar Sigurjónssonar og Guðmundar Halldórssonar rafvirkja önnuðust uppsetningu og tengingu búnaðarins, en það reyndist krefjandi og tímafrekt verkefni á klöppinni á Gálgaási.. Formaður sóknarnefndar Egilsstaðakirkju er Eydís Bjarnadóttir og lýsir hún ánægju sinni með hvernig til hafi tekist. „Ljósaverkefnið er hluti af þeim framkvæmdum sem verið hafa við kirkjuna undanfarið ár og hafa aðeins verið mögulegar vegna þeirrar fjármögnunar sem Egilsstaðasókn hefur notið frá Jöfnunarsjóði sókna,″ segir Eydís.
Egilsstaðakirkja var vígð 16. júní árið 1974 og fagnar því 50 ára afmæli sínu á þessu ári. Ljósahátíðin á sunnudag er fyrsti liðurinn í afmælisárinu, en ýmsir viðburðir eru fyrirhugaðir á árinu af þessu tilefni. Hátíðarmessa með biskupi Íslands verður á vígsluafmælisdaginn, 16. júní nk. og sýning á handverki tengdu trú og kirkju verður sett upp í Sláturhúsinu í sumar. Afmælishátíð barnanna og afmælistónleikar eru svo á döfinni í haust.
Messan sl. sunnudag var fjölsótt, en þar fluttu söngnemendur úr tónlistarskólunum á Egilsstöðum og Fellabæ kafla úr verkinu Stabat mater eftir Pergolesi ásamt annarri tónlist. Kór Egilsstaðakirkju söng einnig undir stjórn Sándors Kerekes organista, sem einnig lék á sembal. Virág Kerekesne Meszöly lék á selló og Mairi Louisa McCabe á fiðlu. Sóknarprestur predikaði og þjónaði fyrir altari.
Sveinn Jónsson verkfræðingur hefur allt frá upphafi haft umsjón með verkefninu fyrir hönd sóknarnefndar og kynnti hann nýju ljósin við lok messunnar, en kirkjukórinn söng lagið “Ég horfi eftir lífsins ljósi” eftir heimamanninn Hrein Halldórsson. Söfnuðurinn fór svo út á bílaplan kirkjunnar og söng við gítarleik organistans “Amen – Innst í mínu hjarta skal ljósið lýsa bjart” meðan Sveinn tendraði ljósin ásamt Jónasi Þór Jóhannssyni, meðhjálpara og fyrrverandi sóknarnefndarformanni. Almenn ánægja var með lýsinguna og ýmsa litamöguleika hennar, sem safnaðarfólk fékk að virða fyrir sér.
Posted on 14/03/2024, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0