Aðventukvöld í Kirkjuselinu Fellabæ 29. nóvember

Árlegt aðventukvöld er í Kirkjuselinu Fellabæ, miðvikudaginn 29. nóvember, kl. 20. Við þjófstörtum aðventunni sem er að þessu sinni með allra stysta móti, kveikjum á kransinum, hlustum á fagra tóna, heyrum uppbyggjandi orð og syngjum sálmana góðu sem koma okkur í jólaskap.
Drífa Sigurðardóttir stjórnar kór Áskirkju og leiðir sönginn okkar. Fermingarbörn og stjörnustundarkrakkar lesa og syngja af list. Ræðumaður kvöldsins er Fellamaðurinn Guðlaugur Sæbjörnsson.
Eftir stundina hellir sóknarnefndin upp á kaffi og reiðir fram konfektmola.
INNILEGA VELKOMIN
Posted on 28/11/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0