MARKÚS – Námskeið í Safnaðarheimili

„MARKÚS‟Námskeið í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju

Mánudagskvöld kl. 18:30-20:30, 9. okt. – 27. nóv.

Hver er Jesús? Hvaða máli skiptir líf hans og verk? Hver er tilgangurinn með þessu öllu? Um hvað snýst kristin trú? Kynningarkvöld 9. október – ókeypis og öllum opið.

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja velta fyrir sér stóru spurningum lífsins frá sjónarhóli kristinnar trúar. Við kynnumst lífi, boðskap og verki Jesú Krists út frá frásögn Markúsarguðspjalls í Biblíunni. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa aldrei opnað Biblíuna og þeim sem þekkja efni hennar vel en vilja dýpka skilning sinn. Í umræðuhópunum spjöllum við frjálslega um okkar skilning á efninu, um trúna, efann og um lífið sjálft. Umsjón með námskeiðinu hafa: Ástríður, Guðmundur, Íris, Kolbrún, sr. Vigfús Ingvar og sr. Þorgeir.

Verð: 14.000 kr. Innifalið: Kvöldmatur frá matsölustað öll kvöldin. Athugið að mörg stéttarfélög styrkja sitt fólk til að sækja ýmis námskeið. Ef fjárhagur hindrar þátttöku í námskeiðinu, hikið ekki við að hafa samband við Þorgeir (thorgeir.arason@kirkjan.is) og við leysum málið.

Hvert kvöld er þannig skipulagt:

– Kvöldverður

– Stutt kynning á efni kvöldsins – Hvert kvöld tökum við fyrir tvo kafla úr Markúsarguðspjalli

– Myndband

– Innlegg um efni myndbandsins/ viðbrögð

– Umræður í hópum

– Bænastund/Söngur í lokin

Dagskrá:

9. okt.Markús 1&2: Upphafið – Fylg þú mér
16. okt.Markús 3&4: Sonur Guðs – Dæmisögur
23. okt.Markús 5&6: Jesús læknar og mettar
30. okt.Markús 7&8: Hvern segja menn mig vera?
6. nóv.Markús 9&10: Á fjallinu – Leyfið börnunum að koma
13. nóv.Markús 11&12: Til Jerúsalem – Æðsta boðorðið
20. nóv.Markús 13&14:  Kvöldmáltíðin – Jesús handtekinn
27. nóv.Markús 15&16: Krossfestur – Upprisinn

Posted on 04/10/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd