Þorláksmessa í kirkjunni

Þann 23. desember, á Þorláksmessu, hafa skapast fallegar og gefandi hefðir í Egilsstaðakirkju sem styðja við hátíðlegan og skemmtilegan undirbúning fyrir blessuð jólin.

Kl. 16 er opin söngstund í kirkjunni þar sem allir eru velkomnir og svo er farið „út að kanta“. Sándor organisti lýsir því sem:

Að kanta? …Vera og syngja saman, að fagna fæðingu Jesú. Að gleyma aðeins slæmu hlutunum og hugsa um það góða. Koma í hlý föt. Má líka komið með te. Við ætlum að fara á spennandi staði til að koma með smá hlýju. Hvar? Ég veit ekki, í dag vil að dreyma ég það. En draumdu líka og við finnum það saman.

Um kvöldið eru síðan Jólatónar í kirkjunni milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.

Guð gefi þér friðsælan og gleðilegan jólaundirbúning.

Posted on 22/12/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd