Helgihald 9.-10. desember

10. desember er annar sunnudagur í aðventu. Fjölbreytt dagskrá verður í Egilsstaðaprestakalli um helgina:

9. desember (laugardagur):

Þingmúlasókn – Arnhólsstaðir Skriðdal: Aðventuhátíð Vallanes- og Þingmúlasókna kl. 15:00. Kaffiveitingar.

10. desember, annar sunnudagur í aðventu:

Egilsstaðakirkja:  

Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 10:30 – síðasta samvera fyrir jól. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina. Sr. Þorgeir, Sándor og leiðtogarnir sjá um stundina.

Aðventukvöld Egilsstaðakirkju kl. 18:00. Barnakór kirkjunnar kemur fram, Kór Egilsstaðakirkju syngur ásamt hljóðfæraleikurum, frásögn um „Jól í Moldavíu“ o.fl. Stundinni lýkur að vanda með hátíðlegri kertaljósaathöfn. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes.

Seyðisfjarðarkirkja:

Sunnudagaskóli kl. 11. Jólasagan, kirkjubrúður og jólasálmar. Umsjón hafa Ísold Gná og fermingarbörn. Kakó og piparkökuskreytingar í safnaðarheimili eftir stundina

Aðventuhátíð kl. 18. 

Vilborg Borgþórsdóttir er með jólahugleiðingu. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur og leiðir söng. Organisti er Hlín Pétursdóttir Behrens. Stefanía Þórdís Vídalín leikur á flautu. Fermingarbörn leiða í upphafi og lok stundar. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Friðarstund á kirkjutröppum að stundinni lokinni á alþjóðadegi mannréttinda.

Hjúkrunarh. Dyngja, Egilsstöðum: Aðventuguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju syngur.

Valþjófsstaðarkirkja: Aðventukvöld kl. 20:00.

Posted on 07/12/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd