Barnakór Egilsstaðakirkju
Barnakór Egilsstaðakirkju er nú að hefja vetrarstarf sitt og að þessu sinni munum við bjóða upp á tvo hópa:
4.-7. bekkur æfir miðvikudaga kl. 14:45-15:30 í kirkjunni
1.-3. bekkur æfir miðvikudaga kl. 15:30-16:15 í kirkjunni
Fyrstu æfingar verða 20. september. Þátttaka er ókeypis. Kórinn æfir bæði barnasálma og létt lög úr ýmsum áttum og fljótlega byrjum við að æfa aðventu- og jólalögin. Kórinn kemur fram við athafnir í kirkjunni nokkrum sinnum yfir veturinn.
Kórstjóri er Sándor Kerekes, organisti Egilsstaðakirkju. Nánari upplýsingar má fá hjá Sándori í síma 624-7381 eða í tölvupósti: sandrj@freemail.hu.
Skráning fer fram hér (nauðsynlegt er að skrá alla kórsöngvara en að sjálfsögðu má prófa eina æfingu áður en gengið er frá skráningu).
Posted on 11/09/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0