Helgihald um jól og áramót 2023

Hér er að finna á einum stað yfirlit um helgihald í Egilsstaðaprestakalli um jól og áramót 2023.

Hittumst, njótum og eigum gleði- og friðarjól.

17. desember, þriðji sunnudagur í aðventu:

Egilsstaðakirkja: Helgistund með altarisgöngu og miklum söng kl. 10:30. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes.

Seyðisfjarðarkirkja: Jólastund sunnudagaskólans kl. 11:00.

Bakkagerðiskirkja: Aðventuhátíð kl. 20. Bakkasystur, sr. Þorgeir og Sándor.

18. desember, mánudagur:

Áskirkja í Fellum: Jólasálmakvöld kl. 20:00. Drífa Sigurðardóttir organisti og Kór Áskirkju leiða sönginn.

23. desember, Þorláksmessa: 

EgilsstaðakirkjaSöngstund í kirkjunni kl. 16:00 og svo farið „út að kanta‟.

Jólatónar í kirkjunni milli kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.

24. desember, aðfangadagur: 

Egilsstaðakirkja

Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans.

Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur: Margrét Lára Þórarinsdóttir.

Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Eiðakirkja: Jólanæturmessa kl. 22:30. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.

25. desember, jóladagur:

Áskirkja í Fellum:  Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.

Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Hjúkrunarh. Fossahlíð, Seyðisf.: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Hlín Pétursdóttir Behrens. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur: Auður Jónsdóttir.

Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, fv. sóknarprestur, predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla.

26. desember, annar dagur jóla:

Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlistina. Einsöngur: Sigurbjörg Vera Ingvarsdóttir.

Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.

Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Barnakór Egilsstaðakirkju syngur og fermingarbörn flytja ljósaþátt.

Hjúkrunarh. Dyngja, Egilsstöðum: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Barnakór Egilsstaðakirkju syngur og fermingarbörn flytja ljósaþátt.

31. desember, gamlársdagur:

Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

1. janúar 2024, nýársdagur: 

Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Bakkasystur syngja.

Posted on 14/12/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd